Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2006, Side 29

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2006, Side 29
Menning DV ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 2006 29 Auglýst eftir styrkþegum Lista- og menningarráð Kópa- vogs hefur auglýst eftir umsóknum um styrki til verkefna/viðburða á sviði menningar og lista í Kópavogi. Kemur fram að bæði einstak- lingar, félagasamtök og stofnanir geta sótt um styrki úr sjóðnum, en Lista- og menningarráðið veitir styrki til menningarstarfs í Kópa- vogi tvisvar á ári, í október og apríl. Á heimasíðu Kópavogsbæjar kemur fram að ekkert þak er á þeim styrkjum sem listamenn geta sótt um - en Lista- og menningarráðið ákveður ekki fyrirfram hversu miklu það veitir úr sjóðum sínum. Því er um að gera að búa um- sóknir vel úr garði. Umsóknareyðublöð fást á skrif- stofu Tómstunda- og menningar- sviðs, Fannborg 2, 2. hæð. Eyðu- blöðunum ásamt fylgiskjölum skal skilað fyrir 3. apríl. Kópavogsbær Lista- og menn- ingarráðið gerir vel við listamenn. Leonard Bernstein Lærisveinn hans \ mun stjórna Sinfóníuhljómsveit Islands I '■ næstu viku. Á laugardagskvöldið var frumsýnt í Hafnarfirði leikritið Viðtalið eftir þær Lailu Margréti Arnþórsdóttur og Margréti Pétursdóttur Hér er um afar sérstæða sýn- ingu að ræða þar sem töluð eru tvö tungumál í einu á sviðinu. Táknmálið er hér jafnvígt íslenskunni enda fjallar þessi sýning um baráttu heyrnarlausrar stúlku og þar með allra heyrnarlausra fyrir því að geta fengið að tala sitt mál. Hunljúl sýninn í HMiröi Ádöfínni hjá Sinfó Þó furðulegt megi virðast var því þannig háttað hér hjá okkur að táknmál var bannað fram til 1980. Það var ekki kennt í skóla heyrnarskertra heldur var stefnan að allir ættu að geta lesið af vör- um og lært að tala. Þessi stefna átti sér vafalítið rætur í einhverj- um stórkostlegum vísindalegum rannsóknum en því miður varð þetta eins konar einangrunar- stefna, þar sem fjöldi manns var aftengdur frá þeim menningar- heimi sem við hin lifum í. Þetta er falleg sýning í alís- lenskri umgjörð, það er leik- myndin er eins og maður stökkvi inn á íslenskt heimili í sjávar- plássi fyrir þrjátíu árum. Móðir og dóttir eru í raun að tala saman af einhverju viti í fyrsta sinn. Móðir- in er heyrandi, dóttirin er alveg heyrnarlaus. Af hreinni tilviljun er táknmálstúlkur staddur hjá dótturinni, þar sem von er á blaðamanni til þess að spjalla við hana nýkomna heim frá Banda- ríkjunum þar sem hún er búin í námi og farin að leika í Hollywood. Soffía Jakobsdóttir leikur hina heyrandi móður og Elsa Guðbjörg Björnsdóttir hina heyrnarlausu dóttur. Svipbrigði og tjáning Elsu Guðbjargar var hrífandi. Viðtalið eftir Lailu Margréti Arnþórs- dóttur og Margréti Pétursdóttur Tónlist: Pétur Grétarsson Hljóðfæraleikarar: Eyjólfur B. Alfreðsson og Frank Aarnink Leikmynd og búningar: Helga Rún Pálsdóttir Ljósahönnun: Garðar Borg- þórsson Myndvinnsla: Jóhannes Tryggvason Leikarar: Soffia Jakobsdóttir, Berglind Stefánsdóttir, Elsa Guðbjörg Björnsdóttir, Tinna Hrafnsdóttir og Árný Guð- mundsdóttir Frumsýning 4. mars. Leiklist Skondin móðir með sektar- kennd Móðirin ku hafa gert eins og vel og henni var unnt en það var samt ekki rétt. Það er ekki rétt að skilja lít- ið fjögurra ára barn eftir í heyrn- leysingjaskóla og læðast út án þess að bamið hafi hugmynd um það hvers vegna því var komið þangað. Soffía málar hér upp nokkuð skondna mynd af íslenskri vel I Ur sýningu á Viðtalinu I I „Falleg sýning f alíslenskri \ J umgjörð/' segir Elísabet Brekkan f umfjöllun sinni. m :§ meinandi millistéttarkonu, sem á vissan hátt er að springa af sektar- kennd um leið og hún hlustar helst og mest og best á sína eigin rödd en ekki annarra. Soffr'a sýndi hér eins og svo oft áður að kómíkin er hennar sterka hlið. Milli þess sem við sjáum og heyrum þær mæðgur er samtalið brotið upp og til hliðanna birtist okkur annars vegar móðirin í tveim- ur spegilmyndum, það er önnur talandi íslensku og hin talandi tákn- mál. Hin móðirin í sýningunni var túlkuð af Berglindi Stefánsdóttur og gerði hún það vel og á vissan hátt lyftu þær fram karakter hvor ann- arrar. Spegilpersóna dótturinnar var í höndum Tinnu Hrafnsdóttur sem geislaði í kapp við Elsu Guðbjörgu en báðar hafa þær notalega, ein- læga og fallega nærveru. Leikgerðin hjá Margrétunum tveimur er eins og fræðslu