Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2006, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 2006
Sport DV
Mætast í
úrslitaleiká
fimmtudaginn
Njarðvík og Keflavík klár-
uðu bæði sína leiki í 21. um-
ferð Iceland Express-deildar
karla af miklu öryggi og mæt-
ast því í úrslitaleik um deild-
armeistaratitilinn í Keflavík á
fimmtudaginn. Bæði lið eru
með 34 stig fyrir leikinn en
Keflvíkingar náðu nágrönn-
um sínum að stigum eftir að
Njarðvík tapaði tveimur síð-
ustu útileikjum sínum, fyrst
með 2 stigum í Stykkishólmi
og svomeð ffamlengingu í
Grindavfk. Keflavík hefur
unnið alla deildarleiki sína
eftir áramót fyrir utan þann
sem það tapaði á kæru fyrir
Hamar/Selfoss.
Hötturfallinn
úrdeildinni
Nýliðar Hattar
frá Egilsstöðum
félfu úr Iceland
Express-deild
karla á sunnu-
dagskvöldið þeg-
ar Hattar-liðið
tapaði með 32
stigum fyrir KR,
6&-98.ÍDHL-
Höllinni. Höttur
hefur aðeins unnið 3 af 21
leik sínum í deildinni og á að-
eins einn leik eftir, heimaleik
gegn Haukum. Höttur vann
eimitt fyrn leik liðanna með 9
stigum á Ásvöllum en Hattar-
menn geta með sigri tekið
Haukana með sér niður í 1.
deild.
Hannesí
framboð
Hannes Sigur-
björn Jónsson,
varaformaður
KKÍ, hefur ákveð-
ið að gefa kost á
sér til formanns
KKI á komandi ársþingi sam-
bandsins sem haldið verður í
Grafarvogi 6.-7. maí en
Hannes sendi frá sér yfirlýs-
ingu í gær. Ólafur Rafnsson,
formaður KKÍ, mun ekki gefa
kost á sér til endurkjörs í vor
á ársþingi. Ólafur hefur stýrt
sambandinu af öryggi og
festu síðustu 10 árin en
Hannes hefur verið varafor-
maður hans undanfarin sex
ár.
Tindastóll
afturí
úrvalsdeild
Tindastóll frá
Sauðárkróki end-
urheimtí sætí sitt
í úrvalsdeild karla
í körfubolta með
89-80 sigri á Val í
Kennaraháskól-
anum á sunnu-
daginn. Þrátt fýrir að tvær
umferðir séu eftir í deildinni
er ljóst að ekkert félag getur
komist yfir Tindastól en efsta
liðið í deildinni kemst beint
upp. Þau lið sem lenda í sæt-
um 2 til 5 munu leika til úr-
slita um hitt lausa sætið í
deildinni. Nokkuð ljóst er að
það verða Valur, Þór, Þ. FSu
og Breiðablik. Stjarnan á þó
enn tölfræðilega möguleika á
sæti í úrslitakeppninni.
Snæfell vann fjórða leik tímabilsins á sigurkörfu þegar liðið vann Hauka 71-72 á
Ásvöllum á sunnudagskvöldið í Iceland Express-deildinni en Haukar höfðu sjö
stiga forskot þegar aðeins rúm hálf mínúta var eftir. Haukar hafa tapað átta leikj-
um í vetur með Qórum stigum eða minna.
MACNMUW
Hetja Hófmara Magni
Hafsteinsson skoraði fimm
af 18 stigum sfnum á sið-
ustu 15 sekúndunum i eins
stigs sigrinum á Haukum.
Magni Hafsteinsson hefur heldur betur verið Snæfellingum dýr-
mætur í vetur. Það er ekki nóg með að hann sé með 15,6 stig og
5,1 frákast að meðaltali í leik heldur hefur hann tvisvar sinnum
á aðeins þremur vikum tryggt Snæfelli sigur með körfu á loka-
sekúndunum. Magni gerði meira en að troða sigurkörfuna í
hraðaupphlauði því átta sekúndum áður hafði hann minnkað
muninn í eitt stig með ótrúlegri þriggja stiga körfu úr mjög að-
þrengdu færi.
Snæfellingar hafa nú unnið sjö
leiki í vetur með fjórum stigum eða
færri, þar af fjóra þeirra á sigurkörfu.
