Freyr - 01.09.1987, Síða 15
Loðdýrabúið í næsta mánuði,
október
Lausleg þýðing á grein eftir Hans Pedersen, ráðunaut á Norður-Jótlandi, sem birtist í
Dansk Pelsdyravl nr. 9, 20. sept. 1986.
Sumarið er mjög rólegur tími á
minkabúum en einmitt þegar
þannig stendur á er ástæða til að
vinna ýmsa undirbúningsvinnu
sem getur létt mönnum störfin
þegar meira er að gera.
Á búinu er mjög mikilvægt að
fóðrunin sé í föstum skorðum.
Fóðurnotkunin fer minnkandi
vegna þess að lengdarvexti dýr-
anna er Iokið og þynging þeirra er
vegna þess að þau eru að fitna.
Varðandi fóðurstyrkinn þarf að
fara ákveðna málamiðlunarleið.
Annars vegar vilja menn skammta
fóðrið í dýrin og hins vegar halda
þeim rólegum. Mjög erfitt er að
gefa upp réttan fóðurleysistíma
þar sem hann er mjög háður styrk
fóðursins. Hafi menn fóðrað
þannig að dýrin hafi verið fóð-
urlaus í 4 klst. hið mesta er
mönnum óhætt að halda því
áfram. Ef tíminn er verulega
lengri veldur það miklum sveiflum
í efnaskiptum dýranna og það get-
ur haft alvarlegar afleiðingar í för
með sér. Til viðbótar verða dýrin
mjög árásargjörn, þegar fóðrað er
ef fóðurleysistíminn er langur.
Það getur Ieitt til feldbits o. fl.
Hins vegar er mikilvægt að offita
dýrin ekki því að það hefur slæm
áhrif á feldgæðin, einkum varð-
andi afturhluta skinnanna (hoft-
erne), sírennsli á þvagi o. fl.
Menn skulu ætíð minnast þess að í
búrinu gildir sú regla að sá sterk-
ari étur fyrst þannig að skömmtun
á fóðri kemur mun meira niður á
öðru dýrinu.
Flestar fóðurstöðvar breyta fóð-
urlistanum þannig á þessum tíma
að minni hætta er á þeim vanda-
málum sem hér hafa verið nefnd.
Hey.
Á tímabilinu fram að feldum er
afar mikilvægt að hey sé á köss-
unum og það í ríkulegu magni.
Hey er ódýrt og nóg af því þannig
að engin ástæða er til að spara
það. Heyið hefur margs konar og
mismunandi verkanir. í fyrsta lagi
tryggir það að hreiður dýranna sé
þurrt og hlýtt. Pað hreinsar bæði
feldinn og kassann og að lokum
kemur það að einhverju leyti í veg
fyrir ýmislegt óæskilegt, svo sem
feldnag. Ef drasl er í kassanum
ber að sjálfsögðu að fjarlægja það.
Lífdýraflokkun.
Lífdýraflokkun er verk sem á að
vera í gangi allt árið því að færa á
allar athugasemdir á kortin jafn-
óðum og menn taka eftir ein-
hverju sem að gagni má koma.
Allt neikvætt sem skrifað er á
kortin á að leiða til þess að við-
komandi dýr séu drepin.
Fyrsti hluti flokkunarinnar,
búrflokkuninn, getur hæglega far-
ið fram í september. Þá er valið
fyrir stærð og útbreiðslu hvítra
bletta.
Nú er einnnig hægt að fara yfir
öll kort og velja frá dýr úr of
litlum gotum og seint fædd.
Sem meginreglu er gott að miða
við það að setja ekki á læður úr
minni gotum en 5 hvolpa og högna
úr 6 hvolpa. Þeir sem taka þátt í
skýrsluhaldi skulu velja eftir frjó-
semiseinkunn gotsins, hún er
skráð á hvolpakortin. Ekki skal
velja hvolpa úr gotum sem mikið
hefur drepist úr.
Fara skal vandlega í gegnum
læðukortin og kemur þá í ljós hve
mikilvægt er að hafa skráð athuga-
semdir á þau.
Læður sem hafa átt í goterfið-
leikum, misst mikið af hvolpum
eða mjólkað lítið, á að felda.
Einnig þarf að athuga aldur læð-
anna. Það er í lagi að gera „stand-
ard“ og „villilæður“ þriggja ára en
árangur þeirra þriðja árið er oft
lélegur. Gera má ráð fyrir að
minkalæður geti skilað tveimur
góðum gotum.
Ekki er ástæða til að vera feim-
inn við að vera með mikið af
hvolpalæðum þar sem þær skila
iítið sem ekkert lélegri frjósemi en
fullorðnar læður.
Skoða þarf vandlega árangur
högnanna. Allir gamlir högnar og
lélegir pararar eiga að vera
dauðir. Það sem hægt er að meta á
þessum tíma er einungis frjó-
semin. Það er því sjálfsagt og
nauðsynlegt að frjósemisupplýs-
ingarnar liggi fyrir. Hér gildir
einnig sú regla að meðaltalið þarf
að vera 6 hvolpar á paraða læðu.
Frjósemi er sá þáttur sem hefur
mest áhrif á afkomu minkabúsins
og því bera að hafa hana í
hávegum.
(Pýðing Björn Halldórsson).
Framleiðsluverð
á heyi
Búreikningastofa landbúnaðarins
hefur áætlað kostnað við fram-
leiðslu á heyi árið 1987. Verðið er
um kr. 7,20 á kg, fullþurrt í hlöðu.
Freyr 663