Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2006, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2006, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 2006 Fréttir DV Snarpur jarðskjálfti Snarpur jarðskjálfti, 4,6 á Richter að stærð, fannst víða á höfuðborgarsvæðinu um hálfþrjú í gær. Upptök skjálftans voru suðaustan við Kleifarvatn. Skjálftinn fannst einnig á Akranesi og í Borgarfirði. Gunnar B. Guðmundsson hjá Veður- stofu fslands segir að spenna á flekaskilum Evr- ópu og Amerfku sé orsök skjálftans. Um hálffimm- leytið í gærdag höfðu 30 eftirskjálftar mælst, allir á bilinu 1,5-2,5 að stærð. Að- spurður hvort skjálftinn sé fyrirboði um eitthvað meira segir Gunnar mestar líkur á því að þetta fjari út. VÍStryggir ríkisbíla VÍS og Rfldskaup gerðu í gær samning um að VÍS annaðist lögbundnar trygg- ingar ökutækja í eigu ríkis- ins frá og með 1. mars 2006. Bflatryggingar íslenska rík- isins voru boðnar út á Evr- ópska efnahagssvæðinu fyrr í vetur og átti VÍS lægsta til- boðið. Samningurinn tekur til um 1.250 rfldsbfla og er stærsti einstaki trygginga- samningur fyrir ökutæki á íslenskum tryggingamark- aði. Bflarnir eru í rekstri hjá á annað hundrað stofnun- um, fyrirtækjum og emb- ættum rfldsins. Tók út á reikning Olís Sigurjón Ingi Gíslason hefur verið ákærður fyrir margvísleg fjársvik og umferðarlagabrot í Héraðs- dómi Suðurlands á mánu- dag. Honum er gefið að sök að hafa svikð fé út úr versl- uninni Olís hf. með því að skrifa vörur á reikning ístaks.' Einnig er honum gefið að sök að hafa ekið vörubifreið sem bar of mikinn þunga á pallinum. Krafist er að hann verði sviptur ökuréttindum og greiði sekt upp á 64 þúsund krónur. Fjölskylda Árna Magnússonar félagsmálaráöherra er ánægð með ákvörðun hans um að hætta í pólitík. Ekki síst faðir hans, Magnús Bjarnfreðsson, sem var heimil- isvinur flestra íslendinga á upphafsárum íslenska sjónvarpsins. Árni Magnússon með foreldrum sínum Magnús Bjarnfreðsson er mjög ánægðurmeð þá ákvörðun sonarslns að hætta I pólitík. imnum að fara i politik „Eg vissi afþessu áðuren klukkan sló en ekki þannig að Ámi hafi sérstaklega leitað ráða hjá mér. Enéger ánægður. Það get ég sagt." Almenn ánægja ríkir í fjölskyldu Arna Magnússonar félagsmála- ráðherra með þá ákvörðun hans að hætta afskiptum af stjórn- málum. Ekki síst hjá föður hans, sjónvarpsmanninum lands- þekkta Magnúsi Bjarnfreðssyni: „Mér líst ljómandi vel á að strákur- inn sé að hætta. Ég hef aldrei ráðlagt sonum mínum að fara í pólitík," segir Magnús sem var kátur á heimili sínu í Kópavogi í gær. „Ég vissi af þessu áður en klukkan sló en ekki þannig að Ámi hafi sérstaklega leitað ráða hjá mér. En ég er ánægður. Það get ég sagt," segir Magnús sem sjálfur var heimilis- vinur allra íslendinga á upphafsárum íslenska sjónvarpsins. Þá las Magnús kvöldfréttimar oftar en aðrir og féll djúp rödd hans í sérlega góðan jarð- veg hjá landsmönnum. Þá djúpu rödd erfði Ámi sonur hans og átti að lfldnd- um ekki minnstan þátt í velgengni hans í stjómmálum. Hinn sonurinn Þrátt fyrir ráðleggingar Magnúsar Bjarnfreðssonar til sona sinna breytir það því ekki að enn á Magnús einn son í pólitík. Það er Páll Magnússon, sem nú starfar sem aðstoðarmaður Valgerðar Sverrisdóttur iðnaðarráð- Páll Magnússon Enn Ipólitlk þrátt fyrir ráðleggingar föður sins um annað. Hér með Guðjóni Ólafi Jónssyni lögmanni sem tekur sæti Árna Magnússonar á Alþingi. herra, og ætlar sér ekki minni hluti í stjómmálum en Ámi bróðir hans hef- ur þegar áorkað. Enda Páll yngri. Ekki uppreisn „Nei, ég held ekki að stjómmála- þátttaka sona minna hafi verið ein- hver uppreisn gegn mér. Árni hefur lýst því einhvers staðar hversu áhuga- lítill hann var um pólitflc framan af. En svo breyttist þetta," segir Magnús sem telur