Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2006, Blaðsíða 25
DV Lífsstíll
FIMMTUDAGUR 2. MARS 2006 25
/ ... ■' ■ . ■'
■BHwi
HHM
Þekkingarleit og skilningur
/ (▼*r i
Unnur Bírna Vilhjálmsdóttir
ungfrú heimur.
Lífstala Unnar er 7.
Llfstala er reiknuð út frá fæðing-
ardegi. Hún tekur til eiginleika
sem eiga öðru fremur að móta
lifviðkomandi.
Eiginleikarsem tengjast sjöunni eru:
Sundurgreining, skilningur, þekkingar-
leit, fróðleiksfýsn og hugleiðsla - hættir
til að vera fjarlæg þegar hún er ekki í
jafnvægi.
Árstala Unnar fyrir árið 2006 er 2
Árstala er reiknuð út frá fæðingardegi
og þvi ári sem við erum stödd á. Hún á
að gefa visbendingar um þau tækifæri
og hindranir sem árið færir okkur.
Rikjandi þættir I tvistinum eru: Þróun,
samvinna og þolinmæði. Hún fyllist af
orku og metnaði árið framundan. Nýjar
fréttireru væntanlegar og ný tækifæri
bíða hennar handan hornsins.
Scjörnuspó
Nýrspennandi kafli
biður hans innan tíðar
Þorsteinn J. Vilhjálmsson er
42 ára í dag 2. mars
„Á þessum tímapunkti gengur maðurinn
inn í hið óþekkta af frjálsum vilja (nýtt starf
eða verkefni) sem sýnir hverja stund lífs
mannsins sem áhugavert ævintýri þar sem
hann leikur aðalhlutverkið af alúð. Óvissa
framtíðar er jákvæð því hið þekkta sýnir
aðeins fortíð mannsins."
Elsa Björnsdóttir, táknmálsþula Sjónvarpsins, eyddi of mörgum árum í að reyna að
sannfæra sjálfa sig um það sem allir aðrir voru að segja henni að væri rétt. Hún
reyndi að snúa sér að einhverju öðru en leiklistinni sem á hug hennar og hjarta og
það eingöngu af því að hún er heyrnarlaus. Elsa fer nú með aðalhlutverkið í leik-
ritinu Viðtalið sem frumsýnt er í Hafnarfjarðarleikhúsinu laugardaginn næstkom-
andi á vegum Döff-leikhússins sem er leikhús heyrnarlausra.
„Engum datt i hug að
þetta værí möguleiki
afþví það var ekkert
á íslandi til staðar tíl
að minn draumur
gæti mögulega ræst,
allir sögðu: „Já, en þú
getur þetta ekki því
þú ert heyrnarlaus
reyndi ég að fá áhuga á öðru og loka
þetta rugl niðri í skúffu og reyna að
snúa mér að einhverju öðru. Málið
var bara ekki svona einfalt, ég gat
ekki losað mig við þessa löngun
mína til að vinna í leikhúsi, allt
annað var bara næstbest. Ótrúlegt
hvað viðhorf annarra getur haft
mikil áhrif á mann sjálfan, af því
það þekkti enginn Döff-leikhús datt
engum í hug að þetta væri mögu-
leiki af því það var ekkert á íslandi
til staðar til að minn draumur gæti
mögulega ræst, allir sögðu: „]á, en
þú getur þetta ekki því þú ert
heyrnarlaus, viltu ekki verða kenn-
ari eða bara eitthvað annað?“ út-
skýrir Elsa og bætir við: „Ég eyddi of
mörgum árum í að reyna að sann-
færa sjálfa mig um það sem allir
aðrir voru að segja að væri rétt og
reyna að snúa mér að einhverju
öðru. Ég á fjögur yndisleg börn og
eina stjúpdóttur. Stóra fjölskyldu
og mjög gott starf sem táknmáls-
fréttaþula hjá RÚV og hef unnið
sem táknmáískennari með hléum í
fjórtán ár, það mega alveg vera fleiri
klukkustundir í sólarhringnum, svo
upptekin er ég,“ segir hún og hlær.
„Eg er ofboðslega heppin og af-
skaplega þakklát fyrir allt sem ég
hef í dag þó svo að enginn hafi haft
trú á því að þetta væri raunhæft fyr-
ir mig hérna áður fyrr. Stundum
þarf maður einfaldlega að fylgja
hjartanu og vera samkvæmur sjáif-
um sér þótt það kosti fórnir og bar-
áttu. En þetta er vel þess virði."
