Freyr - 15.04.1987, Síða 23
hendi að verka í plastpokum súrs-
að fóðurkál, rófur, næpur og hvað
hverjum og einum dettur í hug
eins og áður er sagt. Þeir sem
rækta bygg standa með pálmann í
höndunum.
Dýrin.
Kerlingarnar geta átt unga 5 sinn-
um á tveimur árum, frá 4—12 í
hvert skipti. Algengt er að ung-
arnir séu farnir að éta eftir 3 daga.
Umgangast ber dýrin með varúð
og þau eru tekin upp með berum
höndum. Bóndi, sem kominn er
vel af stað og náð hefur tökum á
þeim, gæti sett 20 kerlingar til eins
karldýrs, nú svo ganga tvö í dag,
eitt á morgun, þá tekur hann þær
frá honum þessar þrjár og lætur
saman í búr. Þær gjóta þá með 1—
3 daga millibili í sama hreiðurbúr-
inu, samkomulag er gott milli
þeirra. Um 1—2 dögum eftir got
er rétt að setja þær til karls því að
um 70—75% geta haldið þá aftur.
Skinnafjöldi sem þarf í
loðpels nr. 42
stk.
Bisam (bakskinn) .......... 80—100
Bisam (kviðskinn).......... 100—120
Chinchilla íkorni ......... 130—200
Folald ........................ 6—8
Blárefur .................. 10—14
Kanína .................... 30—40
Karakúl lamb............... 24—26
Moldvarpa ................. 300—400
Minkur ....................... 40—60
Fenjabjór ................. 26—34
Selur, kópar .............. 7—8
Steinmörður................ 40—50
Þvottabjörn ............... 20—30
Eftir 6—8 vikur er stíað frá þeim,
karlungar settir sér og kvenungar
sér, aldrei má bæta í hópinn
seinna dýrum því að stéttarskipt-
ing er allsráðandi, þau drepa að-
komudýrið.
Skinnaverkim og sala skinna.
Við getum notað sömu tækin og
refabændur. Þau nýtast allt árið
því að dýrunum er lógað þegar
feldurinn hefur náð sínum falleg-
asta blæ. Hárin eru mjög þétt, allt
að 144 á fermillimetra. Við notum
sömu söluaðila og selja refa- og
minkaskinn okkar. í þessum at-
riðum þurfum við enga nýja fjár-
festingu. Verð á skinnunum hefur
verið 40—60% af skinnaverði blá-
refs, en við höfum aftur á móti
meira en helmingi fleiri skinn á ári
frá hverri kerlingu ef vel gengur.
Annað.
Árið 1932 voru fluttir til landsins 6
fenjabjórar, (buslur nefna sumir
þau), 4 kvendýr og 2 karldýr.
Bóndi eða bændur á Suðurlandi
áttu þau í 2 ár en þau voru ekki
látin fjölga sér en lifðu góðu Iífi af
okkar fóðri. Man ekki einhver
eftir þeim og gæti sagt mér hvar
þau voru og hverjir áttu þau ?
STAMFORD
RAFALAR
BÆNDUR ATHUGID: Við höfum
STAMF0RD rafala í mörgum
stærðum, fyrir vatnstúrbínur og
rafstöðvar. Áratuga góð reynzla.
Hafið samband við:
S. STEFÁNSSON & C0. HF.
Grandagarði 1 b Pósthólf 1006
121 Reykjavík Sími 91-27544
Freyr 311