eins og aðrir að veikindi tengda- dótmr hans og eiginkonu Árna hafi Gamlar sjónvarpsstjörnur Trausti Jónsson veðurfræðingur, Bogi Agústsson, Markús Örn Antonsson og Magnús Bjarnfreðsson Isjónvarpssal. Myndin er tekin á 25 ára afmæli Ríkissjón- varpsins þegar þessar gömlu kempur komu saman á ný til að lesa fréttir. ráðið mestuum ákvörðun sonar hans að hætta í pólitík: „Þó ekki öllu. Það em samverkandi þættir sem valda þessu," segir hann. Lyf fyrir lífstíð Edda B. Hákonardóttir, eiginkona Áma Magnússonar, hefur átt við sjúk- dóm í meltingarfærum að stríða sem verður ekki læknaður. Hins vegar má halda sjúkdómnum niðri með lyfja- gjöf sem aldrei má linna. Ámi Magnússon og Edda eigin- kona hans höfðu í hyggju að flytja úr Hveragerði, þar sem þau hafa verið búsett um árabil, og flytja í Grafarvog en af því varð ekki vegna veikinda Eddu. Ekki er þó ólfldegt að þau láti nú slag standa þegar Ámi tekur við nýju starfi í íslandsbanka. Áhugaleysi um krónprins Magnús Bjamfreðsson vill ekki spá í hver verði nýr krónprins Framsókn- arflokksins nú þegarÁmi er á braut: „Eiginlega hef ég takmarkaðan áhuga á því," segir Magnús Bjam- freðsson, sáttur við síðustu vendingar í innanhúsmálum Framsóknarflokks- ins. Segðu það frekar með blómum Nú um nokkurt skeið hefur Svart- höfði átt í ástarsambandi við kon- una sem býr í sama húsi og hann. Það væri lygi að segja að Svarthöfði sé rómantískasti maður í heimi en stundum færir hann þó konunni sinni afskorin blóm úr Hveragerði. Þetta finnst Svarthöfða vera alveg nóg af slíku hjali. Sumir láta sér ekki nægja að segja það með blómum heldur þurfa að útmála hug sinn með alls konar öðruvísi táknum. Menn bresta til dæmis í söng í veislum á stórafmæl- um; falla jafnvel á bæði hnén með í einhverjum allsherjar gígantískum i Svarthöfði Titanic-óperusöng. Þannig er Svart- höfði ekki. Enn öðrum dugar ekki að ropa út úr sér ástarjátningum á tyllidögum heldur þurfa að ítreka tÚfinningar sínar nánast í sífellu. Þetta sést í Hagkaupum og Nóatúni svo dæmi sé nefnt. Þar rekur Svarthöfði gjarn- an inn höfuðið til að kaupa eitthvað í gogginn. Nú hin síðari ár er það al- gengt að fólk gengur þar um með farsíma við eyrað um alla ganga fjasandi og masandi út í eitt við ein- Hvernig hefur þú það? „Þetta er ansi erfitt," segir Sonja Haraldsdóttir sem verið hefur I hungurverkfalli í þrjá mánuði og tíu daga til að mótmæla bágum kjörum öryrkja og ellilífeyrisþega.„Ég er núna búin að missa rúm 25 kíló. Var reyndar 40 kíióum yfir kjörþyngd þegar ég byrjaði. Heilsan er svona og svona. Fæ mér stundum ávaxtasafa og grænmetissafa. Annars er ég bara að bíða eftirsvörum við bréfum sem ég hefsent út af hungurverkfallinu mínu." hvern sem bíður heima og stjórnar innkaupunum. Og endar samtalið á einhverju eins og: Ég elska þig! Það getur verið svolítið skrítið að vera einn á klósettpappírganginum með einhverjum sem er í tilhugalífi við gemsann sinn. Versta dæmið er kannski konan sem Svarthöfði sá um daginn í Bónus og var að kaupa banana með annarri hendinni og tala við einhvern sér afar nákominn í símann með hinni. Sú saga á ekki erindi við almenning. Vítin til að varast eru sem sagt mörg í þessum ástar- og kynlífs- bransa. Heppilegast er auðvitað að vera alls ekkert að tala neitt um svo- leiðis við einn eða neinn. En auðvit- að er þó í lagi að hvísla einhverju notalegu að fólki svona undir íjögur augu. Það má jafnvel gera í síma sé fólk ekki statt í stórmarkaði eða á miðri Ibsen-sýningu á Litla-sviðinu. Sumir ganga kannski svo langt að senda ástargælur með sms en þá er strax komið út á hála braut. Það er eins og að tala í gamla sveitasímann. Þið munið hann Beckham greyið. Og hvað sem þið gerið: Ekki senda tölvupóst! Svarthöfði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.