Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2006, Page 44

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2006, Page 44
44 LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 Sviðsljós W Fyrirsætan Elísabet Thorlacius vekur ávallt hörð viðbrögð hvar sem hún fer. Femínistar hafa litið hana hornauga en stór hluti karlmanna dáir hana enda hefur hún verið ófeimin að fækka fötum í gegnum tíðina. Elísabet hefur leitt gagnrýnisraddir hjá sér. Hún segir stolt að silíkonbrjóstin hafi styrkt sjálfs- mynd hennar og hún sakni gömlu Elísabetar lítið en fáir vita að fyrirsætan var eitt sinn feitlagin fótboltastelpa. Hvaðan ertu? „Ég er gaflari, Hafnarfirðingur í húð og hár. Ég var í öldutúnsskóla og meðal annars fótbolta með Haukum." Varstu góð í fótbolta? „Nei, alls ekki. Hauk- amir gáfust upp á mér og settu mig í markið. Það gekk ekki heldur þannig að ég bara hætti. Já, svona týpísk, þybbin fótboltastelpa. Ég var alls ekki myndarleg á þeim tíma.“ Varstu bolla? „Já, guð minn almáttugur. Ég var mjög þétt á velli. Ég var hálffeit þangað til fyrir svona fjórum árum. Ég grenntist ekki fyrr en ég var um tvítugt." Eftir grunnskólann fór Elísabet í Flens- borg en fann sig ekki í náminu. „Ég klöngraöist í gegnum þijár annir í Flensborg. Ekkert með neitt rosagóöum árangri. Ég held ég sé með þrjátíu einingar tæp- ar." Ekki þinn heimavöUur? „Nei, ekki þá. Ég ætla að reyna aftur núna í haust. Gá hvort ég sé ekki búin að þroskast eitthvaö." Finnst þér þú orðin of gömul til að setjast aftur á skólabekk? „Ég hugsa ekki um mig þannig. Ég er ekki svona fullorðinstýpa. Ég held ég eigi ágætis sam- Hvað kom til að þú varstmeð söfnun? „Þetta var í kringum jólin. Maður á að vera góður á jólunum. Mig langaði til að setja upp tískusýningu, ég hef gert talsvert af því upp á síðkastið, og langaði til að styrkja Unicef. Ég fékk nokkar stelpur til liðs við mig, módel sem ég þekki. Þær vom allar til í þetta enda alveg frábærar stelpur. Þetta heppnaðist alveg rosalega vel og allir vom í skýjunum yfir að geta lagt þessu málefiú lið, bæði áhorfendumir og fyrirsæt- umar. Þetta var æðislegt." Ertu bamamanneskja? „Já, ég elska böm. Mig langar mikið að fara í bamasálfræði. Ég settist ein- hvem tímann niöur með sjálfri mér og hugsaði hvað ég vildi verða í framtíðinni og það var útkoman. Ég hef áhuga á að vinna með bömum, til dæmis böm- um sem em misþroska, eða með einhverfu. Þessi böm eiga skilið sinn séns. Þótt það sé klént að segja það þá langar mig til að gefa af mér á þann hátt. Eg held að maður læri líka mikið af þess háttar vinnu." Feimin og helst eldd á karlmönnum Það vekur athygli blaðamanns að Elísabet tekur ekki af sér, heldur vefur kuldaúlpunni sem hún er klædd í þétt utan um sig. Ertu féimin? „Þegar ég sest niður á kaffihúsi eða einhverjum slíkum stað fer ég eiginlega aldrei úr neinu þótt mér sé ógeðslega heitt Mér finnst það óþægilegt. Mér finnst ég svo berskjölduð. Þetta hljómar kanski skringilega, en ég veit ekki hvað þetta er. Ég er mjög feimin að eðlisfari" •*s> nm-í 18 ára Feit fótboltastelpa. leið með sautján ára krökk- um," segir hún og hlær. Hætti í framhaldsskóla Hvað fórstu að gera eftir að þú hættir í framhaldsskóla? „Ég fór bara að vinna og djamma. Flutti að heiman þegar ég fór í samband. Hætti í sambandinu og flutti aftur heim, svona eins og gengur og gerist Er búin að vinna í nærfatabúð, hætti þar, svo skrif- stofu, hætti þar, svo bakarí, hætti þar." Hvað ertu að geranúna íyrir utan fyrirsætustörBn? „Ég bý héma í miðbænum og er bara að setja upp tlskusýningar og ýmislegt þess konar." Er eitthvað upp úr því að hafa? „Nei, eiginlega ekkL Ég er eiginlega að leita mér að vinnu. Allavega þangað til ég fer í skólaaftur." Hélt góögeröatískusýn- ingu Elísabet hélt nýverið und- irfatasýningu þar sem hún safnaði saman fyrirsætum sem allar gáfu vinnu sína og ágóðinn rann óskertur til góð- gerðamála hjá Un- icef, Bamahjálp Sameinuðu þjóð- anna. Hvemig ganga ástarmálin? „Mér helst ekkert á karlmönnum, ég er alveg snillingur í að lenda í ein- hveijum fábjánum. Það er eins og þeir þefi mig uppi. Ég tek mér oft svona strákapásur og pæli ekk- ert í karlmönnum í góða stund." Ertu ístrákapásu núna? „Já, ég hef ekki sofið hjá í einhveija mánuði. Síðast einhvem tíma í fyrra," seg- ir Elísabet og flissar. „Það er eflaust til fullt af ftoum strákum þama úti, ég hef bara ekki kynnst neinum þeirra." Helduröu að það sé vegna þess að þú sérthlut- gerð út af fyrirsætustarfínu? „Nei, það held ég ekki Bara einhver óheppni hjá mér." Bamamanneskja Langar þig til að eignast böm sjálf? „Ó, já." Ogfínna hinn eina rétta? „Ég trúi eklri á hugtakið „hinn eini rétti". Allavega ekki þessa stundina. Ég held að það sé ekki til ein rétt manneskja fyrir mann. Fólk á vel saman eða illa. Þetta er alltaf málamiðlun, maöur þarf að leggja hart að sér til að láta samband ganga upp. Allt of margir fara í samband, eignast böm ung, lenda í fjárkröggum og skilja. Ég vil frekar vera ein og stundum einmana frekar en að lenda í skilnaði og leiðindum." Hefuröu elskaö mann? „Já, einu sinni var ég rosalega ástfangin. En það samband endaði eins og oftvillverða." Ertu skUnaðarbam? „Nei ekki beint Mamma mto og pabbi vom kærustupar en þeirra leiðir skildu stuttu eför að ég fæddist. Ég er alin upp af mömmu og stjúpföður mínum." Umgengstu pabba þinn? „Já, já, ég umgengst hann milriö núna. En mis- Ímikiö í gegn um tíðina, var samt hjá I honum um helgar og svoleiðis þegar ég var ung. Við erum búin að kynnast vel núna og erum voðalega miklir ■ vinir í dag. Eiginlega meiri vinir en feðgin. % fékk Thorlacius- nafiiiö frá honum. Þetta er svo virðingarvert nafn. Það em voða margir lögfræðingar í fjöskyldunrú hans aö mér skilst Ég vona að ég sé ekld einhver svartur sauöur," segir El- ísabet og hlær.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.