Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2006, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2006, Blaðsíða 16
J 6 ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 2006 Sport DV Arnarraðar mörkum fyrirÍA Amar Gunn- laugsson skoraði sitt fimmta mark í þremur leikjum í deildarbikamum í 4- 0 sigri Skagamanna á Víking- um. Amar lagði auk þess upp eitt mark fyrir Amar Má Guð- jónsson. Dean Martin lagði upp tvö mörk í leiknum og skoraði eitt en fjórða markið skoraði Andri Júlíusson sem hafði komið inn á sem vara- maður fyrir Þórð Guðjóns- son. Skagamenn hafa þar með skorað 13 mörk í fyrstu fjómm leikjum sínum í deildarbikamum. Tap hjá Blika- stulkum en samt sigur Valur vann Breiðablik 4- 2 í deildbikar kvenna á sunnudaginn en á heima- síðu Breiða- bliks kemur fram að Valur hafi verið með ólöglegan leikmann í sínu liði. Á heimasíðunni segir: „Valur stillti upp ólöglegum leikmanni í liði sínu í kvöld en Katrín Jónsdóttir er leik- maður í Noregi og því vinn- ur Breiðablik leikinn 3-0. Ótrúleg framkoma og ekki íþróttamannsleg vinnu- brögð." Margrét Lára Við- arsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Val en hin gerðu Hall- bera Guðný Gísladóttir og Dóra María Lámsdóttir. Guðlaug Jónsdóttir og Greta Mjöll Samúelsdóttir skor- uðu mörk Breiðabliks. Fimma hiá t Hólmfrí Hólmfríður Magnúsdótt- ir skoraði öll mörk KR í 5-2 sigri á Keflavík í deildabik- arnum um helgina en þetta er í fyrsta sinn sem Hólmfríð- ur nær að skora fimm mörk í einum og sama leikn- um. Olga Fær- seth lagði upp tvö af mörk- um Hólmfríðar líkt og Katrín Ómarsdóttir og síð- ustu stoðsendinguna átti Margrét Þórólfsdóttir. Hólmfríður hefði getað skorað tvö til viðbótar en vamarmenn Keflavíkur björguðu þá tvisvar frá henni á marklínu. Tvenna Helga dugði bara i jafntefli Helgi Sigurðsson skoraði tvö mörk fyrir Fram í 2-2 jafntefli við Val í deildabik- arnum um helgina. Guð- mundur Bene- diktsson kom Val í 1-0 þegar að hann fylgdi á eftir vítaspymu sem Gunnar Sigurðs- son, markvörður Fram, hafði varið frá honum. Helgi skoraði síðan tvö mörk á 33. og 47. mínútu en bæði mörkin vom gullfalleg. Þrjú stig komu þó ekki í hús hjá ný- krýndum Reykjavíkurmeist- umm því Pálmi Rafn Pálmason jafnaði leikinn fjórum mínútum síðar. Guðmundur E. Stephensen er sennilega einn allra fremsti íþróttamaður sem ís- lendingar hafa átt. Hann hefur notið ótrúlegra yfirburða í sinni íþrótt og undir- strikaði hann þá um helgina er hann varð, enn á ný, þrefaldur íslandsmeistari í borðtennis. Þar með eru titlarnir orðnir 100, sögðu fjölmiðlar um helgina, sem er þó Qarri sannleikanum. | Guðmundur E. Stephensen Hefur l/klega unniö 76 Islands- meistaratitla á slnum ferliíöll- um flokkum. 1989 1 1990 2 1991 2 1992 2 1993 3 1994 5 1995 8 1996 8 1997 7 1998 8 1999 6 2000 4 2001 4 2002 4 2003 3 2004 3 2005 3 2006 3 Samtals 76 titlar Eiríkur Stefán Ásgeirsson eirikurst@dv.is ÍÞRÓTTALJÓS Það er ekki ætlan mín að varpa skugga á þann frábæra árangur sem Guðmundur hefur náð í gegnum tíð- ina enda talar hann sínu máli algjör- lega einn og óstuddur. Guðmundur vann fyrsta íslandsmeistaratitilinn í meistaraflokki karla á 12. aldursári og hefur síðan þá ekki sleppt hendinni af bikamum. Um helgina varð hann íslandsmeistari í greininni þrettánda árið í röð. Þrefaldur sigur Nlunda áriö Iröö vann Guömundur sigur I einliöa- og tvlliöaleik karla sem og tvenndarkeppni. Auk þeirra hefur Guðmundur, ásamt öðrum, unnið fjöldamarga ís- landsmeistaratitla í bæði meistara- og unglingaflokki. í viðtali sem birtist við hann þann 19. febrúar síðastlið- inn í Fréttablaðinu er hann sagður hafa unnið 97 íslandsmeistaratitla og hefði því þrennan sem hann vann um helgina ýtt tölunni upp í hundr- aðið. „100. titillinn handan við hom- ið“ er fyrirsögnin á greininni. Fyrir það fyrsta virðist sem svo að klaufaleg mistök í upptalningu blaðsins á íslandsmeistaratitium Guðmundar geri þessa fyrirsögn ómerka. Þeir em sagðir vera 97 tals- ins en þegar betur er að gáð og þeir taldir upp á nýtt em þeir ekki nema 87. Þar að auki er Guðmundur sagð- ur vinna fjórtán titla sem aðrir íþróttamenn