Freyr - 01.09.1987, Síða 8
Sumir munu ekki taka fé aftur
eftir riðuniðurskurð
Viðtal við Þórarin Þórarinsson í Vogum í Kelduhverfi.
Kelduhverfi í Noður-Pingeyjarsýslu er ein af þeim sveitum þar sem riðuveiki hefur
herjað á undanförnum árum og þar sem niðurskurður vegna riðuveiki hefur farið fram.
Til að frœðast um þau mál og fleira leitaði ég til Pórarins Pórarinssonar í Vogum.
Hjónin María Pálsdóttir og Pórarinn Pórarinsson í Vogum og dóttursonur þeirra
Hjörtur Logi Dungal. (Ljósm. med viðlalinu tók M.E.).
Fyrst spyr ég hann um búskap
hans.
Við María Pálsdóttir, kona mín,
búum hér félagsbúi með börnum
okkar og bróður mínum Guð-
mundi. Við höfum búið hér með
blandaðan búskap að undanförnu
ásamt nokkurri vinnu utan heim-
ilis.
Kúabúið hefur verið lítið, átta
kýr og geldneyti. Við höfum selt
mjólk síðan 1963 en þá hófst
mjólkursala héðan úr sveitinni til
Húsavíkur. Það voru um tíma yfir
30 bændur sem seldu mjólk úr
Kelduhverfi og Öxarfirði til Húsa-
víkur en í sambandi við tankvæð-
inguna dróst þetta saman og núna
eru aðeins tveir mjólkurfram-
leiðendur í Kelduhverfi og enginn
í Öxarfirði.
Við vorum líka með fjárbú og
undanfarin ár höfðum við þetta
um 400 fjár á vetrarfóðrum. Á
síðasta hausti var svo skorið hér
allt niður vegna riðuveiki. Þá var
veikin búin að gera mikinn usla
hjá okkur en hún var einna svæsn-
ust hér á þessum bæ í sveitinni.
Hvenær kom veikin upp hér ?
Það var í kringum 1980 og enginn
veit hvaðan hún kom. Hún kom
upp í Laufási, fyrst bæja í Keldu-
hverfi, líklega upp úr 1970 og var
að breiðast hér út um sveitina
síðan, bætti svona einum og
tveimur bæjum við á ári. Skaðinn
hér á bæ var ekki verulegur fyrr en
núna síðustu tvö árin. Á öðrum
bæjum þar sem veikin hafði verið
jafnlengi eða lengur gerði hún
aldrei teljandi skaða þannig að
hún hagaði sér breytilega milli
bæja.
Það var svo ákveðið að ganga til
atlögu við veiknina með þvi að
skera niður sjúkar hjarðir ?
Já, það náðist samstaða í öllu
svokölluðu Skjálfandahólfi, þ.e.
milli Jökulsár í Öxarfirði og
Skjálfandafljóts, veturinn 1985/86
Pum að leita eftir stuðningi til að
skera niður allar sjúkar hjarðir á
þessu svæði haustið 1986 og það
var gert.
En þá var áður búið að skera
eitthvað niður á þessu svæði?
Pað var búið að skera niður fjórar
hjarðir áður hér í Kelduhverfi og
það var gert vegna þess að veikin
var orðin svæsin á þeim bæjum.
Einn þessara bæja er Laufás og
þar var skorið niður 1973 og tekið
fé aftur strax sama haustið. Samt
sem áður kemur veikin þar ekki
upp aftur fyrr en að sjö árum
liðnum. Hins vegar kemur hún
upp á næsta bæ við Laufás, Aust-
urgarði, strax næsta ár eftir að
skorið var niður í Laufási og er þar
viðvarandi allan tímann til
haustsins 1984. Menn vita þannig
ekki á hvern hátt veikin berst.
Það var svo samið um tveggja
ára fjárleysi þar sem skorið var
niður 1986 og bændur á svæðinu
656 Freyr