Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2006, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006
Fréttir JJV
Drukkinn
á 119
Lögreglan í Hafnarfirði
stöðvaði ökumann seint í
fyrrakvöld á 119 kílómetra
hraða við Hvassahraun, en
þar er 90 kílómetra há-
markshraði. hegar lögregl-
an talaði við ökumanninn
reyndist hann vera töluvert
við skál. Áfengismagn
mannsins var kannað og
reyndist hann vera með 0,9
prómill í blóðinu, langt yfir
mörkum. Maðurinn var
færður á lögreglustöð þar
sem blóðsýni var tekið úr
honum. ökumaðurinn á
yfir höfði sér sekt og tíma-
bundna ökuleyfissviptingu
að því er fram kemur á vef
Víkurfrétta.
Enginn strætó
við göngin
Bæjarráð Akraness segir
það ekki á sínu valdi að sjá
til þess að strætisvagninn
sem gengur milli Akraness
og Reykjavíkur stoppi á
bflaplaninu við Hvalfjarð-
argöngin. Það var Ása
Hólmarsdóttir sem vildi að
bæjaryfirvöld settu upp
stoppistöð við göngin.
„Bæjarráð þakkar fyrir-
spurnina en þar sem samn-
ingur um strætisvagnaferð-
ir á milli Akraness og
Reykjavíkur er eingöngu á
milli Akraneskaupstaðar og
Strætó bs. og nágranna-
sveitarfélög Akraness eru
ekki aðilar að samkomulag-
inu getur bæjarráð ekki
orðið við erindinu," segir
bæjarráðið.
Þrjú innbrot
Þrjú innbrot voru til-
kynnt í umdæmi Lögregl-
unnar í Hafnarfirði, Garða-
bæ og Álftanesi í vikunni. Á
þriðjudag var brotist inn í
íbúðarhús á Hvaleyrarholti
í Hafnarfirði og á fimmtu-
dag var farið inn í íbúðar-
hús í Hvammahverfi. Þá
leikur grunur á að brjótast
hafi átt inn í hús í Garðabæ
á fimmtudagsmorgun, en
viðvörunarkerfi fór í gang
og hefur sennilega fælt
þjófana, þar sem ekki var
farið inn í húsið. Þessi mál
eru öll í rannsókn hjá lög-
reglu að því er fram kemur
á vef Víkurfrétta.
Gísli Guðmundsson, bóndi og athafnamaður, var sýknaður í Héraðsdómi Reykja-
víkur fyrir brot á vopnalögum. Héraðsdómur taldi ekki vera hægt að sanna að
skriðdrekalíki í hans eigu væri hættulegt. Vopnalögin eru mjög vel skilgreind og
hvorki skriðdrekar né skriðdrekalíki falla undir þau. Einungis vopnin sem þeir
kunna að vera búnir falla undir vopnalögin og þvi var Gisli sýknaður.
Skriðdrekalíki Gisli Guð-
mundsson varsýknaðurfyrir
að flytja inn skriödrekallki.
Gísli Guðmundsson, bóndi á Suðurlandi og athafnamaður, hef-
ur verið sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir brot á vopna-
lögum. Gísli var ákærður fyrir eign á skriðdreka sem hann fékk
frá Bandaríkjunum. Taldi ákæruvaldið að þarna væri um stór-
hættulegt stríðstól að ræða en gat ekki sannað sekt vegna þess
að vopnalögin eru ítarlega skilgreind í lögum. Taldi héraðsdóm-
ur að lögin næðu ekki yfir skriðdreka eða skriðdrekalíki.
„Ég efaðist aldrei um að þetta
mál félli með sýknu," segir Gísli
Guðmundsson, bóndi og athafna-
maður, um úrskurð Héraðsdóms.
Þegar blaðamaður náði í Gísla var
hann staddur á hersýningu í
Moskvu þar sem hin ýmsu
stríðstæki voru til sýnis og þar á
meðal rússneskir skriðdrekar. Gísli
segist ánægður með úrskurðinn og
furðar sig um leið á þessum málatil-
búningi.
„Ég er nú ekki að fara
að finna mér fleiri
skriðdreka hérna í
Moskvu."
Ekki gerður upptækur
„Ég hlakka bara til að koma heim
og fara með hann heim á jörðina
mína," segir Gísli en skriðdreki hans
var ekki gerður upptækur og fær
Gísli að aka frjálst um á honum
Héraðsdómur Gísla finnst undarlegt að
réttarkerfiö sé að eltast við sig.
inn tók undir þetta álit Gísla því ekki
var hægt að sýna fram á að hlaupið
væri skaðlegt.