Skóli fyrir heyrnalausa
á Norðurlöndunum
„Ég er ekki menntaður leikari, en
ég hef aflað mér reynslu með nám-
skeiðum og vinnu í atvinnuieikhús-
um bæði hér heima og úti í Banda-
ríkjunum. Stóri plúsinn er hins veg-
ar sá að það er verið að stofna leik-
listarskóla fyrir heyrnarlausa á
Norðurlöndunum sem verður stað-
settur í Danmörku og fá fjórir ein-
stakiingar frá hverju landi inn í skól-
ann. Tuttugu nemendur allt í allt í
senn,“ útskýrir Elsa en hún sjálf er á
leiðinni þangað í haust. „Ég fór á
ráðstefnu skólans í október í fyrra og
átti þátt í að móta hann. Skólinn
verður að hluta til fjarnám þannig
að samstarf þarf við listaskólann f
hverju landi fyrir sig til að nemend-
ur læri líka leiklistarsögu síns
heimalands. Þessi skóli hefst von-
andi næsta ár, haustið 2007. Við
erum með fulltrúa að vinna í þessu
og sá fulltrúi er enginn annar en Pét-
ur Einarsson, fyrrverandi skólastjóri
og stofnandi Leiklistarskólans hér
heima á íslandi. Ég er því bjartsýn á
að mér takist að útskrifast sem lærð-
ur leikari vorið 2009,“ segir hún og
ljómar á töfrandi hátt við frásögnina
enda um það bil að verða leikkona.
elly@dv.is
.Æfingarnar hafa staðið frá því í
janúar og hafa gengið mjög vel,“
segir Elsa glöð yfir að líða fer að
frumsýningu Viðtalsins eftir Lailu
Margréti Arnþórsdóttur og Mar-
gréti Pétursdóttur í leikstjórn þeirr-
ar síðarnefndu. Elsa heldur frá-
sögninni áfram: „Við vinnum þetta
í samstarfi við Hafnarfjarðarleik-
húsið og frumsýningin er 4. mars
næstkomandi." Talið berst að leik-
húsi sem þessu og Elsa er full
áhuga: „Döff-leikhús má kannski
þýða sem leikhús heyrnarlausra,"
segir Elsa og bætir við til útskýring-
ar að „döff" er heyrnarlaus á tákn-
máli. „Þá er ekki endilega átt við að
allir leikararnir séu heyrnarlausir
en eitt af skilyrðunum er þó að
a.m.k einn leikari í sýningunni sé
heyrnarlaus. Annað skilyrði fýrir
því að geta kallað sýningu Döff-
leikhús er að hún sé aðgengileg
heyrnarlausum áhorfendum til
jafns við heyrandi áhorfendur. í
gegnum tíðina hafa leikhúsin alltaf
eitthvað gert af því að láta túlka
sýningar yfir á táknmál, en flóknar,
mannmargar sýningar eru ekki
góðar til túlkunar svo yfirleitt verða
einfaldar, fámennar sýningar fyrir
valinu. Þessar túlkuðu sýningar
flokkast hins vegar ekki undir Döff-
leikhús þar sem enginn heyrnar-
laus er í sýningunni. Segja má að
fyrsta Döff-leikhússýningin hafi
verið „Guð gaf mér eyra" (Children
of a Lesser God) sem sett var upp í
gamla Iðnó af Leikfélagi Reykjavík-
ur fyrir mörgum árum."
Þú qetur þetta ekki því þú
ert heyrnarlaus
„Að vinna við leikhúsið gefur
mér svo ótrúlega mikið, þetta er
það sem ég hef alltaf viljað gera við
mitt líf. Ég ólst upp við það að eiga
mér draum og að allt í umhverfinu
hvatti mig til að bæla minn draum
niður. Allir voru á þeirri skoðun að
ég ætti nú að leggja eitthvað annað
fyrir mig en leiklistina. Og mikið
-Döff-leikhús er kannski ekki svo frá-
brugð'ðle'khúsi heyrandi (þ.e. leikhúsi fyrir heyrandi
i tU x 7 icmnusi ryrir neyrandi
t°Jend“\Þ°ð miðar að Þvíað 9efa áhorfendum
tækifæri á að upplifa ólíkar tilfinningar og spegla siálf-
an sig og/eða þjóðfélagið iþví verki sem verið er að
syna. Su staðreynd að Döff-leikhús speglar veruleika
og mennmgu heyrnarlausra á þann hátt sem leikhús
svnbntl °ld,rei 9ert gerirÞað sérstakt °9 nauð-
synlegt fyrir islensku menningar- og listaflóruna "
leihlislina í
í sminki áður en rennsl
ið hefst Elsa sjálfleikur
aðalhlutverkið ásamt Soff-
íu sem leikur móðurina.
