Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2006, Qupperneq 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 2006
Fréttir DV
Ólöglegir
starfsmenn
Lögreglan á Akranesi
hefur að undanförnu fylgst
með atvinnuþátttöku út-
lendinga á svæðinu og hef-
ur það efirlit tekist vel ef
marka má fréttir lögregl-
unnar. Hún stöðvaði vinnu
þriggja útlendinga í síðustu
viku sem störfuðu hjá ótil-
greindu fyrirtæki í bænum.
Við nánari eftirgrennslan
kom í ljós að atvinnuleyfi
eins mannanna hafði verið
afturkallað af Vinnumála-
stofnun Ríkisins en leyfi
hinna tveggja voru útrunn-
in.
Reif kjaft
Lögreglunni á Akranesi
barst kæra vegna líkams-
árásar núna um helgina.
Ungur maður, innan við
tvítugt, er sagður hafa ráð-
ist á mann sem sat í bfl á
bflastæði í bænum og sleg-
ið hann í andlitið. Félagi
þess sem fyrir högginu varð
reyndi að grípa inn í en
uppskar kjaftshögg. Nokk-
uð sá á félögunum en þegar
lögregla bað árásarmann-
inn um skýringu á árásinni
sagði hann að sá sem varð
fyrir högginu hefði verið að
„rífa kjaft".
Hvað liggur á?
Verka- ‘ ...
lýðs- og sjómannafélags
Keflavíkur.„Menn eru á fleygi-
ferð þegarþeir eru að vinna í
mörgu og þá liggur manni
alltafá
Guðmundur Ingi Kristinsson segir að yfirlæknir bæklunardeildar Landspítala -
háskólasjúkrahúss, Yngvi Ólafsson. ætti að láta að störfum eftir að Persónuvernd
úrskurðaði að Yngvi hefði gerst sekur um brot á lögum um persónuvernd. Yngvi
fór í heimildarleysi í sjúkragögn Guðmundar þegar hann var að vinna álit fyrir
tryggingafélag sem Guðmundur stóð í málaferlum við.
Yfirlæknir
braut lög um
personuvernd
Persónuvemd hefur úrskurðað að læknir á Landspítala - háskóla-
sjúkrahúsi, Yngvi Ólafsson, hafi gerst sekur um brot á lögum um
persónuvemd þegar hann fór í sjúkragögn Guðmundar Kristins-
sonar í maí á síðasta ári. Guðmundur er afar ósáttur við vinnubrögð
læknisins, segir hann hafa brotið trúnað og vill að Yngvi víkji.
Auk þess að vera yfirlæknir á
bæklunardeild LSH starfar Yngvi
Ólafsson sjálfstætt. Meðal annars
sem trúnaðarlæknir Vátryggingafé-
lags íslands (VÍS).
Það er álit Persónuvemdar að
Yngvi hafi verið að vinna fyrir VÍS
þegar hann fór í sjúkragögn Guð-
mundar Inga Kristinssonar í maí á
síðasta ári. Guðmundur stóð á sama
tíma í málaferlum við VÍS vegna
skaðabóta sem hann telur sig eiga
rétt á frá félaginu vegna bflslyss sem
hann lenti í árið 1999. VÍS neitaði að
greiða og byggði álit sitt meðal ann-
ars á niðurstöðum Yngva Ólafsson-
ar. Upplýsingarnar sem Yngvi not-
aði til að vinna álit sitt virðast hins
vegar, miðað við úrskurð Persónu-
verndar, hafa verið fengnar með
ólögmætum hætti.
Uppvís að ósannindum
I fýrstu þvertók Yngvi fyrir að
hafa skoðað sjúkraskrá Guðmundar.
Persónuvernd fór þá fram á útskrift-
ir úr tölvukerfi Landspítalans. í þeim
kom skýrt fram að Yngvi hafði farið
inn í sjúkraskrá Guðmundar á sama
tíma og hann var að vinna álit sitt
fyrir tryggingafélagið sem Guð-
mundur átti í deilum við.
