Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2006, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2006, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 Fréttir DV SyntáHöfn Ókeypis er í sund í dag í sundlauginnni á Höfn í Homafirði sem verður opnuð eftir að hafa verið lokuð um skeið vegna við- gerða. „Verkið tók lengri tíma en upphaflega var gert ráð fyrir og spilaði þar ýmis- legt inn í eins og vill verða við endumýjun gamaila mannvirkja," segir á homafjordur.is. Þar kemur ff am að frítt sé í laugina í dag bæði í tilefni af því að nýr dúkur sé kominn í laug- ina og vegna þess að dráttur hafi orðið á opnun iaugar- innar. Homfirðingar hyggja svo á gerð nýrrar sundlaugar og em að velja henni stað. Hnífsdælingar sjálfir með þorra í kvöld verður haldið þorrablót Hnífsdælinga í 58. sinn og gestimir koma sjálfir með mat og drykk. Á vefsíðu bb.is kemur fram að samkvæmt Gyðu Jónsdóttur séu um 150 manns búnir að skrá sig á þorrablótið og koma allir með matinn sinn í trogum eins og tíðkaðist að bera fram mat til foma. Allir Hnífsdælingar hljóta að fjöl- menna á þessa skemmtun því heimatilbúin skemmtiat- riði verða fólki til skemmtun- ar. Að skemmtiatriðum lokn- um verður slegið upp dansi- balli með bandi sem kallar sig Hjónabandið. Strákamir okkar vonbrigði? Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfarí meistaraflokks kvenna hjá Stjörnunni. „Miðaö við meiðsli og áföll sem liðið lenti í er varla hægt að tala um vonbrigði að ná 7. til 8. sæti. Þó er spurning hvort það hefði mátt bregðast öðru- vísi við í siðasta leiknum. Önn- ur úrslit féllu okkur i hag; Dan- ir lögðu Rússa, því var mjög sárt að tapa fyrir Norðmönn- um. Ég held þó að leikmenn- irnirséu hvað sárastir. En svona er bara boltinn." Hann segir / Hún segir „Mér finnst árangurinn, þegar upp er staðið, vera viðunandi. Strákarnir stóðu sig frábær- lega í flestum leikjunum. En þeir eru orðnirþað góöir, meö það marga heimsklassaleik- menn, að maður býst við miklu frá þ'eim. Ég held að þreytan og meiðslin hafi sagt til sin. Á næsta stórmóti ætti þjóðin og leikmennirnir sjálfir að hafa trú á því að þeir geti náð langt." Harpa Melsted, landsliðskona og fyrirliði Hauka. Deilan um húsgagnaverslunina Mi Casa heldur áfram. Húsgagnahöndlarinn og predikarinn Árni Björn Guðjónsson ætlar sér að kæra trúaða trúbadorinn, Guð- laug Laufdal, fyrir meiðyrði. Guðlaugur sakar Árna um að hafa rænt húsgögnum úr sínu eigin þrotabúi upp á margar milljónir. Einnig segir Guðlaugur að Árni hafi reynt að selja sér stolnu húsgögnin. Áður fyrr predikuðu þeir saman á Ómega. DV greindi frá því í byrjun síðasta árs að Árni Björn Guðjónsson, fyrrverandi eigandi húsgagnaverslunarinnar Mi Casa, sakaði trúaða trúbadorinn, Guðlaug Laufdal, um að hafa stolið frá sér lager og nafni húsgagnaverslunarinnar. Árni hefur kært Guðlaug fyrir fjársvik og vanefndir á samningi en Guðlaugur segist hafa ætlað að hjálpa Árna. Deilan heldur áfram á nýju ári með vænt- anlegri nýrri kæru. „Hann gerði það," segir Guðlaug- ur Laufdal þegar hann er spurður um orð sín í bréfi sem hann sendi til lögfræðings Árna Björns Guðjóns- sonar. í bréfinu segir Guðlaugur að Árni Björn hafi stolið sínu eigin þrotabúi. í meiðyrðamái Þessi ummæli Guðlaugs um glæpi og þjófnað fara fyrir brjóstið á Árna Birni og hann ætlar í mál. í bréfinu, sem Guðlaugur skrifar und- ir, stendur meðal annars:. „Árni ákærir mig fyrir þjófnað á húsgagna- verslun sinni og á vörum sem ég ekki stal heldur rændi Árni Björn Guð- jónsson sjáifur sitt gigið þrotabú." Árni Björn er ekki sáttur við þessi ummæli og hann ætlar í annað mál. „Ég hef ekki framið neina glæpi. Ég ætla í meiðyrðamál og ætla ekk- ert að stoppa í þessu máli. Ég læt hann ekki komast upp með þetta. Síðan er hann á Ómega að predika guösorð, þetta er svívirðilegt," segir Árni Björn. Guð fyrirgefur