Símablaðið

Ukioqatigiit
Saqqummersitaq pingaarneq:

Símablaðið - 01.12.1964, Qupperneq 39

Símablaðið - 01.12.1964, Qupperneq 39
 ^uendi uir FER FT I HEIML\i\ Hann hafði staðið þarna á hafnarbakkanum góða stund og horft dreymandi augum á hið glæsilega skip. Allskonar ævintýralegar draummyndir liðu í gegnum huga hans, í sambandi við þetta skip og áhöfn þess. Honum varð star- sýnt á þessa gullborðalögðu menn, sem spígsporuðu um þilfarið. Þeir voru ennþá gylltari en sjálfur sýslumaðurinn heima í Suðursveit. Já, hver sem ætti þess kost að kom- ast á svona glæsilegt skip, með svona fínni skipsöfn! Sigla til framandi landa og sjá sig um í hinum stóra heimi. Kannske gæti hann líka, með tímanum, sjálfur fengið svona gullbryddan búning. Það var heillandi tilhugsun. 1 sveitina færi hann ekki aftur, hvað sem tautaði. Hann hafði fengið nægju sína af því að eltast við pestarrollur upp og fjöll og firnindi, að ógleymdum bölvuðum fjós- mokstrinum. Nei, það var ekkert líf. Gvendur hrökk upp úr þessum dagdraumum sínum við það, að skipið flautaði í fyrsta sinn. Dagdraumarnir slepptu tökum á 'honum og hann skall óþyrmilega niður á hinar bláköldu staðreyndir. Hann draup höfði, renndi augunum niður eftir snjáðum vaðmálsbuxunum, niður á útvaðna kúskinnsskóna. Hver var hann, að hann skyldi voga sér að láta sig dreyma um slíkt? Hann, Guðmundur Jónsson frá Bjólu í Suðursveit. Fátækur og umkomulaus sveitadrengur, sem hafði verið sendur til frænku sinnar í Reykjavík, í þeirri veiku von, að hann gæti unnið þar fyrir sér og þannig létt á stóra barnahópnum heima. Menn áttu ekki margra kosta völ á kreppuárunum. Gvendur strauk rauðan hár- lubbann frá horuðu og beinaberu andlitinu, stakk hönd- unum djúpt niður í buxnavasana og bjó sig undir að labba í burtu. — Hæ, strákur, heyrirðu ekki, að ég er að kalla á þig? — Gvendur leit upp. Einn af þeim borðalögðu stóð við borðstokkinn á skipinu og benti honum að koma til sín. Gvendur dró hendurnar silalega upp úr buxnavösunum og gekk hikandi skrefum í áttina að skipinu. — Ertu at- vinnulaus? — Gvendur játti því. — Viltu fá pláss hér um borð, sem messastrákur? Andlitið datt nærri af Gvendi, svo undrandi varð hann. Hann kom engu orði upp góða stund; var hann kannske ennþá í hinum töfrandi heimi dagdraumanna ? Þetta var of gott til að geta verið veruleiki. í síðasta Símablaði er mjög athyglisverð grein um tæknimenntun og tækni- menn símastofnunarinnar. Ástæða er til að vekja sér- staka athygli á þessari grein og taka undir þau sjónar- mið, sem þar koma fram. Tæknin verður í æ ríkari mæli undirstaðan í rekstri stofnunarinnar og því höfuð nauðsyn fyrir stjórn hennar að búa vel að þeim mönn- um, sem hana annast, bæði hvað viðkemur launakjör- um og menntun. Þó að miklar kröfur séu gerðar um menntun og kennsla nokkuð góð, þá er samt margt, sem betur mætti fara. Engar fastar reglur eru t. d. um símvirkjanám, sem farið er eftir. Hefur ýms háttur verið hafður á því undanfarin ár, oftast hefur kennslan farið fram utan vinnutíma, sennilega í sparn- aðarskyni. Það er þó harla ólíklegt að sú sparnaðarvið- leitni hafi borgað sig ef litið er á þá staðreynd, að fjöldi nemenda fellur á prófum og hrökklast frá námi af ástæð- um, sem oft má rekja til þess að þeim er um megn að ná þeim árangri, sem krafist er, og skila að auki fullum vinnudegi. Að sjálfsögðu er ástæðan einnig oft sú, að nemarnir ráða ekki við námsefnið, sem að miklu leyti er á er- lendum tungumálum, þrátt S í M A B LA'Ð IÐ 65

x

Símablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.