Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2006, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2006, Qupperneq 10
I 10 ÞRIÐJUDAOUR 24. JANÚAR 2006 Fréttir DV Vaigeir er gríðarlega fjölhæfur listamaður á mörgum svið- um. Hann mætti kannski ein- beita sér að einu sviði. „ Valgeir er frábær strákur. Hann hef- ur mikið frum- kvæði og hug- myndaflug. Hann er góður leikari og tóniistarmað- ur og gott skáld. Hann hefurgóða lund og alltafhægt að leita til hans. Hann hefur svosem enga galla nema kannski að hann gerir svo margt og þá verður kannski ekki nógu mikið úr ein- um h!ut.“ Þórdís Arnljótsdóttir leikari. „Hans helstu kostir eru þeir að hann er mjög músíkalskur og alveg gríðarlega velgiftur. Hann hefur voðalega gaman afþví að fá fólk til að syngja með sér. Hann er alls ekkert snobbaður isam- bandi við tónlist. Hans helsti galli er kannski sá hversu fjöl- hæfur hann er. Hann getur svo margt á mörgum sviðum. Ef hann myndi rækta einn afþess- um hæfileikum sínum myndi hann vinna Eurovision." Ámi Pétur Gu&jónsson leikarí. „Kostir hans eru aðallega fjöl- hæfni hans og manngæska. Hann er ákaflega fjölhæf- ur tónlistarmaður, leikari og rithöfund- ur. Hann getur galdrað fram un- aðstóna i hvaða hljóðfæri sem er. Helsti galli hans felst einmitt í fjölhæfni hans. Hann á erfitt með að einbeita sér að ákveð- inni listgrein og mastera eina hugmynd, væri hægt að segja að hæfileikar hans liggi of víða. Hann á bara eftir að átta sig á því hvað hann gerir þegar hann verður stór." Hjálmar Hjálmarsson leikari. Valgeir Skagfjörð er fæddur 8. mal 1956. Hann útskrifaðist úr Leiklistarskóla Islands árið 1987 og hefur verið fyrirferðamikill á sviði síðan. Hann hefurskrifað mörg leikrit og Ijóð og gafá dögunum út bók sem á að gagnast fólki við að hætta að reykja. Bókin er byggð á námskeiðum sem Valgeir hefur staðið fyrirslðustu ár. Loftbelgur Holbt ist þegar hann rey. smygla hassi í loftl Holberg Másson var handtekinn á fimmtudaginn, grunaður um að hafa ætlað að svíkja fé út úr ís- landsbanka með falsaðri bankatryggingu. Hann segist á engan hátt vera viðriðinn málið. Holberg segir að málið sé allt ann- ars eðlis en greint hefur verið frá í fjöl- miðlum að undanförnu. JiiiaJj jjijjjjJiyl jjjj jj m Holberg Másson var handtekinn síðastliðinn fimmtudag ásamt tveimur útlendingum, grunaður um að hafa ætlað að svíkja fé út úr íslandsbanka með falsaðri bankatrygg- ingu. Holberg var sleppt úr haldi að lokinni yfirheyrslu og eyddi helginni í góðu yfirlæti í Holberg vildi lítið tjá sig um málið þegar DV hafði samband við hann í gær. Hann sagði að málið væri flókið og verið væri að vinna í því fyrir hans hönd. Hann sagði ekkert óeðlilegt við aðkomu sína að málinu og bíður eftir nið- urstöðu frá sínum aðilum. Þang- að til geti hann lítið tjáð sig. Hol- berg sagði að atburðarásin hefði verið með allt öðrum hætti en sumarbústað. skýrt hefði verið frá í fjölmiðlum að undanförnu. Hann vildi samt ekki greina frá atburðarásinni að svo stöddu en sagði hana mjög áhugaverða. (rannsókn Málið er í rannsókn hjá lög- reglunni sem vildi ekki