Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2006, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2006, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 2. MARS 2006 Fréttir DV Stefanía Sigurðardóttir telur að einn kennari Borgarhólsskóla á Húsavík hafi tekið svo illa í son hennar í kennslustund að stórsér á honum. Halldór Valdimarsson skólastjóri segir hins vegar að eftir því sem hann komist næst hafi afskipti kennar- ans verið eðlileg í ljósi þess sem fram fór á milli þeirra. „Mér liggur á að undirbúa framboð mitt í fyrsta sæti Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi bæjar- stjórnarkosningar, “ segir Elías Jónatansson, forseti bæjarstjórnar Bolungarvíkur.„Síðan fermiég dótturmína ívorog hlakka mikið tilþess." Sveitarstjóri í smíðanám Jóhann Guðni Reynis- son, sveitarstjóri Þingeyj- arsveitar, hyggst venda sínu kvæði í kross á kom- andi vori og láta af störf- um. Hann hefur ákveðið, að eigin frumkvæði, að hefja nám í húsasmíði við Verkmenntaskólann á Ak- ureyri og ætlar að fara að vinna sem smíðalærlingur hjá Kristjáni Snæbjörns- syni og fyrirtæki hans Norðurpól ehf., bygginga- verktaka á Laugum, á kom- andi sumri og misserum. Hann og fjölskylda hans mun samt búa áfram á Laugum í Þingeyjarsveit. Kom heim úr mróttalíma meö úverke eflir kennerenn Stórhættulegir bílstjórar í Kópavogi Ók á 110 kílómetra hraða fram hjá leikskólum Stefanía Sigurðardóttir, móðir sjö ára drengs í Borgarhólsskóla á Húsavík, telur að íþróttakennari skólans hafi beitt son hennar of- beldi í tíma. Hann sé ofvirkur og hún viti að það geti farið mikið fyrir honum, en það gangi þó út yfir allt að veita honum áverka og hún er ekki sátt við framkomu íþróttakennarans. Skólastjórinn er ekki sammála og segir að við fyrstu athugun bendi ekkert til að íþróttakennarinn hafi gengið of langt; þvert á móti hafi hann að- eins brugðist við í samræmi við aðstæður enda sé það á hans ábyrgð að börnin veiti hvorki sjálfum sér né öðrum skaða. „Drengurinn kom heim í gær, all- ur marinn og blár eftir að íþrótta- kennarinn hafði tekið illa á honum," segir Stefanía Sigurðardóttir, móðir drengsins sem er aðeins sjö ára. Kom heim marinn og blár Stefanía segist alveg vita að það fari taisvert fyrir drengnum hennar, enda sé hann greindur með ofvirkni og athyglisbrest, en fullmikið finnist henni að íþróttakennarinn í skólan- um skuli leggja hendur á hann þannig að á honum sjái. „Drengurinn mætti í leikfimi og hafði gleymt íþróttabúningnum heima. Iþróttakennarinn sagði hon- um þá að sitja kyrrum og fylgjast með. Sonur minn átti eitthvað erfitt með það og þá tók hann svona í hann," segir Stefanía sem hefur ver- ið að berjast fyrir því að drengurinn verði settur á lyf svo honum líði bet- ur, en án árangurs. „Hér á Húsavík er enginn almennilegur læknir sem getur tekið á málum drengsins og séð til þess að hann fari á almenni- leg lyf,“ segir móðirin en fjölskyldan hefur aðeins búið á Húsavík í skamman tíma. Stefanía segir að eigi að síður fái hún stuðning Félagsþjónustunnar í bænum með drenginn. íþróttakennarinn gerði aðeins það sem skyldan bauð honum Halldór Valdimarsson, skóla- stjóri Borgarhólsskóla á Húsavík þar sem sonur Stefaníu er við nám, kannaðist við þetta atvik á milli drengsins og íþróttakennarans, Unnars Þórs Garðarssonar. „Eftir því sem ég kemst næst við athugun málsins, er ekkert sem „Sonur minn átti eitt- hvað erfitt með að vera kyrr og þá tók hann svo illa í hann að það sér á honum." bendir til að íþróttakennarinn hafi gert annað en það sem skyldan bauð honum og eðlilegt getur talist við aðstæður