Jón Ólafur Jónsson var fýrstur til
þess en þriggja stiga karfa hans um
tvo metra fyrir utan þriggja stiga lín-
una tryggði eins stigs sigur gegn
Skallagrími 1. desember síðastíið-
inn. Nate Brown tryggði liðinu eins
stigs sigur á Grindavík 9. febrúar
fimm sekúndum fyrir leikslok og
Magni Hafsteinsson skoraði sigur-
körfuna gegn Fjölni 12. febrúar þar
sem boltinn datt ofan í körfuna um
leið og lokaflautið gall. Það má telja
líklegt að Snæfellsliðið hafi fengið
góðan undirbúning fyrir úrslita-
keppnina í leikjum sínum eftir ára-
mótin því sjö af síðsutu níu leikjum
liðsins hafa endað með fjögurra
stiga mun eða minna. Snæfellingar
hafa unnið fjóra þeirra.
Sterkur á taugum Undirstjórn BárðarEyþórssonarhefurSnæfellleikið 11 af2l leiksínum sem
hefur endað með fjórum stigum eða minna. DV-mynd Valli.
Allt getur gerst í körfubolta
Það getur allt gerst í körfubolta,
það sýndi sig að minnsta kosti
tvisvar sinnum í Ieik Hauka og Snæ-
fells í Iceland Express-deildinni á
sunnudagskvöldið. Haukarnir skor-
uðu þannig bara 9 stig í fyrsta leik-
hluta (gegn 26) en voru samt yfir í
hálfleik, 40-37. Þeir voru líka sjö
stigum yfir þegar innan við ein
mínúta var eftir en töpuðu samt.
Annar leikhlutinn endaði með
31-11 sigri Hauka og Snæfellingar
skoruðu átta stig á síðustu mínútu
leiksins.
Áttunda nauma tapið
Þrátt fyrir hetjudáðir Magna og
Snæfells í lokin er frekar hægt að
segja að Haukarnir hafi tapað leikn-
um en að Snæfell hafi unnið hann á
þessum æsispennandi lokamínút-
um. Haukarnir réðu ekki við bolta-
pressu Snæfellsliðsins síðustu hálfu
mínútu leiksins sem kostaði þá þrjá
tapað bolta og körfur beint í and-
litiið. Sjö stiga munur gufaði því
upp á augabragði og í áttunda sinn
í vetur þurfu Haukarnir að sætta sig
við tap með fjórum stigum eða
minna. Þessi stig eru liðinu dýr nú
þegar Haukar sitja í fallsæti fyrir
lokaumferðina og þurfa bæði að
treysta á að Snæfellingar vinni Þór
Akureyri í Hólminum sem og að
þeim sjálfum takist að vinna Hött á
Egilsstöðum. Höttur er þegar fall-
inn en það ræðst á fimmtudaginn
kemur hvort Þór eða Haukar fylgi
honum niður í 1. deildina.
ooj&dv.is
Naum töp Haukanna í vetur:
27. okt. Njarðvík (úti)
30. okt. Skallagrímur (heima)
13. nóv. Keflavík (úti)
24. nóv. Þór Akureyri (heima)
4. des. (R (heima)
15. des. Snæfell (úti)
2. mars. (R (úti)
5. mars. Snæfell (heima)
74- 78 (-4)
87-90 (-3)
77-81 (-4)
73-75 (-2)
75- 77 (-2)
93-97 (-4)
80-83 (-3)
71-72 (-1)
Flest töp með 4 stigum eða minna:
Haukar 8
Grindavík 5 (öll á útivelli)
Snæfell 4
Þór Akueyri 4*
Njarðvik 3
Fjölnir 3
KR 3
Skallagrímur 2
(R 1
Keflavík, Hamar/Selfoss og Höttur 0
* Eitt tap í viðbót i framlengingu sem
endaði með 11 stiga tapi.
Flestir sigrar með 4 stigum
eða minna:
Snæfell 7 (64% sigurhlutfall, 11 leikir)
Keflavík 5(100%, 5)
(R 4 (80%, 5)
KR 4 (57%, 7)
Grindavík 4 (44%, 9)
Hamar/Selfoss 2(100%, 2)
Njarðvík 2 (40%, 5)
Skallagrímur 2 (50%, 4)
Fjölnir 1 (25%, 4)
Þór Akureyri 1 (20%, 4)
Haukar 0* (0%, 8)
Höttur 0(0)
* Einn sigur i framlengu sem endaði með 11 stiga sigri.