Símablaðið

Árgangur
Main publication:

Símablaðið - 01.12.1964, Síða 21

Símablaðið - 01.12.1964, Síða 21
getum. En þó að SímablaÖið vinni gott starf, verður það aldrei fullnægjandi, og nauðsynlegt er fyrir félagsstjórnina að liafa persónulegt sambandi við félagana út um landið og kynnast vandamálum þeirra um leið og félagsstarfsemin er kynnt. Núverandi stjórn gerði sér þetta strax ljóst, og ákvað að stofna til erindreksturs út um landið eftir föngum, og nú þegar þetta er skrifað, er verið að undirbúa ferð til Norðurlands í þessu skyni. Von- andi tekst hún vel og verður til þess að treysta bönd- in við félagana þar. Þá er einnig að geta þess, að stjórnin átti fund með fulltrúum deildanna utan Reyltjavíkur á banda- lagsþingi ,en það er i fyrsta skipti, sem félagarnir úti á landi eiga fulltrúa á því. Það er ástæða til að livetja félagana utan Reykjavíkur til þess að hafa samband við félagsstjórnina þegar þeir koma i bæinn. Nefnd til að endurskoða lög og reglugerðir varðandi skipulag pósts og síma. Á síðasta landsfundi símamanna var mikið rætt um skipulag og stjórn pósts- og síma ,og talin mikil nauðsyn breytinga þar á, ekki sízt á meðferð starfs- kjaramála, og samþykkti fundurinn tillögu, þar sem farið var fram á, að stofnað væri sérstakt embætti innan stofnunarinnar til að annast þau mál. Eftir viðræður við póst- og símamálastjórn um þessi mál hefur verið skipuð nefnd, sem ætlað er það verk- efni að endurskoða lög og reglugerðir varðandi stofn- unina og skipulag hennar. Nefnd þessi er skipuð tveim fulltrúum frá þess- um aðilum F.I.S.,Póstmannafélaginu,Félagi forstjóra pósts og síma og póst- og símamálastjórn. Starfar nú nefndin að þessari endurskoðun. Vonandi verð- ur góður árangur af starfi hennar, og að liún verði hraðvirkari en nefnd sú, er endurskoðar starfs- mannareglur Landssímans. Félagsdómsmál. Nýlega var í Félagsdómi felldur úrskurður í máli 3 ijnr 50 anim, Þessa dagana verður huga mínum gjarnan reikað 50 ár aftur í tímann. Miklir við- burðir voru að gerast, bæði úti í heimi, og eins innan stofnunar þeirrar er ég vann við, Landssímanum. Mikil spenna var í loftinu eftir morðið fræga í Sarajevo og mátti segja að öll Evrópa stæði á öndinni af eftirvænt- ingu um það, að hægt yrði að afstýra styrjöld. Fæsta (nema ef til vill þá sem kunnastir voru málum) mun þó hafa órað fyrir 'því, að Evrópustyrjöld væri í að- sigi, og enn síður bjuggust menn við að fram undan væri fjögurra ára styrjöld, eða vel það. Hinn 26. júlímánaðar kom hingað þýzka ferða- mannaskipið „Prinz Fried- rich Wilhelm“ og annaðist Ditlev Thomsen kaupmaður (og þýzkur ræðismaður) mót töku ferðamanna. Á undan skipinu kom símskeyti til Thomsens um að meðal far- þega væru tveir tignir menn, sem hann var beðinn að ann- ast sérstaklega og útvega þeim góðan frönskumælandi leiðsögumann. Einhvern veg- inn atvikaðist það svo, að Thomsen bað mig að takast þetta starf á hendur, og féllst ég á hað ef Thomsen vildi taka að sér að fá mig lausan af símstöðinni þann helming dagsins sem ég átti að vera á verði. Eg var þá símritari hér í Reykjavík. S IMABLAÐIÐ 47

x

Símablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.