Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2006, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 2006
Fréttir 0V
Árni Magnússon
Árni er góðhjartaður, með ein-
staka rödd og giaðiyndur.
Hann er talinn hafa valið
óráðholla aðstoðarmenn i
kring um sig i ráðherratíð
sinni.
„Hann var góðhjartaður stjórn-
málamaður og það er besta lýs-
ingarorðið sem ég gef
nokkrum stjórnmála-
manni. Það er kostur
að hann er mjög við-
kunnalegur starfsfé-
lagi, tilfinningarikur og hefur
einstaka rödd sem gaman var
að hlusta á.
Hann hafði einn alvarlegan
ókost sem fólst Iþví að hann
var framsóknarmaður inn I
innsta merg en það lagast
hugsanlega með tlmanum."
Ösiur Skarphéðinsson, þingmaður
Samfylkihgarinnar.
„Kostirnir eru aðhann er dug-
legur stjórnmálamaður.
Hann er glaðlyndur og
var góður samstarfsfé-
lagi. Eða eins og mál-
tækið segir, góður er
hversem genginn er.
Eins og er þá man ég ekki eftir
neinum göllum á Árna.“
Jónina Bjartmarz, þingkona
Framsóknarflokksins.
„Ég held að það myndi flokkast
sem kostur hjá Árna að hann
vargreinilega mjög
velviljaður sínum
málaflokki. Ég hef
alltafhaftþað á til-
finningunni að hann
vildi vel. Það er líka tvímælaust
kostur að hann var með frískt
yfirbragð. Ókostirnir eru kannski
helstþeir að hann viröist hafa
brenntsig á þvi að hafa ekki
nógu ráðholla aðstoðarmenn.
Það er eins og hann hafi raðað i
kringum sig sveitjá-manna og
sllkt er aldrei hollt."
Steingrímur J. Sigfússon, formaður
vinstri grænna.
Árni Magnússon fyrrverandi félagsmála-
ráðherra er fæddur I Reykjavlk 4.júnl 1965.
Árni tók Samvinnuskólapróf árið 1983 og
hefur tekið ýmis námskeið I rekstrarfræði,
stjórnun og stjórnmálafræði frá HÍ og HA.
Hann var frétta- og blaðamaður á árunum
1987-1994. Hann var kosningarstjóri Fram-
sóknarflokksins I Suðurlandskjördæmi fyrir
alþingiskosningar 1995. Slðar varð hann
aðstoðarmaður Iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra.Arið 2003 varð hann félagsmálaráð-
herra en hann tllkynnti á sunnudaginn að
hanh ætlaði að draga sig úr allri pólitlk og
láta eftir ráðherraembættiö. Árni mun
söðla um og hefja störfhjá Islandsbanka.
Glæsilegt úml af
handsmíðuðum
íslenskum
skartgrípum
(Œut\
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 10
sími 561 1300
Fréttaskýring
Brotthvarf Árna Magnússonar úr pólitík er talið Framsóknar-
flokknum til framdráttar fremur en bakslag. Eftir stendur hins vegar að enginn
augljós kostur er til staðar sem næsti formaður flokksins. Líkur hafa aukist á að
Halldór Ásgrímsson hætti fyrir eða fljótlega eftir kosningarnar 2007. Guðni Ágústs-
son og Siv Friðleifsdóttir koma helst til greina í formannsstöðuna.
Siv og Guðni Baráttan um
formannsstöðuna í Framsókn-
arflokknum er talin verða milli
Sivjar Friðleifsdóttur og Guðna
Agústssonar.
Skyndilegt brotthvarf Árna Magnússonar úr pólitík nú um helg-
ina vekur upp margar spurningar um hver taki við formanns-
stöðunni í Framsóknarflokknum eftir Halldór Ásgrímsson.
