Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2006, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2006, Page 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 2006 Sport DV McCarthyrekinn Sunderland hefur rekið knattspymustjór- ann Mick McCarthy úr starfi og þykir mörgum furðulegt að það skuli hafi verið gert nú, svo löngu eftir að Ijóst varð að Sunderland myndi falla um deild í vor. Liðið án stigum frá því að bjarga sér frá falli. Segir talsmaður félagsins að þessi ákvörðun hafi verið tekin þar sem hún þótti henta hags- munum beggja aðila. „Ég naut hverrar mínútu," sagði McCarthy er hann kvaddi félagið í gær. Rauða spjaldi Robben mótmælt Chelsea hefur mót- mælt formlega því rauða spjaldi sem Arjen Robben fékk þegar hann var rekinn af velli í leik Chelsea og West Brom. um helgina. fékk rautt hjá Mark Halsey, dóm- ara leiksins, eftir tæklingu á Jon- athan Greening í leik liðanna á laugardaginn. Málið verður tekið fyrir hjá enska knattspymusam- bandinu í dag sem staðfesti í gær að krafa þessi hefið komið ffá Englandsmeisturunum. Robben er sext- 19.15 Valur-HK í DHL- deildkvenna. 19.30 Barcelona-Chelsea í meistaradeildinni á Sýn. 19.30 Juventus-Werder Bremen í meistaradield- inni á Sýn Extra. 19.30 Villarreal-Rangers í meistaradeildinni á Sýn Extra2. 20.00 Fram-Stjarnan í DHL-deild kvenna. 21.35 Meistaradeildar- mörkin á Sýn. Bjarni Guðjónson lék sinn fyrsta leik með Skagamönnum um helgina þegar Skaga- menn unnu öruggan 4-0 sigur á Víkingum í deildabikarnum. Ólafur Þórðarson er ánægður með sinn mann sem spilaði hinum megin á vellinum þegar hann lék síð- ast með ÍA-liðinu fyrir tæpum níu árum. U \j uli ■J smum fyrsta leik Bjarni Guðjónsson er kominn til landsins og farinn að spila með Skagamönnum í deildabikarnum. Spekingum hefur verið tíðrætt um brotthvarf beggja miðvarða Skagamanna og sumir hafa áhyggjur af vörninni í kjölfarið. Ólafur Þórðarson átti aftur á móti í Bjarna ás upp í erminni fyrir leik liðsins gegn Víkingum en þá lék Bjarni einmitt sinn fyrsta leik í búningi Skagans í tæp níu ár. éjíjjsbujj Miðvörður í Varnarleikurinn hafði ekki geng- ið alltof vel í tveimur síðustu leikjum Skagamanna í deildabikarnum en þeir þurftu í þeim að sækja boltann fimm sinnum í markið sitt. í hjarta vamarinnar gegn Víkingum var kominn Bjarni Guðjónsson og um leið og liðið hélt áfram að skora og halda hreinu, þá hélt Skagavörnin hreinu og Bjarni sýndi og sannaði fyrir þjálfaranum sem og öðrum Skagamönnum að hann gæti verið lausnin á títt nefndu vandamáli. Ólafur Þórðarson var ánægður með Bjarna í leiknum. Mjög ánægður með Bjarna „Hann gæti alveg verið lausnin á þessari stöðu. Ég var mjög ánægður með hann í þessum leik. Bjarni var líka alveg fullkomlega sáttur við að fá að reyna sig þarna og það er al- veg ljóst að hann gefur okkur ákveðna möguleika með því að geta leyst þess stöðu svona vel. Við erum ekkert búnir að gefa það upp á bát- inn að finna okkur miðvörð en það minnkar náttúrulega eitthvað þörf- in á því ef að þetta gengur svona vel,“ sagði Ólafur Þórðarson, þjálf- ari ÍA, um þetta útspil sitt gegn Vík- ingum. Fá haus til að stjórna þeim „Það er alveg ljóst að við höfum orðið fyrir miklum missi að missa tvo hafsenta sem hafa verið eitt sterkasta hafsentaparið á landinu síðustu árin. Við leysum það samt einhvern veginn. Við erum með þrjá stráka sem hafa verið að spila í ung- lingalandsliðinu og geta leyst þessa stöðu. Það var spurning um að fá haus til þess að stjórna þeim og það er það sem Bjarni er að gera og gerði mjög vel í þessum Víkingsleik," segir Ólafur en Skagamenn hafa þurft að horfa á eftir þeim Gunnlaugi Jóns- syni (til KR) og Reyni Leóssyni (til Svíþjóðar). Hafa þroskast vel Síðast þegar þeir bræður Þórður og Bjarni Guðjónssynir léku í ís- lenska boltanum voru þeir fram- herjar en það er líklegt að þeir verði báðir mun aftar á vellinum í sumar. „Bjami og Þórður eru leikmenn sem hafa þroskast hægt og rólega sem leikmenn og hafa