Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2006, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2006, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 Fréttir 3JV Ragnar ráð- inn til HA Ragnar Stefánsson jarð- skjálftafræðingur hefirr ver- ið ráðinn prófessor í jarð- várfræðum við Háskólann á Akureyri. Þetta er gert í framhaldi af samkomulagi háskólans við Veðurstofu Islands frá síðasta ári. Ragnar hefur starfað á Veð- urstofu íslands og var yftr- maður jarðeðlisfræðisviðs stofnunarinnar til 2003. Hann hefur ígildi doktors- prófs í jarðskjálftafræðum. Fákurfærlóðir Borgarstjórinn í Reykja- vík veitti í gær Bjama Finns- syni, formanni Hesta- mannafélagsins Fáks, form- legt fyrirheit um að félagið fái til ráðstöfunar hesthúsa- lóðir í Almannadal á Hólms- heiði. Þetta er gert eftir sam- þykkt borgarráðs á tillögu borgarstjóra um málið. Gert er ráð fyrir að hægt verði að hýsa allt að 1.400 hross á svæðinu. „Það hefúr verið beðið eftir þessum áfanga í ein tíu ár,“ segir Bjami. „Út- hlutun lóðanna verður hafin strax og við vonumst til að framkvæmdir hefjist næsta vor.“ Ráðherra- veisla Fjórir ráðherrar hafa boðað komu sína á form- lega opnun Háskólaseturs Vestfjarða í nýuppgerðu húsnæði þess í dag. Þeir em Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mennta- málaráðherra, Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Einar Kr. Guðfinnsson sjávarútvegs- ráðherra og Geir H. Haarde utanríkisráðherra. Gert er ráð fyrir að samningur á milli Háskólasetursins ann- ars vegar og menntamála- ráðuneytis og iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis hins vegar verði undirritaðir á opnuninni að því er fram kemur á bb.is. Málið í tengslum við skopteikningar Jyllands-Posten af Múhameð spámanni á sér ákveðna samsvörun í málum Salmans Rushdie og Spaugstofunnar sem sökuð voru um guðlast á sínum tíma. Margir bíða því eflaust spenntir eftir því hvernig Spaug- stofan mun taka á málinu en skemmst er frá því að segja að hún tekur ekki á því. Að sögn Pálma Gestssonar geta þeir sem eru íslamstrúar bara gert sitt grín sjálfir. Múhameð ekki í Spai „Það varsvaka- . . . -i leg mugæsmg. V Hríngt í okkur * um nætur og okk ur hótað helvítis- vist, öllum okk- ar börnum og afkomendum „Nei, við myndum aldrei fara að taka eitthvað sérstaklega múslimatrú fyrir. Þeir geta gert það sjálfir. En við fjöllum um okkar trú ef okkur sýnist svo,“ segir Pálmi Gestsson, Spaugstofu- maður með meiru. Athyglisverð eru viðhorf Pálma að grín sé takmörkuð auðlind og ekki til skiptanna. Menn munu, ef að líkum lætur, horfa með athygli á þátt Spaugstofumanna í kvöld. Þeir hafa, líkt og kunnugt er, gert sér mat úr fréttum vikunnar í skopi sínu í Spaugstofunni. En að sögn Pálma Gests- sonar verður ekkert komið inn á skopteikningar Jyllands-Posten og viðbrögðin við þeim sem telja má helsta fréttamál vikunnar, auk stóra Eurovision- málsins. Spaugstofumálið anno 1997 Máli Jyllands-Posten á sér ákveðna samsvörun í bæði því þegar Khomeini erkiklerkur kvað upp dauðadóm yfir rithöfundinum Salman Rushdie og máli sem íslend- ingar þekkja og tengist Spaugstof- unni. Frægur páskaþáttur þeirra árið 1997 olli verulegum skjálfta hér á landi. Séra Þórir Stephensen og Ólafur Skúlason biskup töluðu um guðlast og gekk málið það langt að Rannsóknarlögregla ríkisins rann- sakaði málið og varð úr mikið þref. Að endingu komst ríkissaksóknari, Hallvarður Einvarðsson, að þeirri niðurstöðu að ekki væri ástæða til ákæru og Spaugstofumenn sluppu með skrekkinn. Þeirra var hins vegar minnst með vandlætingu í ýmsum stólræðum þá páskana. Spaugstofunni