verður best komið til skila í aðgengilegan búningi. Áður en sýningin hófst hélt full- orðin heyrnarlaus kona tölu sem túlkuð var af táknmálstúlki. Það má eiginlega segja að þetta hafi verið hennar saga sem svo var sögð á sviðinu. Vonandi fær þessi leikhóp- ur tækifæri til þess að sýna þessa fallegu, mannbætandi og sniðugu leiksýningu um allt land. Ellsabet Brekkan Kassinn, nýr leiksalur í Þjóðleikhúsinu, var tekinn í notkun á laugardagskvöld Æfingasalur tekinn til sýninga Breytingar á gamla æfingasaln- um eru kostaðar af Landsbanka ís- lands sem leggur til fé næstu sex árin til að koma salnum og nálæg- um vistarverum í húsinu í boðlegt ásigkomulag fyrir leikhúsfólk og leikhúsgesti. Iþróttahús Jóns Þorsteinssonar sem hýsir Kassann og áður Litla svið Þjóðleikhússins var reist í kreppunni og varð sjötíu ára í fyrra. Lóðina hafði Jón Þorsteins- son íþróttakennari keypt af Kvennaheimilinu við Hallveigar- staði, samtökum kvenna sem vildu reisa kvennahús í Reykjavík löngu fyrir daga kvennalista. Þeirra hús reis á endanum við Túngötu. Jón var brautryðjandi í íþrótta- kennslu, sprottinn upp úr Ung- mennafélagshreyfingunni. í húsi hans var margskonar starfsemi. Róbert Arnfinnsson sagði við undirritaðan á opnuninni að hann hefði verið þar í leikfimi. Ármann var þar með æfingasal og Jón sinnti þar líkamsþjálfun sem nú til dags kallast iðju- og sjúkraþjálfun fram yfir 1970. Þar var Listdansskóli Þjóðleik- hússins með aðsetur um hríð og er húsið var afhent Þjóðleikhúsinu voru raddir háværar um að taka efri salinn og breyta honum í leik- sal en raunin varð sú að neðri sal- ur hússins varð að Litla sviðinu. Salurinn tekur tvö hundruð gesti í sæti í breytilegu rými. Enn er unnið að lausnum á fata- geymslum og búningsklefum, en komin er upp veitingaaðstaða í fordyri. Mun stuðningur Lands- bankans tryggja áframhaldandi endurbætur á húsnæðinu. pbb@dv.is tm Það er margt á döfinni hjá Sin- fóníuhljómsveit íslands í mars- mánuði. Ef frá eru taldir afmælis- tónleikar Jóns Nordal á fimmtu- daginn, sem sagt er frá annars staðar á síðunni, þá verður til að mynda hljómsveitarstjórinn David Charles Abell í aðalhlutverki hjá hljómsveitinni í næstu viku. Abell hefur einna helst getið sér gott orð sem stjómandi bandarískra verka, ekki síst verka læriföður síns, sjálfs Leonards Bernstein, en í þetta sinn sýnir hann á sér aðra hlið og stjórnar tveimur frönskum verkum ásamt 3. sinfómu Coplands. Það er píanistinn Stepehn Hough sem leikur píanókonsert nr. 4 eftir Camille Saint-Saens. Rumon Gamba heldur áfram á ferðalagi sínu um tónheim Dfmítrí Sjostakovitsj og þann 23. mars verður dagskráin eingöngu helguð hans verkum. Þriggja rétta Sjosta- kovitsj, tvær sinfóníur og einn pí- anókonsert leikinn af Peter Jablonski. Á síðustu tónleikum mánaðar- ins er svo komið að sænska básúnuleikaranum Christian Lind- berg. Hann verður að þessu sinni í hlutverki hljómsveitarstjórans en með honum í för verður norski trompetleikarinn Ole Edvard Ant- onsen. Á efnisskránni em verk eftir Jan Sandstöm, Christian Lindberg og önnu S. Þorvaldsdóttur. Sjálfsmynd íslendinga í hádeginu f dag heldur Sum- arliði ísleifsson sagnfræðingur er- indi í hádegisfundaröð Sagnfræð- ingafélags lslands sem ber yfir- skriftina: Hvað er útrás? Erindi Sumarliða heitir Útrás og ímyndir og í því mun hann velta fyrir sér spurningum um þjóðareðli og þjóðarímyndir. Umfjöllunin mun einkum miðast við ísland og f tengslum við efnið verður drepið á hvernig hug- myndir um íslendinga og sjálfs- myndir þeirra hafa þróast. Em þær ef tU vill svipaðar við upphaf 21. aldar og fyrir 100-200 ámm eða em þær gerólíkar? Og hvernig tengjast þessar hugmyndir um þjóðareðli íslendinga sambandi landsmanna við umheiminn ogútrás á ýmsum sviðum? Sumarliði R. ísleifsson er sagn- fræðingur að mennt. Hann hefur ritað nokkrar bækur og greinar um ímyndir og ímyndafræði, stjórnmálasögu og hagsögu. Hann starfar í ReykjavíkurAka- demíunni. Hádegisfundurinn verður að venju í Þjóðminjasaftii íslands, kl. 12:10 til 13. Aðgangur erókeypis og öllum heimill. Við opnunarathöfn í Kassanum Sjö leikarar hlutu sérstök heiðursverðlaun, en öll tóku þau þátt í opnunarsýningum Þjóðleikhússins 1950. Sumarliði fsleifsson sagnfræðingur j Munveltafyrirsérspurningumumþjóðar- j A j eðli og þjóðarímyndir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.