eins og þarna sköpuðust. Ég hef reyndar ekki farið yfir öll gögn málsins ennþá en sýnist að það sé nokkuð á hreinu hvað þeim fór á milli, drengnum og kennaranum," segir Halldór og bendir á að stund- um komi upp aðstæður í kennslu- stundum sem kalli á óvanaleg við- brögð kennara. Á ábyrgð kennara að börnin valdi ekki skaða Halldór segir að skólinn beri ábyrgð á nemendum og það sé skylda kennara að koma í veg fyrir að börn verði sjálfum sér eða öðrum að skaða. „Samskipti íþróttakennarans og drengsins voru ekki óeðlileg í ljósi þess sem þarna átti sér stað, án þess að ég geti upplýst nákvæmlega hvað þarna gerðist," segir Halldór og reiknar með að málið verði að fullu upplýst fyrir helgi. Barnverndaryfir- völd vinni með þeim að málinu í samráði við alla sem að því komi. „í mínum huga er ekki um neina frétt að ræða í þessu máli og engum til góðs að vekja athygli á því," segir Halldór Valdimarsson, skólastjóri á Húsavík. „Þetta ökulag stingur í stúf við þau hræðilegu slys sem hafa verið að undanförnu og núna síðast 19 ára stúlkan sem lét lífið í hraðakstri á Sæbrautinni," segir lögreglumað- ur 1 Kópavogi um ökulag 18 ára drengs sem ók á 110 kílómetra hraða á klukkustund þar sem leyfi- legur hraði er 50 kílómetrar á klukkustund. Lögreglumaðurinn segir að við götuna sem þessi ofsa- akstur átti sér stað séu tveir leik- skólar, Grænatún og Álfatún, og einn grunnskóli. Segir lögreglan að þessi brot séu mjög alvarleg og stórhættulegt að keyra svona hratt um hverfi þar sem fjöldi barna fer um á hverjum degi. Segir lögreglu- maðurinn í Kópavogi að ökumaður bifreiðarinnar sem var stoppaður muni líklega verða sviptur ökurétt- indum'. Einnig var 27 ára kona stoppuð fyrir að aka á 127 kílómetra hraða á ldukkustund á Reykjanesbraut til móts við Fífuhvammsveg þar sem leyfilegur hraði er 70 kílómetrar á klukkustund. Segir lögreglan í Kópavogi að fólk átti sig oft ekki á því að hámarkshraði miðist við bestu skilyrði og þessi hraðakstur beri einungis vott um að ábyrgðar- kennd ökumanna sé oft ekki mikil. Börn eru á ferðinni í Kópavogi sem ann- ars staðar Bílstjóraríhraðakstri geta verið storhættulegir og börnin í hverfinu íhættu. Þolinmæðin á þrotum Slökkviliðs- og sjúkra- flutningamenn fjölmenntu fýrir utan hús Sambands ís- lenskra sveitarfélaga um hálftólfleytið í gærmorgun. Tilgangurinn var að mót- mæla seinagangi í viðræð- um um kjör þeirra við Launanefnd sveitarfélaga þegar nefndin kom til fundar í húsinu. Atkvæða- greiðsla um verkfallsboðun hófst í gær og lýkur henni á föstudag. Verði hún sam- þykkt skellur á verkfall Landssambands slökkvi- liðs- og sjúkraflutninga- manna, fyrst 1 tvo daga 20. og 21. mars semjist ekki fyrir þann tíma, og síðan ótímabundið viku seinna. 4V Fresta æfingum Erfið staða í samninga- viðræðum Launanefndar og Landssambands- slökkviliðs-og sjúkraflutn- ingamanna veldur því að Brunavarnir Suðurnesja þurfa að fresta skipulögð- um æfingum að því er fram kemur á vef Víkurfrétta. Eins og flestum er kunn- ugt náðust ekki samningar milli viðsemjenda og málið því komið til sáttasemjara. Að sögn Sigmundar Ey- þórssonar slökkviliðsstjóra hefur þetta nú þegar raskað skipulagðri starfsemi Brunavarna Suðurnesja. Halldór Valdimarsson, skólastjóri á Húsavík Hann teiur að samskipti íþróttakennarans og drengs ins hafi verið eðlileg miðað við aðstæður og kennarinn hafi brugðist rétt við. Áverkar sem dreng- urinn kom með heim Stefanfa Sigurðardóttir móðirhans segir að marið sé ekki komið fram og allt eigi þetta eftir að dökkna. Hvað liggur á?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.