Árni var óumdeilanlega krón-
prinsinn eftir að HalldórÁsgrímsson
dubbaði hann upp í stöðuna að
loknum síðustu kosningum. Þetta er
í annað sinn sem Halldór missir for-
mannsefni frá sér en sá fyrri var
Finnur Ingólfsson sællar minningar.
Arftakar yfirgáfu sviðið
Það er margt sláandi líkt með
brotthvarfi þeirra Finns og Árna.
Báðir voru þeir taldir augljósir arf-
takar formannsins, báðir hætta þeir
í pólitík nánast upp úr þurru. Báðir
fá þeir vinnu í banka, Finnur að vísu
í Seðlabankanum áður en hann varð
forstjóri VÍS en Árni verður fram-
kvæmdastjóri hjá Islandsbanka.
Margir telja nú auknar líkur á að
Halldór dragi sig I hlé úr pólitík fyrir
eða skömmu eftir næstu kosningar.
Fylgið hrynur stöðugt af flokknum
samkvæmt skoðanakönnunum og
Halldór á í greinilegum erfiðleikum
með að ná til kjósenda. Hafa ber þó
í huga að raunverulegt kjörfylgi
Framsóknar hefur ætíð verið meira
en skoðanakannanir hafa bent til
fyrir kosningar. Fylgishrunið er þó
orðið svo mikið, einkum á suðvest-
urhorni landsins þar sem kjósendur
eru flestir, að erfitt er að sjá fyrir
annað en afhroð flokksins í næstu
þingkosning-
„Kjaftshögg"
össur Skarphéðinsson bloggar á
síðu sinni um málið og segir ákvörð-
un Árna vera „kjaftshögg" fyrir Hall-
dór Ásgrímsson formann flokksins.
Jafnframt telur Össur að ákvörðunin
veiki flokkinn. Margir af innstu
koppum í búri Framsóknar eru
þessu ósammála og telja þvert á
móti að þetta sé flokknum til ham-
dráttar. Benda þeir á að Árni hefði
farið í kosningabaráttuna með tvo
mjög þunga bagga á bakinu. Ann-
ars vegar jafnréttisstýrumálið fyrir
norðan og hins vegar bröltið í kring-
um kvenfélög flokksins í Kópavogi
sem kom illa við kaunin á mörgum
þar á bæ en þar fóru fremstir í flokki
klíkan Árni, Páll bróðir hans og
Björn Ingi Hrafnsson.
Klíkan hrunin
Ákvörðun Árna er ekki síður
„kjaftshögg" fyrir Björn Inga Hrafns-
son og hlýtur að setja drauma hans
um frekari frama í flokknum í bið-
stöðu. Þeir Árni, Páll Magnússon og
Björn Ingi, mynduðu klíku eða
valdahóp í flokknum sem fór mikinn
um tíma. Björn Ingi er fyrir mjög
umdeildur innan flokksins og marg-
ir í Reykjavík eiga bágt með að þola
hann. Tekið hefur verið eftir því sem
dæmi að Jónína Bjartmarz hefur
aldrei hleypt honum inn á þing en
hann er varamað-
__________________urhennar.
um.
æm- 'ÍpP
Valgerður Sverris-
dóttir Hefur ekki sýnt
neinn áhuga á frekari
frama innan flokksins.
Hjálmar Árnason
Ekki talinn koma til
greina vegna veik-
inda sinna nýverið.
Guðni með hefðina að baki
Þeir sem gleggst til þekkja telja að
baráttan um formannsstöðuna
muni standa á milli Guðna Ágústs-
sonar og Siv Friðleifsdóttur. Guðni
stendur betur að vígi þar sem hann
er varaformaður flokksins og flokks-
hefðin segir að sækist varaformaður
ehir embætti formanns er nær sjálf-
gefið að hann sé kosinn. Guðni er
þar að auki fyndinn og orðheppinn
maður og fulltrúi hinna „gömlu og
góðu“ gilda og á sem slíkur vísan
stuðning landsbyggðarfólksins.
