Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1987, Síða 16

Freyr - 01.09.1987, Síða 16
Sigurður Gunnarsson frá Skógum Lónaengiö góöa í Austur-Sandi í Öxarfiröi, N.-Þing. Önnur grein. Á síðastliðnu ári skráði undirritaður smágrein í búnaðarblaðið Frey um afbrigða gott og gjöfult flœðiengi, Lónaengið í Austur-Sandi í Öxarfirði, sem notað var um aldabil og reyndist mikil gullnáma tveggja stórbýla sem það áttu, Skóga og Ærlœkjarsels. Og raunar nutu þess líka að nokkru ýmsar fleiri jarðir. í þeirri grein lýsti ég aðeins staðháttum, lýsti hvar engið var og birti myndir sem gáfu góða hugmynd um það. Einnig rakti ég sögu engisins studda svo sterkum rökum að hún verður tæpast ve- fengd, lýsti með fáum orðum hvernig vatninu var náð af enginu á vorin og hve gjöfult þetta engi var og ómetanlegt fyrir þessar bú- jarðir. En þetta var nánast aðeins ytri umgjörðin. Grastegundum lýsti ég ekki og minntist ekki heldur á vinnuaðferðir hvorki við hey- skapinn né heldur það mikla verk sem í því fólst að moka út ósinn eins og það var alltaf nefnt, — að grafa skurðinn stóra og djúpa gegnum sandölduna á hverju vori til þess að geta hleypt vatninu af enginu. Skal nú úr því bætt með nokkr- um orðum samkvæmt tilmælum ritstjóra Freys. Er þá rökréttast að byrja fyrst á vinnuaðferðunum við skurðgröft- inn því að ekki nýttist engið ef vatnið náðist ekki af því. Þetta mun jafnan hafa verið nokkurra daga verk fyrir marga menn allt frá upphafi. Eftir að ég fór að muna vel eftir mér og taka þátt í störfum fullorðna fólksins, hefur það tæpast tekið minna en viku og áreiðanlega aldrei færri en tíu karlmenn fullorðnir sem að því unnu frá þessum heimilum. Oft voru líka nokkrir bændur af öðrum bæjum í sveitinni sem fengu þá ávallt greitt kaup sitt í heyi. Svo þarf tæpast að taka fram að allir smástrákar og unglings- piltar voru þarna með og var þetta mikill hamingjutími fyrir þá. Þeir 664 Freyr

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.