Guðlaugur Laufdal gefur lítið fyr- ir ásakanir Árna Björns, segir þetta leiðinlegt mál en fyrirgefur honum þó: „Ég fyrirgef honum allt. Guð fyr- irgefur honum líka." „Árni Björn bað mig að ég yrði skrifaður fyrir rekstrinum á þessari húsgagnaverslun vegna þess að hann var gjaldþrota og sömuleiðis fyrirtækið hans. Ég ædaði aldrei að fara í þennan rekstur, ég ætlaði bara að hjálpa honum og veita honum húsaskjól. Síðan var ég ekki fyrr bú- inn að skrifa undir þetta blað en hann byrjar að hóta mér," segir Guðlaugur. Neitaði að borga „Ég lét þetta allt í hendurnar á honum," segir Árni Björn Guðjóns- son sem eitt sinn átti húsgagnaversl- unina Mi Casa. „Ég var hættur með verslunina áður en Guðlaugur Laufdal kom til sögunnar. Hann kom síðan og bauðst til þess að hjálpa mér. Hann sagðist eiga nóg af peningum og endalaust lánstraust. Hann ætlaði að setja upp búðina og kaupa 300 fermetra húsnæði. Ég átti að vinna hjá honum en ég sagði að ég myndi aðstoða hann við þetta. Hann bauð mér að vera á prósentum og svona," segir Árni Björn og bætir því við að hann hafi látið Guðlaug fá lykla að lagernum. „Svo fór ég að sjá að það var ekk- ert að marka hann. Konan hans sagði mér að hann myndi aldrei gera þetta. Þá fór ég að rukka hann fyrir nafnið og vinnuna mína, þá neitaði hann að borga," segir Árni Björn. Stórveikur maður Guðlaugur telur ekki allt með felldu hjá Árna Birni. Hann segir Árna Björn hafa mætt hjá skipta- stjóra og lýst því yfir þar að það væru engar vörur í þrotabúinu þrátt fyrir að það væri fullt af húsgögnum. „Þannig rændi hann sitt eigið þrotabú. Hann var með þessar vörur út um allan bæ og kom þeím undan víða. Nú eru vörur farnar að skjóta upp kollinum fyrir margar milljónir út um allan bæ, þetta er svo skraut- legt," segir Guðlaugur og bætir við að menn sem hegða sér svona hljóti að vera stórveikir. Trúaði trúbadorinn Guðlaugur Laufdal segirÁrna Björn hafa misnotað sig. Misnotaður Guðlaugur telur sig hafa farið illa út úr þessu máli og að mannorð hans hafi beðið hnekki, hann segist ekki hafa getað svarað fyrir sig og ekki talið það æskilegt vegna starfs síns. „Ég get ekki verið þjónn guðs og síðan farið og höggvið mann og annan. Það er augljóst að ég var bara misnotaður en svona getur bara lífið verið, þetta er ekki fyrsti maðurinn sem platar mig. Mér fannst þar sem ég er í kristilegu starfi að ég væri verri maður ef ég færi að ákæra mann opinberlega sem væri veikur á geði, mér fannst það ekki sæma manni í minni stöðu. Svona getur nú lífið verið," segir Guðlaugur. atli@dv.is Engin þörf á myndavélum á heimavist Menntaskólans á Egilsstöðum Skólameistari ME hótar að loka heimavist „Þetta er fáránlegt," segir Helgi Ómar Bragason, skólameistari Menntaskólans á Egilsstöðum, í samtali við DV um úrskurð Persónu- vemdar þar sem skólastjórn ME er bannað að hafa eftirlitsmyndavélar á göngum heimavistar skólans. „Ég tel þetta vera íþyngjandi stjómvaldsákvörðun af hálfu Per- sónuverndar. Það er annað hvort eitthvað bogið við Persónuvernd eða lögin sem fólkið þar fer eftir," sagði Helgi Ómar sem veit þó ekki hvort stjórn skólans muni hlíta úr- skurðinum. Helgi Ómar sagðist jafnvel búast við því að heimavistinni yrði lokað vegna þessa úrskurðar enda væri nær ómögulegt fyrir stjórn skólans að hafa eftirlit með nemendum sem margir eru ekki enn lögráða án myndavélanna. Bergdís Ýr Guðmundsdóttir, for- maður nemendafélags skólans, það afar íþyngjandi fyrir nemendur sagði í samtali við DV í gær að hún að vita af þessum vélum í gangi allan fagnaði þessum úrskurði enda væri sólarhringinn. Helgi Ómar Bragason Skólameistari ME hótar að loka heimavist skólans fyrst hann fær ekki að hafa eftirlitsmyndavélar Menntaskólinn á Egilsstöðum Skólastjórn verður að fjartægja mynda vélar afheimavistinni fyrir lok sumars

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.