Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2006, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 2006
Fréttir DV
Framgangurí
ferðaþjónustu
Gistinóttum á hótelum í
janúar fjölgaði frá íyrra
ári um 4.600; í 40.600 úr
36.000 sem er 13 pró-
senta aukning. Þetta
kom fram í ff étt Hag-
stofunnar í gærmorgun.
Fjölgun gistinátta var
bæði vegna íslendinga og
útlendinga, þó var fjölgun
gistinátta íslendinga öllu
meiri, eða um 23 prósent, og
útlendinga 9 prósent. Á höf-
uðborgarsvæðinu fjölgaði
gistinóttum um 8,5 prósent
og fjöldi gistinátta fór úr
28.900 í 31.300. Gistinóttum
fjölgaði í öllum landshlutum
nema Suðurlandi, þar dróst
fjöldi gistinátta saman um
17 prósent. Greining ís-
landsbanka segir frá.
Fjöldi ökuníð-
m9a
Lögreglan í
Hafnarfirði
hélt áfram
hertu umferð-
areftirliti í síð-
ustu viku en það hefur bor-
ið þó nokkurn árangur.
Lögreglumenn höfðu af-
skipti af 80 ökumönnum
vegna umferðarlagabrota
og þar af 62 vegna hrað-
aksturs. Fjórir voru einnig
grunaðir um ölvunarakstur.
Miðað við fjölda ökuníð-
inga telst það ótrúlegt að
aðeins fimm umferðar-
óhöpp hafi verið tilkynnt til
lögreglunnar en þau voru
öll slysalaus.
Óskars-
verðlaunin
Ragnar Bragason
kvikmyndagerðarmaður.
„Mér fannst óskarsverðlaunin
hlægileg. Crash er versta
myndin sem hefur verið verð-
launuð fyrir„Besta myndin"
fyrr og síðar. Þetta er bara grín
og dálítið lýsandi fyrir stöðu
ameriskrar kvikmyndagerðar.
Brokeback Mountain eða
hvað sem er afhinu hefði
mátt vinna þennan flokk.
Myndin er tiltölulega illa gerö
og er ekkert nema boðskapur-
inn sem troðið er ofan I kok á
þér. Ég trúöi þessu ekki þegar
ég heyrði þetta i morgun."
Hann segir / Hún segir
„Mér fannst óskarsverðlaunin
svolítið ófyrirsjáanleg í ár sem
var mjög skemmtilegt. Verð-
launin dreifðust á mjög marg-
ar kvikmyndir og það fannst
mér jákvætt. Það voru margar
sterkar myndir, pólitlskar
myndir og jaöarmyndir. Þetta
var ekki svona „Titanic fékk ell-
efu verðlaun"ár svo það var
skemmtilegt. Það kom á óvart
aö Crash hefði unnið. Eftir að
Ang Lee sigraði, þá hélt ég að
Brokeback Mountain myndi
taka„Bestu myndina"."
Maríanna Clara
Lúthersdóttir
leikkona.
Þingmennirnir fjórir sem nú eru staddir á Taívan eru Arnbjörg Sveinsdóttir, Ásta
R. Jóhannesdóttir, Bjarni Benediktsson og Kristinn H. Gunnarsson Tvö þeirra
voru skráð með leyfi á íjarveruskrá Alþingis í gær en tvö voru aðeins skráð fjar-
verandi fyrir þingfundinn síðdegis. Samkvæmt reglum Alþingis ber þingmönnum
að sækja um leyfi ef þeir fara erlendis.
í einkaferð á fullum launum
Tveir þeirra þingmanna sem staddir eru í einkaferð á Taívan eru
skráðir fjarverandi á Alþingi og eru því á fullum launum í ferð-
inni. Tveir eru skráðir með leyfi og þiggja því ekki laun á meðan
á ferðinni stendur.
Þingmennimir fjórir sem nú em
staddir á Taívan í einkaferð í boði
stjórnvalda em þau Arnbjörg
Sveinsdóttir og Bjarni Benediktsson
frá Sjálfstæðisflokki, Ásta R. Jóhann-
esdóttir ffá Samfylkingunni og Krist-
inn H. Gunnarsson frá Framsóknar-
flokki. Athygli vekur að aðeins tvö
þeirra, þau Arnbjörg og Kristinn,
vom skráð með leyfi á fjarveruskrá
Alþingis en Ásta og Bjarni em aðeins
skráð fjarverandi. Samkvæmt regl-
um Alþingis ber þingmönnum að
skrá sig með leyfi ef þeir fara utan.
Að vera skráður fjarverandi þýðir að
viðkomandi er staddur á landinu og
skráningin þýðir að viðkomandi
heldur fullu kaupi sínu á meðan.
Samkvæmt upplýsingum frá Alþingi
er þingmaður launalaus ef hann fer
utan án þess að vera á vegum þings-
ins og kallar inn varamann í staðinn
fyrir sig.
Hörð gagnrýni
Eins og fram kom í frétt DV í gær
gagnrýndi Össur Skarphéðinsson
þessar Taívan-ferðir harðlega á
bloggsíðu sinni um helgina. Telur
hann það orka tvímælis að þing-
menn taki þessar ferðir, því þær
tengjast þinginu ekkert. Ambjörg
Sveinsdóttir er þessu ekki sammála.
Er DV náði tali af henni á Taívan
sagðist hún ekki geta tekið undir orð
össurar og taldi ekkert óeðlilegt við
för þeirra fjórmenninganna. „Við
höfum fyllilega rétt á því að kynna
okkur málefni Taívan eins og ann-
arra landa," segir Arnbjörg. DV náði
einnig tali af Kristni H. Gunnarssyni
en hann vildi ekki tjá sig um málið
fyrr en hann hefði séð það sem öss-
ur skrifaði um málið.