Hins vegar þykir hann ekki höfða til
yngri kjósenda, en ef floklcurinn á að
ná einhverjum árangri í næstu kosn-
ingum er mikilvægt að hafa mann í
brúnni sem gerir það.
Siv metnaðarfull
Siv Friðleifsdóttir er talin höfða
meir til yngri kjósenda en Guðni. Þar
að auki er hún evrópusinnuð og síð-
ast en ekki síst er hún kona. Margir
telja að það yrði sterkur leikur hjá
Framsókn að tefla ham konu sem
formanni. Og eins og össur Skarp-
héðinsson bendir réttOega á í fyrr-
greindu bloggi sínu er Siv gríðarlega
metnaðarfull. „Hún hefur hæfileika
til að laða fólk að sér en líka til að
koma sumum upp á móti sér. Það
vita allir framsóknarmenn. Hún er
giska hörð við andstæðinga sína
innan flokks - og hefur minni fílsins.
Það veit Árni manna best. Siv setti í
hann lensuna á þingflokksfundi sem
haldinn var beinlínis að kröfu m.a.
hennar vegna Hæstaréttardómsins í
jafnréttisstýrumálinu," skrifar
össur.
Stöðugt andóf
Halldór Ásgrímsson
getur ráðið miklu um hver
verður eftirmaður hans og
þar er Siv í slæmum mál-
um en þau tvö eiga ekki
skap saman. „Sivhefur inn-
an flokks verið í stöðugu
andófi gegn forystu flokks-
ins eftir að Halldór
gerði þau örlaga-
Björn Ingi Hrafnsson Fari mistök að
svo að Björn Ingi nái þvl ótrú- sparka
iega að koma sér inn sem borg-;• ( henni
arfulltrúi i kosningunum ivor „
hlýtur hann að teljast vonar- 111 nK‘
peningur i formannsstöðuna.
Siv Friðleifsdóttir er
talin höfða meir til
yngri kjósenda en
Guðni. Þar að auki er
hún Evrópusinnuð og
síðast en ekki síst er
hún kona. Margir
telja að það yrði
sterkur leikur hjá
Framsókn að tefla
fram konu sem for-
manni.
stjórninni. Út á við hefur hún þó
verið holl flokknum," skrifar össur.
„Siv er hins vegar sá stjórnmálamað-
ur í Framsókn sem hefði verið lang-
líklegust til að gera uppreisnina
gegn Halldóri. Lögmálið segir að slík
uppreisn sé yfirleitt gerð gegn for-
manni í aðdraganda kosninga þegar
ekkert gengur á miðum kjósenda.
Það hefur ekkert gengið hjá Hall-
dóri. Flokkurinn tapar stöðugt fylgi.
Halldór beygði sig fyrh ógninni, sem
honum stafar af Siv, þegar hann
valdi hana sem ráðherra framyfir
Jónínu (Bjartmarz). Hann var að
kaupa sér tímabundinn frið af hálfu
hennar."
Aðrir möguleikar
Aðrir sem nefndir hafa verið tO
sögunnar sem formannsefni utan
Guðna og Sivjar eru Valgerður Sverr-
isdóttir iðnaðaráðherra og Hjálmar
Árnason formaður þingflokksins.
Valgerður hefur hins vegar aldrei
sýnt því neinn áhuga að öðlast frek-
ari frama innan flokksins en orðið
er. Og Hjálmar kemur vart til greina
sökum veikinda hans nýverið. Af
yngri kynslóðinni er helst nefndur tO
sögunnar Björn Ingi Hrafnsson. Árni
Magnússon var hans helsti bakhjarl í
flokknum og því er hann talinn eiga
nánast enga möguleika. Og þó. Fari
svo að Björn Ingi nái því ótrúlega að
koma sér inn sem borgarfulltrúi í
kosningunum í vor hlýtur hann að
teljast vonarpeningur í formanns-
stöðuna.