þroskast vel. Þeir hafa mikinn leikskilning og geta skilað mörgum stöðum á vell- inum. Flestir íslenskir leikmenn upp- lifa það þegar þeir fara utan að þá fá þeir ekki alltaf að spila stöðuna sem þá dreymdi um að spila. Hægt og rólega læra þeir að spila aðrar stöð- ur og fá þann leikskilning til að geta skilað fleiri en einni stöðu á vellin- um," segir Ólafur sem var með Bjarna í vörninni og Þórð á miðj- unni í sigurleiknum gegn Víking- Lausnin fundin Bjarni Guðjónsson og Úlafur Þórðarson sjást hér gleðjast yfír Islandsmeistaratitli haustið 1996. Kannski fagna þeir aftur titli í septem ber næstkomandi. DV-mynd Brynjar Gauti velkominn Bjarni! BjarniGuð- jónsson sést hér fá góðar viötökur eftir að hafa unnið titilinn með Skagamönnum 1996. Hver veit nema einn affélögum hans I Skagaliðinu sé í hópi stuðnings- mannana á þessari skemmtilegu mynd. DV-mynd Brynjar Gauti Búum til mikið af færum „Það er ánægjulegt að sjá strák- ana skora svona mikið af mörkum. Við erum að búa til mikið af færum og klára mikið af þeim líka og það er frábært," sagði Ólafur ennfremur en Skagamenn hafa skorað 13 mörk í fyrstu fjórum leikjum deildabikars- ins. Þórður Guðjónsson á þó enn eftir að komast á blað. „Doddi hefur verið standa sig ágætlega en hann er kannski að vinna ákveðna vinnu sem margir horfa ekki á. Hann á töluverðan þátt í því að sóknarleikurinn er að ganga svona vel," sagði Ólafur um Þórð en næsti leikur Skagamanna er gegn gegn KR í Egilshöllinni 18. mars. ooj@dv.is í vetur Ný tæki - Betna verð! suwDKiowe n -j nnn i/.auu.- /i n nnn IFIMJEX IC.dUU.- _____... ailt. fyrir kropoinn HREYSTI BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR • Hurðir tíl á lager • Smíðað eftir máli • Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir GLÓFAXIHK ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236 Hí ELLUR G. Tómasson eht • Súóarvogl 6 com • sími: 577 6400 • www.hvellur.com / einum grænum • hveiiur@hvenur.com Varúðarráðstafanir FIFA fyrir HM í Þýskalandi næsta sumar Allir leikmenn á HM 2006 þurfa að fara í læknisskoðun Féll á lyfjaprófi í 1994 Steersta lyfja- hneykslið Isögu HM til þessa var þegar Diego Maradona féll á lyfja■ | prófí á HM 1994Í Bandarikjunum. DV-mynd Nordic Photos/Getty Allir leikmenn á komandi heimsmeistararamóti í knattspyrnu næsta sumar þurfa að gangast und- ir sérstaka læknisskoðun fyrir keppnina. FIFA gaf þetta út í gær en það sem verður leitað sérstaklega að er hvort viðkomandi leikmenn hafi hjartagalla. Aðalástæðan fyrir þessu er hinn sorglegi atburður á Álfukeppninni fyrir tæpum þremur árum þegar Kamerúninn Marc Vivien Foe lést í miðjum undanúr- slitaleik Kamerún og Kólumbíu. Foe var aðeins 28 ára og ekki tókst að lífga hann við en leikurinn fór fram í Lyon í Frakklandi. FIFA mun einnig koma upp fullkominni að- stöðu til endurlífgunar á öllum tólf keppnisvöllunum en það þurfti að fara með Foe alla leið á spítalann áður en endurlífgun hans gat hafist þennan örlagaríka dag, 26. júní 2003. „Þetta er mikil framþróun og við erum fyrsta alþjóðaíþróttasam- bandið til að gera þetta. Við lítum svo á að við séum að gefa tóninn fyrir framtíðina," sagði Jiri Dovak yfirmaður heilbrigðismála hjá FIFA. Auk þess að allir leikmenn sem koma til með að taka þátt í HM í Þýsklandi þurfa að fara í fyrrnefnda læknisskoðun þurfa læknar allra liðanna 32 að skrifa undir sérstök skjöl sem lúta að reglum og starfs- háttum þeirra fyrir og á meðan keppninni stendur. Að minnsta kosti fjórir leikmenn úr hverju liðið verða síðan teknir án viðvörunar í lyfjapróf meðan á mót- inu stendur og þá munu læknar FIFA einnig gera lyfjapróf í vináttu- landsleikjum sem verða spilaðir í apríl og maí. Stærsta lyfjahneykslið í sögu HM til þessa var þegar Diego Maradona féll á lyfjaprófi á HM 1994 í Banda- ríkjunum en hann hafði eins og kunnugt er leitt Argentínu til heimsmeistaratitilsins 1986 og í úr- slitaleikinn fjórum árum síðar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.