Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2005, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2005, Síða 10
J 0 ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2005 Fréttir DV Guðrún þykir mjög skemmti- leg, hugmyndarik og greind kona. Hún er traustur og dríf- andi vinur og þykir skrifa skemmtilegar bækur. Guðrún er feimin og á erfitt með að segja nei. „Það er ekkert nema gott hægt að segja um þessa konu. Hún er afar stolt og er með góða heilastarf- semi, hún ereitursnjöll manneskja og flink i alla staði. Hún er svolítið feimin efhægt er að flokka feimni sem galla. Reyndar finnst mér feimni flokk- ast undir mannkosti, finnst það yfirleitt vera vottur um gott fólk." Snæbjörn Arngrímsson hjá bókaútgáfunni Bjarti. „Helsti kostur hennar er hvað hún ergasalega skemmtileg. Ifáum orð- um er hún blíð og Ijúf, góð og greind. Svo er hún traustur og dr/fandi vinur, fólk þarfoft á slíkum vinum að halda. Helsti galli hennar er hvað hún eryndisleg og ég vildi gjarnan vera meira eins og hún." GuÖrún Vilmundardóttir, kynningar- stjóri Borgarleikhússins. „Fyrst og fremst er hún svo skemmtileg og and- rík, hana skortir aldrei hugmyndir. Guðrún Eva er frábær fyrirmynd og skrifar ofboðslega skemmtileg- ar bækur. Hún er umhyggjusöm og sýnir manni einlægan áhuga. Hún er falleg og góð sál og eini gallinn sem ég get nefnt erað sökum góðmennsku á hún stundum erfitt með að segja nei, samt án þess að vera undirlægja. Vinátta okkar bygg- ir á gæðum en ekki magni þvi ég sé hana alltof sjaldan." Guðriður Haraldsdóttir, blaðamaður Vikunnar. Guðrún Eva Mínervudóttir rithöfundur er fædd 17. mars 1976. Hún stundaði nám í heimspeki við Háskóla íslands. Guðrún hef- urgefið út nokkrar skáldsögur og Ijóða- bækur. Áriö 2000 fékk bók hennar, Fyrirlest- ur um hamingjuna, tilnefningu til íslensku bókmenntaverðlaunanna. Bókin Albúm fékk mikla athygli þegar hún kom út árið 2002 og nýverið kom út skáldsagan Yosoy sem einnig hefur vakið mikla athygli gagn- rýnenda. Vestfirðir í Perlunni Áhugi mun nú vera fyrir því á Vestfjörðum að efna til stórrar kynningar á fjórðungnum í Perlunni í maí á næsta ári. Að því er segir á strandir.is yrði þessi Vestfjarðasýning í anda sýningarinnar Perlan Vest- firðir sem haldin var árið 2002. „Atvinnuþróunarfé- lag Vestíjarða er nú að gera könnun á áhuga meðal at- vinnufyrirtækja á slíkri stórsýningu," segir á strandir.is. Meðal annars er ætlunin að hvetja til ferða- laga um fjórðunginn og til fjárfestinga þar. Blaðamaður norska blaðsins Dagbladet, Alexander Urrang Hauge, var á íslandi á dögunum og skrifaði í kjölfarið grein um íslenskt næturlíf. Hann var í slag- togi með fimm stelpum sem skemmtu sér konunglega fram undir morgun. „Til fjandans með þessa grein. Komdu frekar að skemmta þér með okkur.“ Þetta segir Mæja, ein af íslensku stelpunum sem fóru út að skemmta sér með norska blaðamanninum Alexander Urrang Hauge á dögunum. Hauge lýsir upplifun sinni af íslensku næturlífi í grein í hinu norska Dagbladet og er það ekki glæsileg mynd. Hér á eftir er greinin í íslenskri þýðingu. Mæja er með rauðan varalit, í pels og sömu hárgreiðslu og Olivia Newton-John var með í Grease. Klukkan er 01.28. Kvöldið byijaði fyr- ir sex drykkjum, tveimur bjórum og þrettán Kent-sfgarettum síðan. Það er stutt þar til veislan springur. Ein- hverjir héldu að næturlíflð í Reykjavík væri farið að róast. Baltasar seinn Það er föstudagur og klukkan er korter yfir fjögur í Reykjavfk á fslandi. ískaldur vindur nístir í gegnum merg og bein. Við sitjum á hinum itæga bar Kaffibamum og bíðum eftir Baltasar Kormáki, leikstjóra myndarinnar 101 Reykjavík. Baltasar er seinn. Af þrett- án gestum em fimm með fartölvur við hliðina á kaffibollanum. Við hlið- ina á okkur sitja tvær stúlkur. Þær borða Twix-súkkulaði og reykja Marl- boro Lights. Á borðinu liggur nýjasta tölublað Dazed. í hátölurunum ómar Sultans of Swing með Dire Straits. Það er að koma helgi. Nú er Baltasar kominn. Hann er með þriggja daga skegg og síma sem hringir látlaust. „Þetta er engin bóla. Goðsögnin er raunveruleg," segir Baltasar. Heimsborgin Reykjavík Hann er nýbúinn með sína síð- ustu mynd. Nú fer