Freyr

Årgang

Freyr - 01.09.1987, Side 7

Freyr - 01.09.1987, Side 7
Búrekstrarkönnun á svæði Búnaðarsambands Vestfjarða Út er komin skýrsla um búrekstrarkönnun á svæði Búnaðarsambands Vestfjarða. Bú- rekstrarkönnun þessi er unnin að frumkvæði Búnaðarsambands Vestfjarða og er þar leitað fyrirmyndar í hliðstæðri könnun sem Ræktun- arfélag Norðurlands lét vinna á árinu 1986 fyrir allt Norðurland. Þeir sem unnu að þeirri könnun voru fengnir til að sjá um framkvæmd þessa verks á Vestfjörðum ásamt ráðunautum Búnaðarsambands Vestfjarða. Úrvinnsla upplýsinga var að mestu í höndum Jón Viðars Jónmundssonar. Jarðir sem könnunin náði yfir voru alls 229, þar af voru 135 jarðir þar sem ábúendur hafa og áforma að hafa framleiðslu á mjólk og/eða dilkakjöti sem aðaltekjuöflun. Innlögð mjólk í mjólkursamlög á þessu svæði var verðlagsár- ið 1984/’85 2.924 þúsund lítrar en óskir bænda á svæðinu eru um að auka framleiðsluna upp í 3.817 þúsund lítra. Meðalframleiðsla á bú var verðlagsárið 1984/’85 um 29 þúsund lítrar en óskir eru um 47 þúsund lítra meðaífram- leiðslu. Innlagt dilkakjöt á svæðinu haustið 1985 var 600 tonn, en óskir eru um 682 tonna framleiðslu. Þar ber að hafa í huga að fjár- laust var í Barðastrandarhreppi þegar könn- unin fór fram vegna riðuveikiniðurskurðar. Pegar sauðfjárrækt í sveitinni verður tekin upp að nýju, svo sem bændur þar hafa rétt til, verður lítill munur á framleiðslu bænda og óskum þeirra í því efni. Meðalframleiðsla á sauðfjárbú haustið 1985 var 3,2 tonn en óskir eru um 4,1 tonns meðalframleiðslu. Eins og þessar upplýsingar bera með sér eru bú á svæðinu að jafnaði lítil. Verðlags- grundvallarbú í mjólkurframleiðslu, með 22 kýr, gera ráð fyrir 77,7 þúsund lítra mjólkur- framleiðslu á ári, en 400 ærgilda fjárbú, verðlagsgrundvallarbú, leggur inn 7,6 tonn af kindakjöti. Meðalaldur bænda á svæði Búnaðarsam- bands Vestfjarða var 52 ár árið 1986. Af bændum eru 13% 30 ára og yngri, 41 % 31— 55 ára, 32% 56—69 ára og 14% 70 ára og eldri. Veginn meðalaldur fjósbygginga hjá þeim bændum sem hafa mjólkurframleiðslu að að- altekjuöflun er 16 ár og fjárhúsbygginga 19 ár hjá þeim sem stunda sauðfjárrækt sem aðal- tekjuöflun. Nýting fjósbygginga á svæðinu var 74% og fjárhúsbygginga 73%. Ber þar að hafa í huga að fjárlaust var í Barðarstrandar- hreppi þegar könnunin fór fram, en í Vestur- Barðastrandarsýslu var nýting fjárhúsbygg- inga 52%. Borinn er saman fjöldi kúa og sauðfjár á svæðinu árin 1978 og 1985. Þar kemur fram að fækkun kúa er aðeins 11 kýr eða 1,0% en sauðfjár 15.077 fjár eða 28%. Árið 1985 er 3,0% kúa á landinu á svæði Búnaðarsam- bands Vestfjarða, 5,5% sauðfjár, 1,5% hrossa, 2,8% svína, 2,0% hænsna og 7,0% refa. Af þeim upplýsingum sem í skýrslunni er að finna má lesa að hefðbundinn búskapur á Vestfjörðum á undir högg að sækja í ýmsu tilliti. Undirlendi er viða takmarkað og rækt- un er þannig erfiðleikum bundin. Brattir fjallvegir og lélegt vegakerfi eru einnig hemill á búrekstur sem þarf á greiðum samgöngum að halda, svo sem mjólkurframleiðsla og loðdýrarækt. Á hinn bóginn eru möguleikar til búhátta- breytinga miklir á svæðinu. Skilyrði til loð- dýraræktar eru þar mjög góð þar sem að- gangur að fiskúrgangi er ríkulegur víða á svæðinu. Pá eru víða góðar aðstæður til fisk- eldis og hafa þær þegar verið nýttar að hluta. Nýting hlunninda hefur um aldir verið snar þáttur í lífsbjörg fólks á þesu svæði. Þar má Frh. á bls. 659. Freyr 655

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.