Símablaðið

Årgang
Hovedpublikation:

Símablaðið - 01.12.1964, Side 20

Símablaðið - 01.12.1964, Side 20
A við og dreif. Sú nýjung var tekin upp sl. sumar í samræmi við kjarasamningana, að loka skrifstofum pósts og síma á laugardögum mánuðina júlí /sept., og öðrum þeim starfs- deildum, þar sem því verð- ur við komið. í stað þess verður að jafnaði unnið á mánudögum til kl. 18. Þetta hefur mælst vel fyrir og fullyrða má, að á ýmsum stöðum nýtist vinnuaflið mun betur, því laugardag- arnir hafa lengi verið ó- drjúgir. Er þess að vænta, að sami háttur verði á hafð- ur framvegis. Tillögu - kassar. Lengi hefur staðið til, að koma fyrir „tillögu-kössum“ við stimpilklukkur stofn- unarinnar, eins og tíðkast víða erlendis í stórum stofn- unum. Af ýmsum ástæðum hefur þetta dregizt, en nú eru slíkir kassar komnir á sinn stað í Landssímahús- inu, Birgðahúsinu, Grensási og Gufunesi. — Fleiri kass- ar koma síðar, og þá einnig á stærstu stöðvum utan Rvíkur. í þessa kassa er ætlast til að þeir starfsmenn stofnun- arinnar, sem koma vilja á framfæri við stjórn FIS, Símablaðið eða póst- og símamálastjórnina tillögum eða óskum, skili þeim nafn- lausum eða með nafni sínu. Stjórn FÍS kemur þeim sio- an á framfæri við réttan aðila. 46 SÍMABLAÐIÐ flokkaröðunina og fá leiðréttingar á því vanmati á störfum starfsfólks Landssímans, sem fram kemur í núgildandi flokkaröðun. Yið verðum að treysta því, að Kjararáð taki tillögum olckar með skilningi og virði þau rök, sem við liöfum fram að færa, þó að afstaða forystu bandalagsins gagnvart óskum félagsins við undanfarna samninga og skipun Kjara- ráðs, fyrr og nú, gefi hins vegar ekki góð fyrirheit né bendi til þess, að henni sé ljós sá styrkur, sem F.I.S. á í sínum eigin samtökum til að vinna óstutt að kjaramálum sínum. I siðustu samningum var reynt að hafa samvinnu við póst- og símamálastjórn, en tókst þó ekki sem skyldi. Vonandi tekst betur til nú, og að minnsta kosti verður að ætla, að ekki verði gengið fram hjá Starfsmannaráði, eins og þá. Samkvæmt regl- unum um Starfsmannaráð ber þvi að fjalla um öll mál, er varða launakjör starfsmannanna. Það er mikils vert, að samvinna sé góð um þessa hluti, svo að árangur megi nást. Það ætti að vera stofnun- inni kappsmál, að kjör starfsmanna hennar séu ætíð sambærileg við það, er gerist annars staðar, og þá sér í lagi, að þau séu ekki lakari en annarra opinberra starfsmanna. Og vonandi hefur meðferð og gangur kjaramál- anna undanfarin ár kennt símastjórninni, að engin skynsamleg rök eru fyrir því, að hún slái hendinni við óskum félagsins um heiðarlega samvinnu í þess- um efnum. Heldur ætti hún ekki siður að leita sjálf eftir þeirri samvinnu. Erindrekstur. I félagi eins og F.I.S., þar sem félagarnir eru dreifðir um allt land, verður ætíð erfitt að hafa hf- rænt samband við alla félagana og fá þá til að taka virkan þátt i félagsstarfinu. Þó er engu að siður nauðsynlegt fyrir félagsstjórnina að reyna að hafa samband við sem flesta og kynna félagsmálin eftir því, sem við verður komið. I þessu efni er Síma- blaðið mikilsverður tengiliður og hefur unnið mikið og gott starf. Það er því áríðandi fyrir okkur að hlúa vel að því og leggja því allt það lið, sem við

x

Símablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.