Símablaðið - 01.12.1964, Qupperneq 41
um leið og hann leit niður á gólfið í lúkarnum. Honum
hraus hugur við að klöngrast niður úr kojunni í þessum
veltingi. Honum hafði verið fengin efri koja til afnota
og nú fannst honum hæðin niður á lúkargólfið helmingi
meiri, séð ofan frá, en kvöldið áður, þegar hann klifraði
upp í hana. Hann herti þó upp hugann, lagðist á magann
og rak langa og renglulega skánkana út yfir kojustokk-
inn og lét sig síga varlega niður, um leið og hann þreifaði
fyrir sér með fætinum eftir einhverri fótfestu. Brátt varð
hann var við, að hægri iljin fékk nokkurn stuðning af ein-
hverju mjúku og mishæðóttu. Gvendur gaf sér ekki tíma
til að athuga nánar hvað það var, sem hann steig niður
á, enda með allan hugann við að halda sér fast í koju-
stokkinn. Hann lét því allan líkamsþungann fylgja á eftir
og bjó sig undir að stíga niður á kojugólfið með vinstra
fæti. En allt í einu kvað við ógurlegt öskur upp í iljina
á honum, og samtímis fékk hann bylmingshögg á mjóa-
legginn. Gvendi brá svo mikið, að hann missti tökin á
kojustokknum og endaslengdist flatur á lúkarsgólfið.
— Hver andskotinn er að þér, maður? Heldurðu, að and-
litið á mér sé eitthvert stigaþrep fyrir þig? Þú mátt þakka
fyrir, að þú varðst ekki mannsbani, það munaði minnstu,
að þú kæfðir mig.
Helgi annarkokkur, sem hafði sofið vært og andvara-
laus í neðri kokjunni, strauk á sér andlitið og starði með
grimmdarsvip á Gvend, þar sem hann sat eins og hvolp-
ur á lúkarsgólfinu og starði stjörfum augum inn í fram-
tíðina um borð í þessu skipi. — Nei, þá var það skárra í
Suðursveit.
— Gvendur, farðu niður í eldhús með þennan bakka. —
Áður en Gvendur gat svarað, stóð hann í efsta þrepi stig-
ans niður í eldhúsið, með fullan bakka af fínasta postulíni
í fanginu. Gvendur lagði af stað niður stigann, en sá litt
niður fyrir fætur sér, þar eð bakkinn var svo umfangs-
mikill, að hann byrgði allt útsýni niður á við. I miðjum
stiganum misti Gvendur af einu stigaþrepinu, og mun þar
hafa hjálpazt að, útsýnisleysið og smávegis hnútur, sem
kom á skipið. En afleiðingarnar urðu þær, að Gvendur,
postulínið og bakkinn lentu sitt í hverju lagi á steinsteyptu
eldhúsgólfinu, með ógurlegum hávaða. Kokkurinn, stór og
ofsafeitur Dani, var að taka pott af eldavélinni, þegar
skruggan reið yfir, og brá honum svo mikið, að hann
missti pottinn niður á fæturna á sér. Venjulega var dansk-
urinn dagfarsgóður, en reiddist illa, þegar honum mis-
líkaði eitthvað og kom þá á hann hálfgerður berserks-
gangur, og vissi hann þá varla hvað hann gerði. Reiði-
köstin stóðu venjulega stutt, og það var eins með hann og
berserkina til forna, eftir að mesti móðurinn hafði runnið
af honum, varð hann aftur ljúfur eins og lamb. Hrakfarir
Gvendar og heitur grauturinn á fótum kokksins, hjálpuðust
að, til þess að koma berserksgangi á hann. — Hvad fanden
virkjar verið sendir til
enskumælandi þjóða á nám-
skeið og ekki talin ástæða
til að efast um kunnáttu
þeirra í ensku.
Ekki voru þó allir ánægð-
ir með þessa skýringu og
fengu því framgengt að við-
komandi símvirkjar yrðu
prófaðir í ensku og Norður-
landamálunum, sennilega
með tilliti til þess að kenn-
arar yrðu sænskir. Prófað
var í Menntaskólanum í
Reykjavík, og mættu fjórir
í prófið en tveir voru utan-
bæjar. Allir þessir fjórir
stóðust prófið og virtist þar
með sjálfsagt að boðið yrði
þegið.
Svo reyndist þó ekki, og
var boðið afþakkað m. a. á
þeim forsendum, að um erf-
iðleika yrði að ræða fyrir
nefnda starfsmenn vegna
málsins!
Að vísu var farið fram á
að L. M. Ericssoi sendi
kennara til íslands og haldið
yrði námskeið hér, en trú-
lega verður nokkur bið á
því.
Þetta er aðeins dæmi um
það skilningsleysi, sem rík-
ir innan stofnunarinnar á
nauðsyn þess, að starfsmenn
hennar fylgist með nýjung-
um á tæknisviðinu.
Með hinum öra vexti
stofnunarinnar og áætlunum
um stórfelldar framkvæmd-
ir á sviði sjálfvirkninnar og
annarra tækni, eykst að
sama skapi þörfin fyrir
tæknimenn. Það er því áríð-
andi, að tæknimennirnir búi
við það góð kjör að nægilega
margir fáist til að leggja
þau störf fyrir sig.
Allt fram á síðustu ár hef-
ur verið það mikill áhugi
SÍMABLA'ÐIÐ