Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2006, Síða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2006, Síða 43
T3V Helgarblað LAUGARDACUR 4. FEBRÚAR 2006 43 „Berglind stóð með mér í gegnum þetta allt sem var örugg- lega ekkert auðvelt." reglulega reyna á þolmörkin." Dæmi um það sé þegar hann hafi ákveðið að skipta um á vetrardekkin á bílnum sínum. Verkið hafi tekið tvo tíma en hann hafi lokið því. „Ég var ánægður með að hafa klárað þetta en samt aðallega þreytt- ur," segir hann brosandi. Innhverf hugsun eftir slys í dag hefur Bergur sætt sig við sitt hiutskipti og hefur það alls ekki svo slæmt. Hann mun klára viðskipta- fræði í Háskólanum á Akureyri í haust, býr í ágætishúsnæði, er giftur og nýbúinn að eignast tvíbura. „Að mínu mati festast sumir í sjálf- um sér eftir svona slys og eru algjör- lega uppteknir af sér og sínum vanda- málum. Fólk verður hins vegar að hleypa einhverju öðru að líka," segir hann en bætir við að fyrst eftir svona áfail sé eðlilegt að hugsunin verði svo- lítið innhverf enda hafi fótunum, í orðsins fyllstu merkingu, hreinlega verið kippt undan. „Það fer auðvitað eftir persónu- leika hvers og eins en maður verður að sætta sig við gefinn hlut og halda áfram með lífið. Ég veit að ég stend ekki í sömu sporum og aðrir en hef samt mín markmið sem ég stefni að og veit að ég hef fullt erindi inn í póli- tíkina og kem þangað með allt aðra vinkla á hlutina." Barneignir með hjálp tækn- innar Eiginkona Bergs, Berglind Gylfadóttir, stóð eins og klettur við hlið hans þegar hann gekk í gegn- um þessa erfiðu lífsreynslu. í dag eru þau gift og eiga saman yndis- lega tvíbura, strák og stelpu sem eru ekki nema rétt um eins mán- aðar gömul. „Berglind stóð með mér í gegn- um þetta allt sem var örugglega ekkert auðvelt," segir hann og lítur upp og bætir svo við: „Sérstakiega ekki þegar maður fór í þennan sjálfsgír. En þá var gott að geta bakkað út úr honum." Hann segir læknana hafa sann- fært sig um að þrátt fyrir fötlunina myndi hann geta eignast börn í framtíðinni og mikil gleði þegar tvíburarnir voru á leiðinni. „Við þurftum á aðstoð að halda, það er ekkert leyndarmál,“ segir hann og bætir við að tæknin sem sé til staðar sé ótrúleg og hafi reynst þeim vel. Berglind hafi orðið ófrísk eftir að þau hafi reynt í rúmt ár frá því að þau byrjuðu að huga að þessu þangað til meðferð lauk. „Læknirinn spurði okkur ein- faldlega hvað við vildum mörg börn í fyrstu skoðuninni," segir hann hlæjandi en bætir við að þau hjónin hafi lítið sofið eftir að tví- burarnir komu í heiminn. „Þetta eru mikil viðbrigði, þú getur ekkert sofið á þínu græna og haft það gott. Þetta er tvöföld vinna en ótrúlega skemmtileg og gefandi og ég sé ekki eftir neinu. Maður fær kannski 5-6 tíma á nóttunni en leggur sig svo aðeins yfir daginn svo ég er ekkert að kvarta. Þetta er samt mikil vinna og þá sérstaklega fyrir frúna en það breytir því ekki að mig langar í fieiri. Það er ótrúlegt að fylgjast með þeim og sjá þau dafna frá degi til dags,“ segir hann stoltur. Hann segir þau hjónin þó ætla að njóta tímans með tvíburunum áður en þau fari út í frekari barna- hugleiðingar. Suðurvesturhornið ræður öllu En aftur að pólitíkinni. Bergur segist ánægður með starf Sjálf- stæðisflokksins hingað til en að alltaf sé hægt að gera betur. „Ég hlakka til prófkjörsins og vona að við náum góðum árangri svo fólk sjái að við ætlum okkur að vinna fyrir heildina. Sveitarfélagið hefur verið rekið með hagnaði sem er afar mikilvægt því þau sveitarfé- lög sem rekin eru með halla eru einfaldlega sett í gjörgæslu og þurfa að glíma við. fólksfækkun og aðra hörmulega hluti," segir hann. Spurður um sameiningu segist hann fullviss um að Akureyri hafi átt að sameinast við nágranna- sveitarfélögin. „Það er ekkert vit í að reka þetta hvort með sinni yfir- stjórninni og framkvæma hiuti fyr- ir svo stjarnfræðilegar upphæðir að maður skilur ekki hvernig hægt er að hafa efni á þessu. Við verðum að vera ákveðið mótvægi við Reykja- vík og þá þýðir ekkert annað en að við séum hátt í 30 þúsund. Þá fyrst getum við farið að berja í borðið og •krefjast þess að eitthvað almenni- legt sé gert fyrir okkur því suðvest- urhornið ræður öllu eins og staðan er í dag.