Freyr - 15.05.1987, Síða 9
Bændabókhald í Eyjafirði
Viðtal við Hauk Steindórsson bónda í Þríhymingi og Halldór Ámason
ráðunaut hjá B.í.
Fyrir nokkru voru staddir samtímis í Reykjavík þeir Haukur Steindórsson bóndi í
Þríhyrningi í Eyjafirði og Halldór Árnason ráðunautur og tölvufrœðingur hjá Búnaðar-
félagi íslands sem einnig er búsettur í Eyjafirði.
Haukur Steindórsson fœrir búreikninga sína. (Ljósm. Geslur Hansson).
í Eyjafirði hefur verið unnið
brautryðjendastarf í svokölluðu
bændabókhaldi á undanförnum
árum og fór blaðið þess á leit við
þá félaga að segja frá því. Brugð-
ust þeir vel við þeirri bón.
Hvert vaz upphaf að bænda-
bókhaldi?
Haukur: Upphafið má rekja til
umræðna hjá Búnaðarsambandi
Eyjafjarðar um að finna tiltölu-
lega auðvelda leið til að tölvuvæða
búreikningahald fyrir bændur al-
mennt. Samhliða því var umræða
um töluvæðingu búnaðarsam-
bandanna til almennari nota en
áður, t.d. gerðar áburðaráætlana.
Síðan varð til starfshópur til að
vinna að því að skipuleggja þessi
mál í samvinnu nokkurra aðila. í
hópnum voru Ævarr Hjartarson,
Halldór Ámason, Gísli Karlsson,
Ketill A. Hannesson, Jóhann
Ólafsson, Pétur Hjálmsson og Jón
Viðar Jónmundsson. Þeir þrír
fyrsttöldu hafa svo fylgt þessu eftir
og komið því í framkvæmd.
Það var svo hafist handa að
gera þessa tilraun í Eyjafirði
og til þess hafði héraðið vissa
kosti?
Haukur: Já, inn í þessa mynd kom
að nýta viðskiptareikninga bænda
við Kaupfélag Eyfirðinga,
(KEA), til þess að auðvelda þessa
vinnslu og minnka vinnu við
skráningu upplýsinga.
Þetta var sett upp á þann hátt
að kaupfélagið tók sérstakt afrit af
viðskiptareikningi bóndans þar
sem síðan var möguleiki að lykla
inn á vegna bókhaldsins.
í Eyjafirði fara viðskipti bænda
við mjólkurbú og sláturhús inn á
viðskiptareikning kaupfélagsins
og stór hluti af rekstrarvöru-
kaupum bænda er einnig viðskipti
við kaupfélagið. Þarna var því
fyrir sú aðstaða að verulegur hluti
af færslum búreikninganna kom
inn á viðskiptareikning kaupfé-
lagsins. Með því að hafa þetta
vinnsluafrit til þess að lykla inn á
þá sparast mikil skráning bæði
fyrir bóndann og þann sem vinnur
þetta inn á tölvu. Það eru sem sagt
bein tengsl á milli tölvunnar hjá
KEA og tölvu búnaðarsambands-
ins sem vinnur bændabókhaldið.
Þær skilja hvor annars merki.
Hverjir unnu þetta verk á vegum
búnaðarsambandsins?
Ævarr Hjartarson ráðunautur og
framkvæmdastjóri Búnaðarsam-
bands Eyjafjarðar var þátttakandi
í þessum starfshópi og hann vann
að því að koma þessu í fram-
kvæmd á búnaðarsambandssvæði
okkar ásamt Guðmundi H. Gunn-
arssyni ráðunauti, sem að stærst-
um hluta hefur annast bændabók-
haldið hjá okkur. Það voru nokkr-
ir bændur sem komu inn í þetta í
eins konar prufuverkefni fyrsta
árið, 1983.
Síðan gerist það að Halldór
flytur norður í Eyjafjörð.
Var sá flutningur tengdur þessu
verkefni?
Freyr 377