Símablaðið - 01.12.1964, Blaðsíða 17
Og er það kapítuli fyrir sig.
En hvað sem öllu þessu líður:
Tímamót eru tækifœri, sem oft hafa gefizt vel til
þess að skapa góð áform, er séð hafa dagsins Ijós fyrr
eða síðar.
Félag okkar er að verða hálfrar aldar.
Félagsblað okkar hefur þá sérstöðu, í hópi stéttar-
blaða hér á landi, að eiga einnig hálfrar aldar afmæli
á næstunni.
Það vill nú beina því til félagsmanna, að þeir, við
þessi tímamót, endurskoði það, hvernig þeir verja tíma
sínum, — hvernig þeir geti varið honum betur, — nýtt
hann betur, — afkastað meiru án aukins álags.
Það væntir þess, að árangursins gæti hér á síðum
þess fyrr en varir, helzt strax á því merkisári í sögu
þess, sem nú fer í hönd.
í þeirri von óskar það öllum félagsmönnum og öðr-
um lesendum
Farsæls komandi árs.
Jól
Dagarnir, árin og aldirnar lí5a,
allt streymir mót himinins sól.
Englar, sem forðum, í upphæSum vaka,
og alheimi bo5a jól.
Um■ óróa sálir og ólgandi veröld,
andi hins blessaða fer.
Dýrð á himni friður á foldu,
og fögnuður boðaður er.
1 því er hamingja heimsbarna fólgin,
svo hrein, frá vöggu að gröf,
að mennirnir vilji meðtaka þessa
miklu og eilífu gjöf.
Að æðsta marki í einingu stefna
óskir vorar og þrár.
Gefi svo Drottinn oss gleðileg jól
og gæfuríkt komandi ár
Árni Helgason.
Nýju Guineu fundu þjóð-
flokk á landssvæðum, ein-
angruðum af háum fjali-
görðum, frumskógum og
fenjum. Þetta fólk er á al-
geru frumstigi steinaldar-
mannsins.
Það var ekki fyrr en að
lokinni síðari heimsstyrjöld-
inni, að áströlsk yfirvöld
gáfu sér tíma til að gera út
leiðangra til þessa steinald-
arfólks, og þá kom það í Ijós,
sem ótrúlegast var, að hér
var ekki um að ræða neinn
lítinn hóp manna heldur
þjóðflokk, sem að líkindum
telur hundruð þúsunda
manna af mörgum litarhátt-
um, og með ólíka siði. Og vit-
að er, að enn hefur ekki ver-
ið komist til stórra, einangr-
aðra þjóðflokka á þessum
slóðum, þó flugvélar hafi
verið notaðar til að leita
þeirra.
Sú vitneskja, sem borizt
hefur til hins menntaða
heims af þessum þjóðflokk-
um er einkum komin frá
mannfræðingum og læknum,
sem undanfarin ár hafa brot-
izt þangað. Læknar hafa hóp-
um saman gert út leiðangra
í þeim sérstaka tilgangi að
rannsaka útbreiðslu krabba-
meins meðal hinna frum-
stæðu manna.
Þeir telja að fjöldi þessara
steinaldarmanna sé um 3A
úr milljón, sem aðskilja sig
5ÍMA0LAÐIÐ
43