Hefur brugðist öllu trausti
Þessi úrskurður staðfestir það
sem ég hef lengi sagt," segir Guð-
„Yngvi misnotar gróf-
lega aðstöðu sina sem
yfirlæknir bæklunar-
deildar."
mundur IngiKristinsson sem ætlar
lengra með málið, fliugar jafnvel
málsókn. „Yngvi misnotar gróflega
aðstöðu sína sem yfirlæknir bækl-
unardeildar. Hann braust inn í
sjúkraskrárnar mínar og stal upplýs-
ingum. Yngvi hefur með þessu
brugðist öllu trausti og ætti að víkja
sem yfirlæknir."
Áminningarvert brot
Það er Jóhannes Gunnarsson,
lækningaforstjóri Landspítala - há-
skólasjúkrahúss, sem er ábyrgðar-
maður sjúkragagna spítalans. Jó-
hannes vildi ekki svara spurningum
um málið í gær og vísaði þess í stað
á Niels Nielsen aðstoðarlækninga-
forstjóra.
Niels sagðist ekki hafa séð úr-
skurð Persónuverndar þegar DV
hafði samband við hann í gær. Hann
sagðist hins vegar ætla að fara yfir
málið með Yngva hið fyrsta. Hann
sagði að reyndist það rétt að Yngva
hefði verið óheimilt að fara í sjúkra-
skrár Guðmundar væri um áminn-
ingarvert brot að ræða.
Yngvi
Ólafsson svar-
aði ekki skilaboð-
um í gær og því náðist
ekki að fá viðbrögð
hans við úrskurði
Persónuverndar.
andri@dv.is
Yngvi Ólafsson
Braust inn í sjúkragögn
og notaði upplýsing-
arnar l sérfræðiálit fyrir
tryggingafélag.
£
rir alU
Barnaafmæli
Bekkjafferðir
Frábær skemmtun
fyrir allan hópinn.
Tilboðspakkar
Keramik og pizza frá
kr. 990 á mann.
Keramik fyrir alla,
sími S52 2882, Laugavegi 48b.
Sjá lýsingu: www.keramik.is
Akureyringurinn sem klæmdist í símann við börn yfirheyrður í vikunni
Spurði hvort þau hefðu séð foreldrana í samförum
Rannsóknarlögreglan á Akureyri
tekur til yfirheyrslu nú í vikunni
mann sem talinn er hafa staðið fyr-
ir hringingum í börn og viðhaft
klámfengið orðbragð við þau.
Um er að ræða mann á fertugs-
aldri sem virðist hafa hringt í börn
á aldrinum tíu til þrettán ára og
spurt þau klámfenginna spurn-
inga.
Foreldrar sex barna hafa kært
þetta athæfi mannsins sem gekk út
á að hringja af handahófi í börn og
spyrja þau fyrst að því hvort þau
væru ein heima. Þegar maðurinn
var búinn að fá staðfest að börnin
væru ein heima fór hann að spyrja
þau um ósæmilega klámfengna
hluti. Samkvæmt lögreglunni á Ak-
ureyri spurði maðurinn börnin til
dæmis: „Hefur þú séð mö®mu og
pabba ríða?" og annarra spurninga
í þessum dúr.
Símafyrirtækin hafa unnið með
lögreglunni við rannsókn málsins
og hefur lögreglunni tekist að
rekja símtölin til þessa ákveðna
manns þrátt fyrir að hann hafi
hringt úr farsíma með óskráðu
númeri.
Þau klámfengnu símtöl við börn
sem tekist hefur að rekja til manns-
ins eru frá því í desember og síðan
virðist hann hafa byrjað aftur því
nýjasta símtalið var 18. febrúar.
Lögreglan á Akureyri telur sig hafa
nægar sannanir til að ákæra mann-
inn fljótlega.