Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2006, Qupperneq 23
IXV Lífsstíll
ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 2006 23
Sjálfstæður og þrjóskur
Guðmundur E. Stephensen
erfæddur 29.06.1982
Lifstala Guðmundar er 1
Ufstala er reiknuö út frá fæö-
ingardegi. Hún tekur til eigin-
leika sem eiga öðru fremur að móta líf
viðkomandi.
Eiginleikar sem tengjast þessari tölu
eru: Frumkvæði, forsvar, sjálfstæði og
árangur - hættir til þrjósku og það eitt
heldur honum við efnið og að standa
sig I sportinu.
Árstala hans fyrir árið 2006 er 7
Árstala Guðmundar er reiknuð út frá
fæðingardegi og þvl ári sem við erum
stödd á. Hún á að gefa vísbendingar um
þau tækifæri og hindranirsem árið færir
okkur.
Rlkjandi þættir I sjöunni eru: Ufsskoðun
og skilningur. Einnig segirsjöan að þessi
drengur gerirýmislegt fyrir aðra af
hreinni góömennsku. Hann skynjar til
fulls hvað undirmeðvitund hans ráð-
leggur honum árið framundan.
Óvæntir hlutir birtast
sköpun og frelsi
Helgi Þorgils Friðjónsson myndlistarmaður er 53
ára (dag 7. mars
Þegar stjörnukort listamannsins er skoðað kemur
skýrt fram að óvæntir hlutir koma fram á sjónar-
sviðið þegar hjarta hans er skoðað með komu
vorsins þar sem umhyggja og djúpur fögnuður
hans eigin anda verða nánast áþreifanleg af hans
hálfu.
Hrein sköpun og frelsi bíða hans því hann
hefur væntanlega ákveðið innra með sér að
upplifa af frjálsum vilja töfra tilveru sinnar.
J.Lo-útlitið „4//ur
glamúr kemur lika
sterkur inn og þá eru
Ijósir litiráberandi vin-
I sælir. J.Lo-útlitið eins og
við köllum það.
Stjörnuspá
„Það var virkilega gaman,"
svarar Þórunn Gunnarsdóttir, yf-
irkona snyrtivara í Hagkaupum,
aðspurð um stemninguna sem
ríkti þegar ilmur Robertos Cavalli
var kynntur um helgina. „Ilmur-
inn er mjög góður. Cavalli er ekki
þannig stórt nafn á fslandi en ef
fólk fylgist með verðlaunaaf-
hendingum eins og Óskarnum á
sunnudag, þá er alltaf ein og ein
stórstjarna í Cavalli-kjól."
Gull, bleikur og brons
„Það er rosalega mikið um
bleika litinn og þennan gráa líka,"
svarar Þórunn er Lífsstíll forvitnast
um vinsælu litina í förðunarvörum í
ár og heldur áfram að útlista fyrir
Lífsstll hvað íslenska kvenþjóðin
vill:
„Skemmtilegir litir eins og gyllt-
ur, sem er vinsæll um þessar mund-
ir, en hann hefur ekki verið mildð
inni imdanfarið. Hann er vinsæll
núna. Svo er bronslúkkið áberandi
líka og þá aðallega í augnskuggum.
Það á við í kinnalitum, stardusti,
eyeliner og varalitum.
J.Lo-lúkkið, glamúr og
gleði
„Allur glamúr kemur líka
sterkur inn og þá eru ljósir litir
áberandi vinsælir. J.Lo-útlitið
eins og við köllum það," segir
hún og hlær og útskýrir að J.Lo-
litirnir séu ljósir litir og glossin
líka. Mikið „shine" og það er
skemmtilegt að segja frá því að
nánast allt er leyfilegt þegar kem-
ur að förðunarvörum í dag.
Kinnalitirnir og sólarpúðrið eru
mest áberandi. Bronsútlitið legg-
ur áherslu á ferskleikann," segir
hún og bætir við að íslenskar
konur kaupi nánast allt. Ekkert
eitt standi sérstaklega upp úr í
innkaupum. „Þær eru meðvitað-
ar um útlit sitt og þá ekki síður
kremin þegar kemur að húðum-
hirðu."
mmBmmmmmmmmamam
MmmiHMmiiWMmm ■imiiiiibiíbmiiií
Hugum vel að krullunum
IJNv,
Helena Hólm
hárgreiðslumeistari
Vortískan
býður upp á
fallega liðað
I eða viilt hár
Háriö
Sumirhverjir
sem eru með
liðað hár hafa
ekki tileinkað
sérað hugavel
að þvi og leyfa krullunum að njóta sln og
slétta jafnvel hárið daglega. Gott er að
prófa að hafa það liðað því það kemur á
óvart efhárið er rétt höndlað. Efþú ert
meðal þeirra sem hafa liði og finnst hárið
alltafvera úfið eða ekki njóta sín eru hér
nokkur góð ráð sem gætu komið að gagni.
Fíngert hár
Veldu sjampó og næringu fyrir flngert hár.
Notaðu næringu sem ekki þyngir hárið og
settu froðu eða mjúkt gel í það. Greiddu
siðan í gegnum hárið með fíngrunum og
leyfðu því að þorna náttúrurlega. Alls ekki
blása það. Um að gera að setja fíngurna
annað slagið igegnum hárið meðan það
þornar og kreista það milli fingranna. Ráð-
legt er að setja siðan smá vax llófann og
kreista endana létt. Ekki greiða það. Siðan
er tilvalið að spreyja léttu glanslakki svo
liðirnir haldistyfir daginn.