hann að byrja á þeirri næstu. Þar á eftir ætlar hann að búa til gamanmynd. En fyrst ætíar hann að setja upp Pétur Gaut í ís- lenska Þjóðleikhúsinu. Ekki slæmt af fimm bama föður. „Næturlífið í Osló er ekki ólíkt því sem við höfum hér. Héma er allt bara minna. Fólk dvelur á meðal þeirra sem það þekkir burtséð hvort það er í Los Angeles, New York eða London. Þetta birtist líka hér en nálægðin er meiri,“ segir Baltasar. Island og Reykjavík fengu stimpil sem heimsborg þegar mynd Baltasars 101 Reykjavlk kom út árið 2000. Af hverju heldur þú að Norður- landabúum líki skemmtanalíBð hér? „Þeir em hluti af sama brjálæð- inu. Þeir þekkja umhverfið," svaraði Baltasar. Fyrir nokkrum ámm síðan var ís- land í öllum tímaritum og dagblöð- um. Það vom ekki eldfjöll og íslensk- ir hestar sem kölluðu á þá umijöllun. Það var tónlist, klæðskerasaumuð föt og næturlíf sem heimurinn hafði ekki séð áður. Verslanir með íslenskri fatahönnun, listagallerí og flottir bar- ir spmttu upp eins og gorkúlur. I kjöl- farið komu Prada-, Armani- og Gucci-verslanimar. Gleymdu New York, Róm eða Stokkhólmi. Madonna, Blur, Nick Cave, Quentin Tarantino og Harrison Ford tóku ást- fóstri við bæinn. Enginn annar staður var jafn vinsæll og Reykjavík. Síðan varð allt hljótt. Uppgangurinn hættir ekki „Allir héldu að uppgangurinn myndi hætta en það gerist ekki. Menningin og næturlífið lifa sínu eigin lífi. Þau ganga sjálf. Það er dæmigert fyrir blaðamenn að rífa niður eitthvað sem gengur vel og þeir hafa sjálfir átt þátt í að búa til. Þegar ég var ungur var allt dautt hér. Þá var ástandið allt öðmvísi. Síðan breyttíst allt og 101 Reykjavík hjálp- aði ömgglega til,“ segir Baltasar. Nú þarf Baltasar að fara að sækja börnin á leikskóla. Það em margir tímar þar til eitthvað gerist í Reykja- vík. Veislan byijar í heimahúsum. Allar tvítugar Við emm komin til baka á Kaffi- barinn. Klukkan er 23.00. Það er búið að skipta fartölvum og kaffi- bollum út fyrir drykki og uppáklædda viðskiptavini. Við emm búnir að hengja okkur utan á vinahóp. Við emm búnir að vera í upphitun í partíi í heimahúsi. Stelp- umar drukku vodka hratt og ömgg- lega og sögðu okkur allt um fræga fólkið, strákana og skemmtunina um síðustu helgi og helgina þar á undan. í kringum borðið sitja Mar- ía, Maren, Margrét, Magga, Sólveig og Birna. Þær em allar tvítugar. „Við ætíum bara að fá okkur nokkra drykki hér áður en við fömm á 22 að hitta nokkra stráka,“ segir Magga. Fólk lítur upp þegar stelp- urnar yfirgefa Kaffibarinn. Ásamt Kaffibarnum er það nánast skylda að kíkja á 22 á hinu víðffæga pöbba- rölti í Reykjavík. Þetta er lognið á undan storminum. Komúnistaríkið ísland Á 22 lokkar raftónlistarsveitin Gus Gus gesti staðarins út á dans- gólfið án mikilla erfiðleika. í miðju öngþveitinu ber Englendingurinn Dave fram drykki. Hann er frá Manchester og er búinn að bíða eft- ir stelpunum. Hann hannar föt og ætíar að dvelja á íslandi í mánuð Þung augnlok, óstöðugir fætur og farðisem varfarinn út og suður virðist hafa gufað upp eins og dögg fyrir sólu á klósettinu. ásamt nokkrum vinnufélögum til að sækja sér innblástur. Dave er skráð- ur inn á hið flotta og rándýra 101 Hótel. Hann er ekkert sérlega hrif- inn af Reykjavík. „Þetta lítur út fyrir að vera kommúnistaríki. Það er allt flatt og lyktar af fiski. Það gerist ekkert í miðri viku en þegar dregur nær helgi verður allt vitíaust," segir Dave. Dömurnar fallegri í Köben Upphandleggimir á Dave em eins og trjástofnar, hann er með tröllalokka undir höfuðfatinu og það er ekki venjulegt tóbak í síga- rettunni hjá honum. „Dömurnar em miklu fallegri í Kaupmannahöfn. Hérna em þær flottari og uppteknari af tískunni. Ég er hrifinn af þeim. Reykjavík mun ekki gera annað en stækka og verður risastór á endanum," segir Dave. Frískandi klósettferð Klukkan er 02.43. Hver slagarinn á fætur öðmm glymur í liljóðkerf- inu. Það hefur ekki verið dauður tími og fólkið streymir inn og út um dymar. Það liggur haugur af Redbull og Jagermeister á borðinu. Ösku- bakkamir em fullir. Stelpumar eiga nóg með að halda sér á löppunum. Grein um ísland í norska Dagbladet

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.