Freyr

Volume

Freyr - 01.09.1987, Page 22

Freyr - 01.09.1987, Page 22
Hilmar Hálfdánsson, kennari, Bændaskólanum á Hvanneyri Um heimaöflun Rafsuða og logsuöa á bændabýlum Alltafer ígangi umrœða wn heimaöflun bœnda og virðist ekki afveita áþessum „síðustu og verstu tímum“. Hilmar Hálfdánsson. Fortíö. Frá örófi alda hafa bændur þessa lands orðið, stétta helst, að bjarga sér sjálfir. Pá er átt við nauðsyn ýmissa viðgerða á búinu ásamt uppbyggingu. Ef skoðaðir eru gamlir hlutir, t.d. frá því um síðustu aldamót, sést hvílíkir hagleiksmenn ýmsir bændur og bændaefni hafa verið. Nægir þar að nefna Ólafsdals- plóginn. Einn slíkur stendur á stalli í anddyri heimavistar Bændaskólans á Hvanneyri fólki til ánægju og yndisauka. Þessa plóga smíðuðu nemendur Búnað- arskólans í Ólafsdal eftir fyrirsögn kennara síns. Til eru margar góðar leiðbeiningabækur handa bænd- um frá fyrri árum og jafnvel öldum. Má þar geta sérstaklega vandaðrar og skilmerkilegrar leiðbeiningabókar með sérlega góðum vinnuteikningum sem Sveinn Sveinsson fyrsti skólastjóri á Hvanneyri samdi, útgefin 1875. Nútíö. Breytingar hafa eins og allir vita orðnar þær að bændur lifa nú í annarri veröld miðað við það sem var áður fyrr þó að búpeningurinn sé samur við sig. Mestar eru þó breytingarnar á húsakosti og vél- væðingu. Þá hefur og fólki fækkað á býlunum og þar af leiðandi er minni tími til alls konar smíða, hvort heldur er á tré eða járn. En hlutina verður eigi að síður að endurnýja og halda við. í framhaldi af því verður bónd- inn að sjálfsögðu að vanda til viðgerðartækja, bæði hvað varðar verð þeirra og notagildi. Val á tækjum. í þessari stuttu grein verður lítil- lega rætt um einn þátt þessara viðgerða og smíðatóla, en það eru málmsuðutæki. Er þar fyrst og fremst um að ræða þær tvær gerðir sem algengastar eru á bændabýl- um hér á landi, þ.e.a.s. hina „venjulegu“ rafsuðu, sem hér verður nefnd „pinnsuða“ og svo „gastæki", (acetylen og oksygen). Þó skal getið þeirra rafsuðu sem hvað helst ryður sér til rúms á málmiðnaðarverkstæðum en hún er nefnd „Hjúpsuða“ (Mic-mag). Þessi tegund rafsuðu hentar illa bændum þar sem hún er lítið fær- anleg úr stað. „Pinnsuða". Bændur hafa margir komið sér upp rafsuðutækjum og sumir eru bráðsnjallir að nota þau. Margir eru þeir þó, sem betur mættu gera. Gildi rafsuðueignar fer nokkuð Ólafsdalsplógur stendur á slalli í anddyri heimavistar Bœndaskólans á Hvanneyri. (Ljósm. frá Hvanneyri lók M.E.). 670 Freyr

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.