Gróft hár
Þvoðu hárið og settu góða djúpnæringu i
það. Notaðu siðan næringu eða krem sem
ráðlegt er að skilja eftir ihárinu sem veitir
góðan raka. Notaðu frekar mikið I endana.
Einnig er gott að setja„glase"eða„pomade
vax“og greiða i gegnum það með grófri
greiðu. Um að gera að nota síðan blásara
og þá vægan blástur. Haltu blásaranum
svolítið frá hárinu svo það verði ekki úfið.
Fituvax er einnig æskilegt fyir gróft hár því
það gefurþví fallegan gljáa.
Sumar konur nota rúllur og þá er um að
gera að skoða úrvalið i búðunum og biðja
um ráðleggingar. Samhliða rúllunum er
ráðlegt að nota létta froðu eða efni sem
kllstrar ekki hárið áður en rúllurnar eru
settar i. Eftir að froðan er sett í hárið eru
rúllurnar settari hálfþurrt hárið. Hárlakki
siðan spreyjaö yfir. Æfingin skapar meistar-
ann.
Kær kveðja,
Helena Hólm hárgreiðslumeistari.
Mnsbemn (20. jan.-18.febr.)
Þroski, áræðni, dugnaður, sjálf- !
stæði og ekki síður reynsla þín kemur hér
fram. Stöðuhækkun sem tengist starfi
eða nýtt starf kann að vera framundan
hjá þér ef marka má vatnsberann.
Fiskarnir (19. febr.-20. mars)
Ákveddu þig hvert þú ætlar þér;
og hvernig þú kýst að nýta vitsmuni þína
og tíma. Þú virðist vita hvert þú ætlar þér
í lífinu og hvernig markmiðum skal náð
og ekki síst hvar tækifærin liggja. Metn-
aður, drifkraftur sem sjaldan sést, og
eiginleiki og vilji til að ganga ófarinn veg
býr greinilega innra með þér.
Hrúturinn (21.mars-19.aprn)
Heiðarleiki og hlýja einkennir
hrútinn þegar kemur að fólkinu sem
hann elskar. Oft á tíðum er hann ekki í
sambandi við eigin tilfinningar þegar
kemur að sjálfinu.
NaUtÍð (20. aprd-20. mal)
-----------—---------------------- |
Nautið er orkumikið um þessar
mundir. Sjálfsöryggi, skipulag og agi
einkennir þig að sama skapi. Þú munt
vafalaust virkja drauma þína samhliða
gjörðum þínum fyrir lok mars mánaðar.
Tvíburarnirp; . maí-21.júnl)
Um þessar mundir stendur þú
jafnvel í sporum þar sem þú ættir að
huga vel að jafnvægi þínu (andlegt og
líkamlegt). Finndu takt þinn ef upp
kemur verkefni sem krefst vitsmuna
þinna og aðhalds af þinni hálfu.
Krabbinnf22.;ún/-27.;ú/fl
Samviskusamlega gefur þú
þig alfarið í verkefni sem tengist þér
faglega og uppfýllir þar með kröfur
annarra og á sama tíma eigin líðan. Við-
urkenning fyrir vel unnið starftengist
stjörnu þinni. Almenn vellíðan er svarið
svo sannarlega.
LjOníð (21.JÚIÍ-22. ágúst)
Þú átt þér stóra drauma og ert
jákvæð manneskja sem er góður kostur.
Orkustöðvar þínar eru öflugar og óskir
þínar eru sannarlega raunhæfar. Sólin
segir ekki aðeins til um velgengni þína
heldur lætur drauma þína verða að
| veruleika.
Meyjan (21 ágúst-22. septj
9
Þér er ráðlagt að hugsa þig
tvisvar um varðandi félagsskap nokkurn
sem þú kynntist nýverið. Ef þú hefur
það á tilfinningunni að vandamál tengt
honum eyðileggi fýrir þér á einhvern
hátt ættir þú að hörfa burt sem allra
fyrst.
Vogin (23.sept.-23.okt.)
Þegar sannleikurinn er talaður
Ijómar hann og glitrar fallega. Þú hefur
gefið umhverfi þínu skýlaus skilaboð og
ert að sama skapi frjáls frá vantrausti og
takmörkunum. Heilindi einkenna þig
svo sannarlega. Þú ert á réttri leið.
Sporðdrekinn (24.okt.-21.n0v.)
I
I undirmeðvitund þinni elur
þú af þér sjálfvirkt viðbragða-
mynstur til að að forðast vissa hluti og
verða viðbrögðin þá jafnvel að vana hjá
þér.
Bogmaðurinn (22.n6v.-21.desj
Valið er eflaust erfitt fyrir þig
þessa stundina. Eftir að þú hefur ákveð-
ið þig er ekki aftur snúið því líf þitt mun
taka miklum stakkaskiptum. Hér birtast
vegamót sem þú ert um það bil að
ganga í gegnum og ættir að ákveða
i hvaða leið þú kýst að velja.
Steingeitin (22.des.-19.jan.)
Sköpun, gleði, allsnægtir og
fullnægja birtist. Þú nýtur blessunar og
mættir vera meðvitaðri um það.
SPÁMAÐUR.IS