-----------------
Mnsberm (20. jan.-l 8. febr.)
Einmanaleiki birtist hér en þar
er á ferðinni mannleg kennd. Við finn-
um til ástar, losta, græðgi, afbrýðisemi,
leiða og hamingju og við finnum stund-
um til einmanaleika. Þú átt í einhverjum
vandræðum með líðan þína sem þú
bælirjafnvel og viðurkennirekki.
F\skm\r (19. febr.-20.mars)
Stríð geisar innra með þér en
þú birtist róleg/ur á ytra borðinu. Þú reyn-
ir að stjórna hér með því að halda aftur af
tilfinningum þínum og ráðskast jafnvel
meðfólkið sem þú unnirsvo innilega.
Hrúturinn (2l.mars-19.april)
Hér kemur fram að þú virðist
fuil/ur af umhyggjusemi en sniðgengur
í rauninni manneskjuna sem styrkir
hjarta þitt og eflir orkustöðvar þínar.
Settu þér tímamörk og taktu á málum
líðandi stundar.
0
Nautið (20. aprll-20. mai)
I undirmeðvitund þinni elur
þú af þér sjálfvirkt viðbragðamynstur til
að forðast vissa hluti og verða viðbrögð-
in þá jafnvel að vana hjá þér.
©1\l\bmm\r (2lmaí-21.júnD
Hrein sköpun og frelsi bíður þ(n
þegar þú hefur endanlega ákveðið innra
með þér að upplifa af frjálsum vilja töfra
ástarinnar. Opnaðu hjarta þitt fyrir alla
muni og finndu hvað það er Ijúft.
Krabbinn (22.júni-22.júii)
__ Það er ekki auðvelt fýrir þig að
fyrirgefa en þú ættir að lifa í þeirri vit-
neskju að það sem þú framkvæmir um
þessar mundir hefur áhrif á heildarmynd-
ina og ekki síður líðan þína og þeirra sem
þú elskar og virðir til frambúðar.
Ljonið (23.júíí-22. ágúst)
Þú ættir af einhverjum ástæð-
um að draga andann djúpt og fylla lung-
un af alefli og anda síðan frá þér með
áhrifaríkum árangri sem felst í því að
hreinsa huga þinn og tilfinningagáttir.
Meyjan (21 agúst-22. sept.)
Þú trúir á frelsi fólks til að
skoða og velja það sem því hentar
hverju sinni. Þú hneykslast ekki og leyfir
náunganum að móta eigin skoðanir
sem er góður kostur í fari þínu. Þú gefur
fólki að sama skapi mikið svigrúm og
ætlast til þess sama af því þegar sam-
skipti eru annars vegar (góður kostur).
0
Vogin (23. sept.-23. okt.)
Þú ert minnt/ur á að vilja-
ásetningur þinn leggur grunn að
svokölluðu átakalausu flæði sem eflir
hjartastöðvar þínar á mjög öflugan
máta. Þú stjórnar alfarið.
©
Sporðdrekinn (2ioia.-21.n0v)
Þú ert heillaður/heilluð hérna
og verður ástfangin/n hratt. Þú getur
um þessar mundir átt erfitt með að
greina á milli langvarandi ástar og
stundarhrifningar. Skynjun þín og til-
finningar eru fyllri og opnari á þessum
tímapunkti í lífi þínu.
0
Bogmaðurinne/.n*.-/).^
Þú birtist hér upþstökk/ur og
mættir huga betur að jafnvægi þínu.
Steingeitin <22.des.-19.jan.)
0 Hér tengist þú félaga til að
deila með af allsnægtabrunninum og
gengur hreint til verks þegar draumar
þínir eru annars vegar. Frelsiskennd ein
kennir hjarta þitt hér í byrjun mars. Þú
ert hins vegartrú/r tilfinningum þínum
og sýnir staðfestu í verki.
SPÁMAÐUR.IS