Ekki að kaupa annan dreka
„Ég er nú ekki að fara að finna mér
fleiri skriðdreka hérna í Moskvu,"
segir Gísli og hlær að þeirri tilviljun
að blaðamaður hafi náð honum á
hersýningu. Gísli er í fríi í Moskvu og
hefur mjög gaman af hersöfnum og
fleiru því tengdu. Hann segir að
skriðdrekarnir á safninu hafi verið
afar flottir og sagði þá svo sannarlega
Farinn til Rússlands Þegar
DV náði [ Glsla í gær var hann
staddur á hersýningu I Moskvu.
pi«
heima á jörð sinni.
Gísli sagði áður í viðtali við DV að
skriðdrekinn væri skaðlaus með öllu
og hlaup sem er framan á honum
væri algjörlega meinlaust. Dómur-
ekki vera nein skriðdrekalfld.
Ákæra byggð á sandi
„Þessi ákæra var byggð á sandi og
er úrskurðurinn í samræmi við það,"
segir Einar Þór Sverrisson, lögfræð-
ingur Gísla Guðmundssonar.
Einar segir að þetta sé meinlaust
tæki með einhverjum saklausum
rörum. Hann segir að þetta væri
svipað og einhver myndi setja rör
framan á þyrlu og hann yrði svo
ákærður fyrir að vera á vopnuðu far-
artæki.
valur@dv.is
Þóra Ásgeirsdóttir, formaður Hestamannafélagsins Gusts, hætti á fimmtudag
Seldi sitt eigið hesthús og keypti jörð í Borgarfirði
Félagsmenn í Hestmannafélag-
inu Gusti eru margir hverjir afar
ósáttir við Þóru Ásgeirsdóttur, frá-
farandi formann félagsins, en hún
hætti störfum á félagsfundi á
fimmtudagskvöld og gekk í kjölfarið
út af fundinum.
Þóra sagði í samtali við DV í gær
að hún hefði ekki hætt sem formað-
ur vegna málefnalegs ágreinings en
heimildir DV herma að félags-
mönnum hafi ekki þótt Þóra ganga
Hvað liggur á?
nógu rösklega fram í þeirri viðleitni
að bjarga félaginu frá því að þurrkast
út. Hópur verktaka undir fpgystu at-
hafnamannsins Engilberfs Runólfs-
sonar hefur verið iðinn við að kaupa
upp hesthús á svæðinu og hafa fé-
lagsmenn biðlað bæði til bæjaryfir-
vaida í Kópavogi og stjórnar félags-
ins að grípa til aðgerða til að stöðva
uppkaup hesthúsanna.
Samkvæmt heimildum DV hefur
fjölskylda Þóru selt sitt hús á svæð-
inu fyrir fimmtíu milljónir króna, fé-
„Það liggur á að koma íbúðinni Istand/'segir Úlfar Linnet, verkfræðingur og grínisti.„Ég er
nýbúinn að fá íbúöina þannig að ég vinn svolítið í henni. Svo liggur á að lifa bara fjölskyldu-
lífinu hérna heima. Ég er siðan með uppistand á næsta fimmtudag á Gauki á Stöng. Það er
fyrir Krabbamejnssjúk börn og hvet ég alla til þess að mæta og leggja góðu málefni
lið."
lagsmönnum til lítillar ánægju sem
telja hana hafa svikið sig. Þóra og
fjölskylda hennar hafa í staðinn
keypt jörð í Borgarfirði.
Bjarnleifur Bjarnleifsson, sem tók
við formennsku af Þóru, sagði í sam-
tali við DV í gær að hann vildi ekkert
tjá sig um fortíðina. „Félagsfundur-
inn samþykkti að kjósa þriggja
manna nefnd til að fara í viðræður
við Kópavogsbæ um hvort það sé
hægt að fá annað land fyrir félagið
og síðan verða næstu skref að koma
í ljós í framhaldinu,"
sagði Bjarnleifur.
Athafnamennirnir
hafa nú þegar keypt
upp 37% hesthúsanna
á svæðinu.
Þóra Ásgeirsdóttir
Hætt sem formaður
Gusts og seldi hest-
hús sitt fyrir 50 millj-
ónir. DV-mynd Guð-
mundur