“ Bergur segist hafa orðið hryggur þegar sameiningin hafi verið felld og segir líklegustu skýringuna þá að fólk hafi verið hrætt. Það viti hvað það hafi en viti hins vegar ekki hvað það hefði fengið. „Fólk hefur það gott og vill ekki missa það sem það hefur en ég held að við séum ekki að gera okk- ur grein fyrir hverju við gætum náð fram ef við myndum standa saman. Það gera sér líklega margir ekki heldur grein fyrir að þótt við séum sameinuð sé einfalt að halda áfram með lókal stemmningu með þorra- „Við þurftum á að- stoð að halda, það er ekkert leyndarmál." blótum og öðru slíku," segir hann hugsi. Álverið á Húsavík Sama hvernig fer í prófkjörinu ætlar Bergur að búa áfram á Akur- eyri. Hann prufaði tímabundið að búa á höfuðborgarsvæðinu og seg- ir það alls ekki eiga við hann. „Hér vil ég vera og vinna í því að gera bæinn enn betri. Ég held að það sé afar æskilegt að okkur takist að rífa upp miðbæinn og vil þá helst samkeppni um svæði Akur- eyrarvallar en mikilvægast finnst mér að fá þar vísi að fjölskyldu- garði og að svo sé hægt að skoða hvort eitthvert pláss sé eftir fyrir verslanir," segir Bergur. Varðandi væntanlegt álver telur hann besta lausnina að það verði staðsett á Húsavík. Eyjafjörðurinn sé fallegur og ekki til þess gerður að bera slíkt mannvirki. „Hingað koma skemmtiferðaskip inn fjörð- inn og þá er ekki fallegt til þess að hugsa að við blasi álver með allri þeirri mengun sem því fylgir auk þess sem ég tel að hér sé of mikið staðviðri til þess að þetta gangi upp. Mengunin myndi einfaldlega setjast út á hafið, allavega eins og veðrið er í dag. Það þarf ákveðinn næðing til að feykja þessu í burtu." Missum krakkana suður eftir nám Þegar talið berst að Reykjavíkur- flugvelli hitnar Bergi í hamsi. Hann segir af og frá að völlurinn geti ver- ið færður til Keflavíkur. „Suðurnesjamenn geta ekki hugsað sér að hafa ekki sólarhings- vakt á skurðstofunni hjá sér og eru ekki tilbúnir að flytja sína sjúklinga á bráðamóttökuna í Fossvoginum en finnst samt allt í lagi að láta okk- ur fijúga til Keflavíkur og aka síðan Reykjanesbrautina. Það einfaldlega gengur ekki upp. Það hlýtur að vera hægt að finna einhvern annan stað en Vatnsmýrina en Keflavík kemyí hins vegar ekki til greina." Varðandi atvinnumálin á Akur- eyri segir Bergur ekki nógu vel staðið að þeim málum. Það sé hins vegar takmarkað hvað bæjarfélagið geti gert. Landsmálapólitíkusar verði að leggja sitt af mörkum. „Hingað hafa verið færð störf sem krefjast lítillar eða engrar menntunar líkt og símasvörun ríkisstofnana. Það er hins vegar bara grín þvf við þurfum á ein- hverju bitastæðu að halda. Menn geta hins vegar ekki hugsað sér aíi sleppa takinu af Matvælastofnun því það er elcki hugsað út fyrir þeirra svæði. Staðreyndin er að hér er atvinnuleysi of mikið þótt Kaupfélagið hafi verið að gera ágætishluti. Eins mætti standa betur að háskólanum því við þurf- um nánast að toga allt út með töngum og missum svo krakkana suður eftir að námi lýkur," segir Bergur og það er greinilegt að þessi mál skipta hann miklu máli. Fjölskyldunni þakklátur Sjálfur vonast Bergur til að fá starf í banka-, viðskipta- eða trygg- ingageiranum eftir útskrift í vor. Stuttu eftir slysið bauðst honum starf hjá Verði sem hann þáði mtSF þökkum og hefur því reynslu í tryggingageiranum. „Ég var mjög þakklátur fyrir það tækifæri og vona bara hið besta. Málið er samt að þótt margt hafi verið til bóta í aðgengi fatlaðra er enn þá erfitt að komast að á hinum ýmsu vinnustöðum en það þýðir ekkert að vera svartsýnn," segir Bergur og vill að lokum nýta tæki- færið og þakka sínum nánustu fyrir hjálpina fyrr og síðar. „Fjölskyldan aðstoðaði mig á allan mögulegan og ómögulegan hátt bæði þá og nú og ég get hrein- lega seint endurgoldið það." indiana@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.