tjá sig um málið að svo stöddu. Enn hefur ekki verið gefin út ákæra á hend- ur Holberg eða félögum hans. Vala Pálsdóttir, upplýsingafulltrúi íslandsbanka, sagði í samtali við DV í gær að málið væri alfarið í höndum lögreglu. Hún sagði að íslandsbanki hefði tilkynnt um athæfið en lengra næði þeirra að- koma að málinu ekki. Frumkvöðull Holberg hefur lengi verið áberandi í íslensku viðskiptalífi. Hann er einn fyrsti íslendingur- inn sem nettengdi tölvu og var forstjóri tölvufyrirtækisins Net- verk sem var leiðandi á sviði tölvuþróunar og fjarskipta á ís- landi. Fyrirtækið varð síðar gjald- ifaaláglHlBl Steinar Örn sleppur vel í Héraðsdómi Reykjaness Forseti lagði vinstri menn Anibal Cavaco Siiva var um helgina kosinn forseti Portúgals. Silva er fyrsti hægrimaður til þess að setjast í stól forseta síðan bylting var gerð í landinu 1974. Hann sigraði fimm aðra fr am- bjóðendur sem allir eru vinstri- sinnaðir. Silva fékkalls 51 pró- sent atkvæða, 30 prósentum meira en sá er næstur kom. Silva segist ætla að endurreisa efna- hagslíf Portúgala og ætlar sér að auka samstarfið við Evrópusambandið. Játaði skjalafals en sleppur við refsingu Steinari Emi Indriðasyni var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær ekki gerð nein refsing í skjalafalsmáli sem Sýslumaðurinn í Kópavogi höfðaði gegn honum. Steinar öm var handtekinn í september í Lyfju í Kópavogi eftir að hafa reynt að ffamvísa þar fölsuðum lyfseðli. I ljós kom að lyfseðlinum hafði verið stolið um verslunarmanna- helgina, fyrr um árið, á Heilbrigðis- stofnun Vestmannaeyja. Eftir að hafa verið handtekinn bar Steinar að tiltekinn aðili, sem hann viidi ekki nefna á nafn, hefði beðið hann að framvísa hinum falsaða lyfseðli. Steinar sagðist hafa vitað að lyfseðil- inn hefði verið falsaður og sagði jafn- framt frá því í smáatriðum hvernig fölsunin fór fram. Þennan framburð ítrekaði Steinar í héraðsdómi. Steinar örn Indriðason á nokkuð Iangan sakaferil að baki og var síðast dæmdur í sjö mánaða fangelsi nú í nóvember fyrir rán og brot á skil- orði. Þrátt fyrir sakaferilinn og játn- inguna komst Þorgeir Ingi Njálsson dómari að þeirri niðurstöðu að ekki værif ástæða til að refsa Steinari sérstaklega fyrir brot sitt. Hann þarf heldur ekki að greiða sakar kostnað í málinu en situr vegar uppi rúmlega 40 þúsund króna málsvarnarlaun verjanda síns, Hilmars Ingimundar- sonar. Miðað við niðurstöðu saka- málsins sem Sýslumaðurinn í Kópa- vogi höfðaði gegn honum virðist þeim peningum líka hafa verið ágætlega varið. andri@dv.is Röskva og Vaka kynna Um helgina voru kynntir framboðslistar Vöku og Röskvu til Stúdenta- og Háskólaráðs. Haraldur Björnsson viðskipta- fræðinemi skipar fyrsta sæti Vöku til Stúdentaráðs en Sigur- rós Eiðsdóttir skipar sama sæti fyrir Röskvu. Vaka hefur nú ákveðið að opinbera formanns- efni flokksins í Stúdentaráði fyrir kosningar, en slíkt hefur ekki ver- ið venjan í undanförnum kosn- ingum. Sigurður Hilmarsson lög- fræðinemi mun gegna embætti formanns Stúdentaráðs, nái Vaka meirihlutakosningu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.