unnu í raun og vem. Að þessu komst ég þegar ég leitaði heimilda í ársskýrslum Borðtennis- sambands fslands og umfjöllun DV um íþróttir unglinga árin 1993 og 1994. Guðmundur sagði í viðtali við Fréttablaðið í gær að titlamir væm hættir að hafa þýðingu. „Þetta er eig- inlega bara tala fyrir mér,“ sagði hann. Talan er þó klárlega röng en sú rétta er 76 eftir því sem ég kemst næst. í þeirri tölu em þó titlar sem Guðmundur er sagður vinna með liðum Víkings í 1. deild karla og hópakeppnum unglinga en erfitt var að sannreyna það í þeim heimildum sem ég leitaði í. Hann fær því að njóta vafans þar. Þar að auki gleymd- ust tveir titlar í upptalningu Frétta- blaðsins en alls em honum eignaðir þrír titlar í meistaraflokki sem aðrir unnu en hin mistökin em í unglinga- flokkum. Hvort titlamir em 76 eða 100 tals- ins er í sjálfu sér aukaatriði. En þegar að hver fjölmiðiilinn á fætur öðrum tekur við þessu sem hverjum öðrum heilögum sannleik er rétt að staldra við og hugsa sinn gang. Sérstaklega þegar verið er að eigna honum titla sem aðrir íþróttamenn hafa lagt hart og mikið að sér til að vinna. Ég efast ekki um að Guðmundur vinni einn daginn sinn 100. íslands- meistaratitil. Ef hann heldur sínu striki og vinnur þrjá titla á ári verður það ekld fyrr en árið 2014. Þá verður Guðmundur á sínu 32. aldursári og tiví 20 ár síðan hann vann sinn fyrsta slandsmeistaratitil. Væri það viðeig- andi á þeim merkilega áfanga. Titlarmr sem Guðmundur vann ekki: Grein Sigurvegari/ar |1989 Tvlliðaleikur sveina Stefán Gunnarsson/Ægir Jóhannsson 1989 Tvenndarkeppni unglinga Margrét Hermannsdóttir/Stefán Gunnarsson i1989 Hópakeppni unglinga Stjarnan A 1990 Einliðaleikur pilta Sigurður Jónsson .990 Tvlliðaleikur sveina Hörður Birgisson/Davíð Búason 1990 Tvenndarkeppni unglinga Lilja Benónýsdóttir/Halldór Björnsson 01991 Tvíliðaleikur sveina Ólafur Eggertsson/Ólafur Stephensen 1991 Tvenndarkeppni unglinga Aðalbjörg Björgvinsdóttir/lngibjörg Árnadóttir '1992 Tvenndarkeppni unglinga Guðmunda Kristjánsdóttir/Sigurður Jónsson 1993 Tvenndarkeppni unglinga Guðmunda Kristjánsdóttir/Sigurður Jónsson [1994 Tviliðaleikur karla Bjarni Bjarnason/Kristján Jónasson 1994 Tvenndarkeppni Aðalbjörg Björgvinsdóttir/Kjartan Briem [1994 Liðakeppni - 1. deild KR 1997 Tvenndarkeppni Sigurður Jónsson/Lilja Rós Jóhannesdóttir |Samtals 14 titlar Titlarnir sem gleymdust: Ar Grein Asamt | 1999 Tvenndarleikur Evu Jósteinsdóttur k 1999 Tvíliðaleikur Markúsi Árnasyni i L. íslandsmótið í borðtennis fór fram um helgina: Endurtekin saga Guðmundar og Guðrúnar Guðmundur E. Stephensen, Vík- ingi, fagnaði sigri í þeim þremur greinum sem hann tók þátt í á ís- landsmótinu í borðtennis sem fram fór um helgina. Guðmundur vann Kjartan Briem, KR, í úrslitíaleik ein- liðaleiks karla, 4-1 og þeir mættust svo aftur í tvenndarleik þar sem Guðmundur hafði aftur sigur ásamt Magneu Ólafs úr Víkingi gegn Kjart- ani og Guðrúnu G. Björnsdóttur úr KR, 3-0, Að síðustu vann hann tví- liðaleik karla ásamt Matthíasi bróð- ur sínum en þeir mættu KR-ingun- um Kjartani Briem og fngólfi Sveini Ingólfssyni. Ingólfur og Guðmund- ur hafa margsinnis áður unnið keppni í tvíliðaleik karla er Ingólfur var í Víkingi, þar sem hann hóf sinn feril. Guðrún Björnsdóttir vann tvö- faldan sigur annað árið í röð en hún hafði betur gegn Ragnhildi Sigurð- ardóttur úr Víkingi, 4-2, í úrslita- leiknum. Hún sigraði svo í tvíliða- leiknum ásamt Kristínu Hjálmars- dóttur en þær unnu þær Magneu og Ragnhildi, rétt eins og í fyrra. „Ég er miklu betur komin að sigrinum núna í ár finnst mér,“ sagði Guðrún við DV Sport í gær. „f fyrra vann ég bara þetta eina mót en nú finnst mér að ég eigi sigurinn verðskuldaðan og eru því strangar æfingar að skila sér." Þann 1. mars síðastliðinn kom út nýjasti styrkleikalisti Borðtennis- sambands Islands en þar sitja þau Guðmundur og Lilja Rós Jóhannes- dóttir, einnig úr Víkingi, í efsta sæti í flokki karla og kvenna. Guðmundur hefur nokkuð forskot á Vflcinginn Adam Harðarson en fast á hæla hans koma þeir Markús og Kjartan. eirikurst@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.