„Við höfum fyllilega
rétt á því að kynna
okkur málefni Taívan
eins og annarra
landa."
Sjálfsagt að fara þangað
Sigurður Kári Kristjánsson er
einn þeirra þingmanna sem farið
hefur í ferð til Taívan í boði stjórn-
valda þar. „Mér fannst sjálfsagt að
fara þangað fyrst þeir buðu manni
og kynnast því hvernig kaupin ger-
ast á eyrinni," segir Sigurður Kári.
„Ef maður getur lagt sitt lóð á vogar-
skálarnar í samskiptum þeirra við
Kínverjana. Þeir eru náttúrlega að
berjast fyrir sínu sjálfstæði og berj-
ast fyrir aðild að WHO."
Rugl í össuri
Sigurður Kári spyr hvaða rugl
þetta sé í össuri með að kalla ræðis-
manna Taívan hérlendis, Heimi
Hannesson lögmann, lítinn, skrýt-
inn kall. Maðurinn sé
einfaldlega ræð-
ismaður
landsins og að sinna vinnu sinni
sem slíkur. „Auðvitað eru þeir að
iobbía í okkur þingmönnum í leit
eftir stuðningi," segir Sigurður Kári.
„Við sem bæði styðjum lönd sem
vilja öðlast sjálfstæði og teljum að
þau hafa eitthvað til síns máls - þá
er ekki óeðlilegt að við förum og
hiustum á hvað þau hafa til málanna
leggja. Afstaða Óssurar er út í bláinn
og ummæli hans um Heimi einnig."
Töluverður fjöldi farið
Töluverður fjöldi þingmanna
hefur þegið boð um ferð til Taívan.
Þannig voru með Sigurði Kára í hans
ferð þeir Pétur Blöndal, Jón Gunn-
arsson, Björgvin G. Sigurðsson og
sagnfræðingurinn Guðni Th. Jó-
hannesson sem skrifaði forsetabæk-
ur Kristjáns Eldjám. Sigurður segir
að það séu því ekki bara þingmenn
sem þiggi ferðir til Taívan.
f einkaferð til Taívan Arnbjörg Sveinsdóttir og
Kristinn H. Gunnarsson eru með leyfi frá Alþingi og
þiggja þvi ekki laun meðan á ferðinni stendur Asta
R. Jóhannesdóttir og Bjarni Benediktsson eru hins
vegarskráð fjarverandi og þviá fullum launum
Forsvarsmenn Icelandair auglýsa störf í pólskum fjölmiölum
Ráða sextíu Pólverja í
„Margir sóttu um og nú erum við
að vinna í því að finna starfsfólk sem
uppfyllir þær kröfur sem við setjum
varðandi tungumálakunnáttu og
ýmislegt annað," segir Jón Karl
Ólafsson, forstjóri Icelandair, í sam-
tali við Fréttabréf Félags íslenskra
atvinnuflugmanna.
Tilefnið er ráðning Icelandair á
Pólverjum í hlaðdeild fyrirtækisins.
Þetta staðfestir Gunnar S. Olsen,
framkvæmdastjóri Flugþjónustunn-
ar, sem er dótturfyrirtæki Icelandair.
Icelandair Bætist i hóp fyrirtækja á Islandi sem
ráða Pólverja þvi Islendingar vilja ekki störfin.
Jón Karl Ólafsson Ætlar að ráða Pólverja I
hlaðdeildina á Keflavikurflugvelli.
Icelandair hefur nú þegar auglýst
í pólskum fjölmiðlum. Forsvars-
menn félagsins flugu til Póllands og
ræddu þar við 100 manns sem sóttu
um starfið á Islandi.
„Okkar niðurstaða er einfaldlega
sú að það er ekki til sá fjöldi af fólki
sem okkur vantar á vorin og sumrin.
Það er ekki til þessi fjöldi af mönn-
um sem er laus á þeim tíma," segir
Gunnar S. Olsen, sem telur launin
hlaðdeildina
&
ekki vandamálið.
„Við höfum stílað mikið inn á
námsfólk en nú er skólinn að lengj-
ast. Námsfólkið hættir seinna
og fer fyrr aftur í skólana
svo sá hópur er ekki að
skila sér inn á þann tíma
sem okkur hentar í því
magni sem var," segir
Gunnar.
„Við erum búnir að
vera eins og biluð
plata um það að
ráðleggja þeim
að hækka laun-
in. Þó að það
væri ekki
bara nema
til þess að
elta launa-
skriðið í
landinu en
það hafa
Kristján Gunnarsson
Formaður Verkalýðs-
og sjómannafélags
Keflavlkur segir fólkið
koma til lcelandair ef
þeir hækka launin.
þeir ekki verið fáanlegir til að gera,"
segir Kristján Gunnarsson, formað-
ur Verkalýðs- og sjómannafélags
Keflavíkur.
„Pólverji sem kemur hingað með
enga starfsreynslu og fer að vinna í
hlaðdeildinni á svokölluðum dag-
vöktum, það er að segja ekki með
neinar sérgreiðslur, er með í
kringum 151 þúsund krónur á
mánuði. Það er fyrir
182 tíma vinnu,"
segir Kristján.
Samkvæmt
heimildum
DV þurfa
Pól-
verjarnir
sem hing-
að koma að
borga flug-
farið hingað
sjálfir.