Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2006, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2006, Blaðsíða 19
DV Sport ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 2006 19 Logi með 77 stigítveimur leikjum Logi Gunnars- son, landsliðsmað- ur og leikmaður Bayreuth í Þýska- landi, gerði 34 stig fyrir Bayreuth á laugardaginn er liðið valtaði yfír Coocoon Baskets Weiden, 106-71, í suðurriðli þýsku 2. deildar. Þá hefur Logi gert alis 77 stig í tveimur leikjum, en fyrr í vik- unni setti hann niður 43 stig gegn TSVTröster, þar af 40 stig í seinni hálfleik. Logi er níundi stigahæsti leikmaður deildarinnar með 19,3 stig að meðaltali í leik, en Bayreuth er enn í 5. sæti deildarinnar. Sigurganga Phoenixtelur núlOleiki Phoenix Suns í NBA-deildinni í körfubolta hefur unnið tíuleikiíröð eftir 115-107 sigurá Dallas á útivelli. Boris Diaw var með þrefalda tvennu í liði Suns, 24 stig, 10 ffáköst og 10 stoðsendingar, Steve Nash bætti við 25 stig- um og 11 stoðsendingum og Shawn Marion var með 22 stig og 10 fráköst. Dallas hafði fyrir leikinn unnið 16 heima- leiki í röð. Dirk Nowitzki skoraði 25 stig fyrir Dallas en hitti aðeins úr 1 af 5 skotum sínum í fjórða leikhlutanum sem Phoenix vann 34-18. Heimir verðlaunaður afKSÍ Eyjamaðurinn Heimir Hallgrímsson fékk sérstök verðlaun fyrir bestan námsár- angur þegar KSÍ útskrifaði í fyrsta sinn þjálfara með UEFA A-þjáífaragráðu en hún er hæsta þjálfaragráða sem er í boði á íslandi og næst hæsta þjálfaragráða sem UEFA við- urkennir. Þjálfarar með UEFAA-gráðu hafa leyfi til að þjálfa alla flokka og í öUum deildum á íslandi. Hæsta þjálfaragráða UEFA er svo UEFA Pro-þjálfaragráða, en KSÍ stefhir á að bjóða upp á UEFA Pro-þjálfaragráðu í samvinnu við enska knatt- spymusambandið innan fárra ára. Það þarf eitthvað mikið til að skyggja á leik Barcelona og Chelsea í 16-liða úrslit- um meistaradeildarinnar í knattspyrnu. Fyrri leikur liðanna var óhemju spennu- hlaðinn og var þó aðeins forleikur fyrir viðureign kvöldsins. Mikið hefur verið rætt og ritað um rauða spjaldið sem Del Horno fékk en ekkert slíkt skiptir neinu máli í kvöld þegar dómarinn flautar leikinn á. Jose Mourinho Virðist skelkaður á blaðamannafundi I Barcelona fgær. Þóttist þó svalur á flugvellinum. Leikmenn og aðstandendur liðs Chelsea fengu heldur óblíðar móttökur við komuna til Barcelona en hðin mætast á Nou Camp í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum meistaradeildarinnar. Börsungar standa heldur betur að vígi eftir að hafa unnið fyrri leikinn, 2-1. í honum var Asier Del Homo rekinn af velli snemma leiks og vilja Englandsmeistararnir sjálfsagt hefna ófaranna. Jose Mourinho, knattspyrnu- stjóri Chelsea, ásakaði Lionel Messi um leikaraskap en Del Horno fékk rauða spjaldið fyrir meint brot á hin- um unga Messi. Hann svaraði um hæl og sagði alla leikmenn Barcelona hata Chelsea af lífi og sál. Og það er greinilegt að Mourinho er ekki vinsælasti maðurinn í Barcelona í dag. „Þetta voru mjög ögrandi að- stæður," sagði myndatökumaður sem starfar hjá sjónvarpsstöð Chel- sea í samtali við vefsíðu félagsins. „Og það voru margir sem höfðu hvöss orð gagnvart Mourinho. En hann hunsaði þetta og þá tóku hinir að beita dónalegum handahreyfing- um og hrækja,“ sagði Startup og bætti við að svo virtist sem aðrir í föruneyti liðsins hafi lítið kippt sér upp við þessa uppákomu. Hann sagði einnig að fúrðulega fáir lög- regluþjónar hafi verið á svæðinu og að þeir hafi ekki haft neinn sérstak- an áhuga á að koma í veg fyrir þessa hegðan. Leikarar eru í kvikmyndum Mourinho var áður aðstoðar- maður Bobby Robson hjá Barcelona en það er greinilegt að hann á ekkert inni hjá stuðningsmönnum liðsins. Og hinn átján ára gamli Messi sagð- ist helst vilja þagga í Mourinho með því að slá lið Chelsea úr leik. „Ég vil að ég nái að framkalla bestu frammistöðu ferils míns í þessum leik til að þagga niður í munni Mo- urinho og leikmönnum hans," sagði Messi. „Þeir halda því fram að ég sé leikari. Það er ekki rétt hjá þeim. Ég er atvinnumaður í knattspyrnu og hef þegið mörg spörk á tímabilinu. Leikarar starfa í kvikmyndum en ekki í íþróttum," sagði Messi og var greinilega ekki að flækja hlutina neitt sérstaklega. Fótboltapersóna „Del Horno hafði líka ýmislegt um mig að segja. Það var ekkert skrýtið svo sem þar sem hann komst aldrei nálægt mér þar tii hann braut á mér," sagðí Messi. Öllu rólegri var Portúgalinn Deco, félagi Messi og fyrrum læri- sveinn Mourinho hjá Porto. „Mour- inho hefur skapað „fótboltaper- sónu" sem brýst út þegar hann vill hita upp fyrir leik eða ögra andstæð- ingnum," sagði Deco. „Sú persóna er ekkert lík hans rétta manni. En hann hefur sínar aðferðir til að und- irbúa sig fyrir leiki sem þessa." Eldheitir stuðningsmenn í fyrra höfðu Börsungar einnig 2-1 forskot eftir fýrri leik liðanna þegar þau mættust f 16-liða úrslitum meistaradeildarinnar. Þá átti hins vegar Chelsea eftir síðari leikinn á sínum heimavelli þar sem þeir unnu, 4-2. Börsungar geta byggt á þeirri reynslu í kvöld auk þess að stóla á eldheita stuðningsmenn sem munu án nokkurs efa láta öllum ill- um látum á afar þétt skipuðum áhorfendabekkjum Nou Camp. eirikurst@dv.is LEIKIR KVÖLDSINS Úrslit fyrri leiks í sviga Barcelona-Chelsea (2-1) Juventus-Werder Bremen (2-3) Villarreal-Rangers (2-2) v/s/r NFS ER A VISIR.IS Bein útsending á VefTV og upptökur þegar þér hentar Visir.is er stœrsta fréttalind tandsins. Þar miðta Fréttabtaðið og Nýja fréttastofan fréttum altan sótarhrínginn og nú er NFS í be'mni á VefTV frá morgni til kvölds. Þú fœrð fréttimar beint í œð í vinnunni eða heima og upptökur af fréttum dagsins tryggja að þú missir ekki af neinu. [. ffl m ,, j

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.