hótað helvítisvist Pálmi Gestsson svarar spurningu þess efriis hvort þetta séu ekki sam- bærileg mál á þá leið að vissulega sé um gerólík samfélög að ræða. „Það var svakaleg múgæsing. Hringt í okkur um nætur og okkur hótað helvítisvist, öllum okkar börn- um og afkomendum. Hins vegar töldum við málið fullkomlega fárán- legt. Erum þó held ég flestir hverjir trúaðir menn. Auðvitað fannst okk- ur leiðinlegt að særa trúartilfinning- ar fólks eins og við virtumst hafa gert á sínum tíma. Það var aldrei ætlun- in." Spaugstofan í klemmu Pálmi segir einhverja heift sem maður óttist hafa losnað úr læðingi. Líkt og nú er. Hann telur ömurlegt til þess að vita. Og svo virðist sem kom- ið sé stríð milli tjáningarfrelsis Vest- urlanda og boða og banna hins íslamska heims. En Spaugstofan ætlar að halda sig til hlés og ekki taka á þeim átökum. Ragnar Reykás mun ekki brenna Jyllands-Posten eða DV til stuðnings Múhameð. Og Spaugstofan er einnig illa sett hvað varðar hitt fréttamál vikunnar: Stóra Eurovision-málið í tengslum við lag Silvíu Nóttar sem lak á netið. Spaugstofan telur sig skuldbundna því samkomulagi RÚV að ekki sé gert upp á milli keppenda. Nema að Geir Ólafsson mun, samkvæmt heimildum DV, koma eitthvað við sögu. En Geir datt óvænt úr keppni eins og menn muna. jakob@dv.is Skopmynd frá Jyllands-Posten Ekkertslikt grín verður I boöi Spaugstofunnar i kvöld. Birta og ylur freðin hjörtu Hið vandaða heimilistímarit Hér & nú slær ekki slöku við nema síður sé og slær eiginlega sjálft sig út í þessari viku. Svarthöfða hlýnaði um hjartaræturnar þegar hann fletti blaðinu og sá þar myndir sem tekn- ar voru í sumarnóttinni í Reykjavík í fyrra. Gat þar að líta frækna kappa úr íþróttaheiminum sem voru að gera sér glaðan dag (nótt) með lönd- um sínum. Allt í cinemaskóp og teknikolor út af hinni einstöku birtu. Freðinn kroppur Svarthöfða fýllt- ist sem sagt tilhlökkun til vorsins sem bráðum verður á næstu grös- um. Þá verður stuð. En þetta er ekki allt sem Hér & nú leiðir í ljós myndum sín- um. Það rann upp fyrir Svart- höfða að í raun er Reykjavík eins og barna- skólarnir 1 gamla daga; Hvernig hefur þú það? „Meðan hjartað slær (900-2005) erég igóðu lagi/'segir Tómas Hermannsson, einn afþátttakendum í hinni frægu Eurovision-keppni.Já, ég eraö vona að menn geti nú bara skemmt sér í kvöldyfir keppnl allra lándsmanna. Megi besiáfágið i/lnna. Stóra Eurovision-málið er gengiö alltoflangt og menn skyldu hafa í huga að þetta er söng- lagakeppni og ekkert annað. Og efég má aðeins misnota aðstöt á tónleika í Salnum næsta miðvikudág og fímmtudag með I tvísetin borg. Gamlir ráða rfkjum á daginn með sitt settlega kurteishjal. Á nóttinni leikur unga fólk- ið lausum hala. Besta af öllu er að borgin fer ekki í mann- greinarálit og hlúir að öll- um jafnt; það er bjart all- an sólarhringinn svo næturdýrin þurfa ekki að ráfa um óupplýst í myrkrinu. Þetta er jafnrétti og bræðralag sem bragð er að. Já, allt er þetta frá- bærara en orð fá lýst. Við búum í best nýttu borg í heimi. Það er aldrei dauður punktur. Það kann að vera að á öðr- um byggðum bólum sé jafn mikil sumarbirta og hér hjá okkur en vandamálið er bara það að þeir stað- ir þolá eiginlega ekld dagsbirtu allan arhringinn; eru bara svo hrikalega leiðinlegir að engu tali tek- ur. Eða hefur einhver heyrt um stuð- nætur í Alaska eða kannski í Lapp- landi? Kráarrölt í Kúlúsúkk? Engum ætti að finnast einkenni- legt að menn verði ástfangnir af Reykjavík að sumri. Fyrir djammara er borgin eins og aJdingarðurinn Eden. Bara skemmtilegri. Svarthöfði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.