Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2006, Page 55

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2006, Page 55
Menning 3DV LAUCARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 55 Myrkir músíkdagar heíjast í dag með flutningi Caput á verkum íslenskra tón- skálda á Laugarborg í Eyjafirði að viðstöddum fyrirmönnum. Tónleikarnir verða myndlýstir af Halldóri Ásgeirssyni myndlistarmanni. SPPÍfe; I Halldór Ásgeirsson í Japan við frumflutn- ing a þeirri dagskrá sem opnar Myrka I músíkdaga síðar í dag norður í Eyjafirði. I , má sjá myndlýsingar hans við | tonlist Atla Heimis Sveinssonar. Tónleikar nyrðra verða endur- fluttir hér í Reykjavík á mánudags- kvöld í Salnum í Kópavogi. Verkin voru flutt með þessum móti í EXPO Dome á heimssýningunni í Japan á þjóðardegi íslands 15. júlí. Flutt verða sex íslensk tónverk eft- ir þá Atla Heimi Sveinsson, Snorra Sigfús Birgisson, Tryggva Bald- vinsson, Hafliða Hallgrímsson, Þorkel Sigurbjörnsson og Huga Guðmundsson. Lifandi vatnslita- myndir Halldórs Ásgeirssonar verða til um leið og tónlistin er flutt af hljóðfæraleikurunum. Málað á staðnum Halldór hefur um langt skeið unnið með ljós, liti og vatn. Hann lýsir myndverkum sínum við tóna- ljóð Atla Heimis, Til hafsins, og myndlýsingu sinni við Portrett nr. 7 eftir Snorra, sem helgað er Jóni Nordal, á eftirfarandi hátt: „Ákveðnar grunnhugmyndir liggja þar að baki eftir að hafa hlustað á verkin áður og gert tilraunir með birtingu vatnsins af glæruvarpa á hvítan flöt. Þó að sama efnisskráin sé flutt frá einum stað til annars, austur í Japan um mitt sumar eða norður í landi um hávetur, er aldrei um sömu sjónrænu upplif- un að ræða því ekkert gerist fyrr en á sjálfu augnablikinu þegar salur- inn er orðinn myrkvaður og vatn- inu er varpað af ljósinu á autt tjaldið." Áheyrendum/áhorfend- um er boðið í ferðalag með þess- um síbreytilegu myndum sem ein- ungis eru „ristar" í vatnið. Klarínetta, gítar og selló Verk Atla kallast Þættir úr Dönsum dýrðarinnar. Einleikur Tryggva Baldvinssonar var frum- fluttur í Skálholti en hann er saminn fyrir bassaklarínettu og leikinn af Rúnari Óskarssyni. Kveikjan að því verki er líka ljós- brot - úr glugga Gerðar Helgadótt- ur í Skálholtsdómkirkju - enda heitir það Af gleri. Pétur Jónasson og Sigurður Halldórsson munu flytja verk eftir Hafliða Hallgrímsson sem eru Þættir úr Tristía fyrir gítar og selló. Loks er á dagskrá tónleikanna frumflutningur á verki Huga Guð- mundssonar fyrir Caput sem hann kallar Equilibrium IV Windbells. Vindur og vatn sldpa því stóran sess í dagskránni. Opnun skráð Caput opnar nú Myrka musík- daga enda frumherji í flutningi á íslenskri og erlendri nútímatónlist og hefur fengið fyrir það ýmsar viðurkenningar, meðal annarra Menningarverðlaun DV. Þess má geta að lokum að tón- leikarnir í Salnum á mánudags- kvöld verða teknir upp bæði í hljóði og mynd. I kjölfarið er stefnt að útgáfu á DVD-diski. Ljósmyndabók og hljóðmyndir á fylgjandi diski eru samloka sem kom út á síð- asta ári. Þar er farið í hljóðminni og myndminni og okkur opnast heimur sem er kunnuglegur en við sjáum ekki oft. Lífið gleypir tímann Katrín Elvarsdóttir ljósmyndari og Matthías M.D. Hemstock sendu frá sér verk seint á árinu sem leið sem er bók með ljósmyndum og diskur með hjóðmyndum: Verkið kölluðu þau Mára -Nærvídd. Gripurinn ersnotur bók um sig, 18x18. Efni hermar er byggðin yfirgeBn - staðir sem eru enn og ekki. Mannfólkið er burt, það eru vegir, troðningar, kofar, hús og vinnustaðir. Móska er yBr öllu en fólkið erfarið. Eða erum við hér enn - öll í huganum? Gripurinn er fallega prentaður hjá GuðjóniÓ og brotinn um af Halldóri Elvarssyni. Pappír hæBr myndefninu og ailur frágangur ein- kennist af látieysi og smekkvísi. Tólf tónar gefa verkið út með stuðningi óskyldra aðila svo sem Myndstefs, FÍH, íslandsbanka og Sjóvár-Almennra. Ljósmyndir Katrínar eru fyrir les- anda mynda oghljóðs einhvers kon- ar upphaf hijóðmynda Mattíasar sem eru unnin umhverBshljóð sem eiga við myndir á parti. Ljósmyndun- um er lýst sem „draumkenndum" á kápunni. Þær eru meira í veru en óskýrar, mörkin miUi