Símablaðið

Årgang
Hovedpublikation:

Símablaðið - 01.12.1964, Side 22

Símablaðið - 01.12.1964, Side 22
Hinir tignu ferðamenn voru utanríkisráðherra Ítalíu og sendiherra Frakka í Róm. Voru þetta mjög „stílugir“ menn, eins og Svíar myndu orða það og (að minnsta kosti annar) af aðalsættum. Furðaði mig á, að menn í jafn mikilvægum embættum skyldu leyfa sér að fara í skemmtiferðalag eins og á stóð í álfunni. Ég hafði víst orð á þessu, að minnsta kosti fékk ég að vita, að þegar þeir ákváðu, og Iögðu upp í ferðalagið, var spennan í álf- unni ekki orðin eins mikil, og afstaða Þýzkalands þá ó- ljós. Auk þess var ferðin, hvað annan snerti, farin samkvæmt læknisráði. Þeir tjáðu mér í byrjun, er ég spurði þá hvað þeir vildu helzt sjá, að þeir ættu von á símskeytum og yrðu þess vegna að halda sig inn- an bæjarmarkanna. Skeyti þau sem þeir fengu sögðu yfirleitt lítið, nema það síð- asta, en mér fannst kenna mikils eirðarleysis hjá þeim allan daginn sem ég var með þeim, og svo að sjá sem þeir hefðu ekki áhuga fyrir neinu hér. Það voru sím- skeyti, sem þeir áttu von á (og fengu), sem hugur þeirra virtist snúast um. Á níundu stundu héldu þeir svo til skips og lofaði ég þeim að koma með skeyti til þeirra, ef einhver bærust áð- ur en stöðinni væri lokað. Rétt um kl. 9, er verið var að loka ritsímastöðinni, kom svo símskeyti til þeirra. Tók ég það og fór um borð til þeirra. Urðu þeir því mjög fegnir. Skipið lét úr höfn um mið- BSRB f. h. Hauks Jóhannessonar, símritara í Gufu- nesi, gegn fjármálaráðherra f. h. ríkissjóðs. Mál þetta var höfðað vegna ágreinings um tvö atriSi í kjarasamningnum. f fyrsta lagi var krafa um greiSslu vaktaálags fyrir matartímann kl. 12—13. þessax-i kröfu var hafnaS. I öðru lagi var þess krafizt, aS þegar unnin er yfirvinna, skuli greiða næturvinnukaup fyrir þann tima, sem fer fram úr 2 klst., þótt yfirvinnan sé unnin á tímabilinu milli kl. 08 og 19. Þessi krafa var tekin til greina. Þessi úrskurður gildir að sjálfsögðu frá gildistöku kjarasamninganna, það er að segja frá 1. júli 1963. Þetta hefur nú verið tilkynnt yfirmönnum deild- anna, og ber þeim að framkvæma leiðréttingar í samræmi við úrskurðinn. Það er áríðandi, að stai'fsfólkið fylgist með því að þetta sé gert, og kvarti við sína yfirmenn, ef einhver misbrestur verður þar á. En nægi það ekki, þá að hafa samband við stjórn félagsins. Þó að úrskurður hafi vei’ið felldur um þessi at- riði, eru enn eftir ágreiningsatriði i kjarasamning- unum. Það er því mikilvægt, að næstu kjarasamn- ingar verði það skýrir og skorinorðir, að ekki fari mikill tími og fyrirhöfn i að fá réttan skilning á þeim. Tæknimenn og nemar sem unnu aÖ stækkun sjálfvirku- stöðvarinnar í Grensási: Ingólfur Baldvinsson, Rúnar Arason, Ágúst Geirsson, Kristinn Kristinsson, Gísli Vilmundarson, Jón Bergmann, Guðleifur Bjarnason, Thor Eggertsson, Jóhann Björnsson, Óli Thorsteinsson.

x

Símablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.