nær og fjær óljós ogrenna saman en samthefur myndin sína dýpt. Þær eru ekki mist- urkenndar, nær því að skynjunin sé mettuð raka, hljóðlátt regn fyUi sjá- öldrin. Myndbyggingin er miðjusækin. Verkin eru uppbyggð með línum, hreinum Bötum ólíkra skika. ímörg- um þeirra eru sund, leiðir, gáttir, gluggarsvo stíga má ímyndinni inn í ný rými. Þær eru faUegar en eyðUeg- ar, tómlegar en heUlandi, kaldar en þó fuUarafkunnuglegrihlýju. Hljóðmyndir Matthíasar ríma við ljósmyndir Katrínar. Við höfum heyrt þessi hljóð og eigum heima í hljóðheimi hans. Hann er virkur í minninu og áheyrandi getur stigið inn í hann þar. Þannig kallast ljós- mynd og hljóðmynd á og vel mætti Katrin Elvarsdóttir og Matthias M.D. Hemstock: Mórar - Nærvídd Tólftónar 2005 ★★★★★ Lj ósmyndir/hlj ómlist hugsa sér verkið í þeirri útgáfu að saman færi á tjaldi mynd og hljóð. Bragi Ólafsson skrifar stuttan inn- gang að verkinu og spyr um eðli þeirra staða sem eru yErgefhir: Eig- um við öU þar heima. Eru tómar sveitirnarsástaðursem ungkynslóð- in leitar, hofkenndir staðir þar sem Katrín og Mattías Sam starfsverk þeirra er afar vel heppnaö og með glæsileg- usturitgripum síðastaórs upphaBð er? Mórar - Nærvídd er glæsilegt verk I og höfundum sínum, útgefendum, j prenti og stuðningsaðilum til sóma. PállBaldvin Baldvinsson Katrín sýnir um þessar mundir Ijósmyndir úr myndröð sirmi Heim- þrá í versluninni Aurum í Banka- stræti 4 og lýkur henni í dag. Opið erj í'Aurum kl. 11-16 ídag. Hljómalind hýsirnú spunamenn á vergangi. kÍfI Íl J*n ILil *tlr Spinn, spinn ... Spunamenn í Lindinni Spuni hefur staðið fyrir á fimmta tug Spunalcvölda í 17 ár. Miðstöð þeirra hefur verið um : tveggja ára skeið í gömlu Hamp- iðjunni þar sem Klink&Bank átti húsaskjól. Nú er þessu svokallaða „Bankanstímabili Spuna" að ljúka og nýtt tímabil að hefjast í spunasögunni, segja þeir spuna- menn. Kallast það „Vergangur Spuna", þar sem spunnið verður r við nýjar og nýjar kringumstæð- ur hverju sinni á þeim stöðum sem bjóðast á meðan spuninn er á vergangi. Nú spinna menn á laugardag í Kaffi Hljómalind á horni Laugavegs og Klapparstígs og hefst togið kl. 14. Spuni er öllum opinn og gjaldfrjáls og öllum velkominn. Á http://spuni.org eru nánari upp- lýsingar og einnig er hægt að skrá sig þar á póstlista þar sem hægt er að fýlgast með og hafa áhrif á framgang Spuna. Nú þegar hafa eftirtalin atriði verið skráð á dagskrá: Amigo, Svimi og Úð. f hléi munu við- staddir ráða ráðum sínum og eft«- ir það verður opnað fyrir skrán- ingu atriða í seinna hollinu. Silla á Lauqavegi í dag verður mikioí boði á Laugaveginum. Klukkan 15 verða tónleikar í Bókabúð Máls og menningar. Þar munu koma fram tveir listamenn sem hvor fyrir sig ffemur gjörning: raftónlistarmað- urinn 701 og sönggyðjan Mr. Silla. Sjö hundruð og einn, 701, kallar sig Jóhann þegar hann tekur sér pásu frá tónlistinni. Jói gerði þá merku uppgötvun á yngri árum, þegar hann var að leika sér með vasareikni, að hann gæti stafað nafnið sitt með tölustöfun- um 701. Þar voru örlög hans ráðin. 701 hefur þegar gefið út þrjár plöt- ur sem allar W I Mr. Silla. Kemur fram berskjölduð meðopnartil- finningar. hafa fengið lofsverða dóma og seljast líkt og heitar vöfflur á Net- inu. Von er á hans fjórðu plötu innan tíðar og vert er að fýlgjast vel með þessu nafni í ffamtíðinni því 701 er eitt best geymda leyndarmál íslenskrar tónlistar þessa stundina. Mr. Silla - Sigurlaug Gísladóttir - var til skamms tíma óþekkt en er„~ nú kunn: Hún skaust upp á stjömuhimininn síðasta sumar; hóf sína sigurför í Niimberg í Þýskalandi og þaðan mætti hún á hina helstu tónleikastaði í Reykja- vík, s.s. eins og Sirkus og Grand Rokk, og heillaði þar gesti upp úr skónum. Hún spilaði á Airwaves- hátíðinni f haust, hitaði upp fyrir Daníel Ágúst, tók nokkur lög í einlcapam'i Kiefers Sutherland rétt fyrir jólin og svona mætti lengi telja. Hún starfar einnig með hljómsveitunum FRÆ og The Gimmicks en kemur oftast fr am ein og berskjölduð, einungis klædd gítar og fartölvu, og þannig mun- um við sjá Mr. Sillu á laugardag- inn. 'tfr

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.