Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.09.1987, Qupperneq 25

Freyr - 01.09.1987, Qupperneq 25
Landbúnaðarhagfræði Gunnlaugur A. Júlíusson LANDBÚNAÐAR- HAGFRÆÐI Áætlanagerð Landbúnaðarpólitík ÚTGEFANDI: STÉTTARSAMBAND BÆNDA im Út er komið ritið „Landbúnaðar- hagfræði“ eftir Gunnlaug A. Júl- íusson hagfræðing hjá Stéttarsam- bandi bænda. Ritinu er einkum ætlað að vera bændum til leiðbeiningar um rekstrarhagfræð- ibæði til sjálfsnáms og í hópvinnu undir handleiðslu leiðbeinanda. Leiðbeiningarnar eru settar fram með því að setja upp dæmi um búrekstur þar sem síðan er leitað leiða til úrbóta á rekstr- inum. í formála ritsins segir: „Það er því brýnna en nokkru sinni fyrr að vegur rekstrarhag- fræðinnar fari almennt vaxandi í landbúnaðinum. Að því ber að stefna að hún verði smám saman jafn sjálfsagt hjálpartæki við bú- reksturinn eins og þær marg- brotnu vélar og tæki sem sjálfsögð þykja á hverju meðalbúi í dag, en voru óþekktar fyrir 20 árum. Landbúnaður er fjármagnsfrek at- vinnugrein, og það er eðlileg krafa að fjármagnið sé nýtt á þann veg sem hagkvæmast er fyrir bændur og neytendur. Hlutverk þessarar bókar er meðal annars að vekja athygli á nauðsyn þess að sinna fjármálun- um jafn vel og búfénu, og að benda á leiðir í því sambandi. Það er nauðsynlegt fyrir hvern þann sem fæst við búrekstur að hafa tiltækar upplýsingar um rekstrar- lega stöðu fyrirtækisins og að grípa í taumana áður en í óefni er komið. Einnig geta menn, með góðu og skipulögðu eftirliti, kom- ið í veg fyrir sóun fjármuna, og aukið þannig tekjur sínar, án þess að kosta miklu til.“ Útgefandi ritsins er Stéttarsam- band bænda og annast það einnig dreifingu þess. Ritið kostar kr. 300. Slátrun verði flýtt Landbúnaðarráðuneytið og Fram- leiðsluráð landbúnaðarins hafa sent eftirfarandi bréf til slátur- leyfishafa og formanna búnaðar- sambanda: „Landbúnaðarráðuneytið og Framleiðsluráð landbúnaðarráðu- neytisins hvetja sláturleyfishafa og bændur til að hefja slátrun sauðfjár eins fljótt og kostur er á komandi hausti. Á þessu ári voraði vel, svo að gróður fór snemma af stað og trénar því fyrr en í meðalári. Lömb hafa því vaxið hratt og hafa náð allt að 20 kg fallþunga um miðjan ágúst, en um leið eru þau sum orðin á mörkum þess að falla í mati vegna of mikillar fitu. Reynslan hefur sýnt, að fitusöfn- un eykst ört, þegar grös eru farin að tréna. Á sl. hausti féllu um 805 tonn af dilkakjöti í mati vegna of mikillar fitu og mikið af því kjöti er enn óselt, þar sem ekki er til nægur markaður fyrir slíka framleiðslu. Hinn 1. ágúst voru óseldar birgðir af D II og D II 0 644.000 kg af tæplega 1.500 tonna innvigtun sl. haust í báðum þessum flokkum. Það er því mikilvægt að allra úr- ræða sé leitað til að koma í veg fyrir að lömb verði of feit við slátrun í haust, þar sem það veldur miklu tjóni fyrir framleiðendur á kindakjöti og spillir fyrir sölu kindakjöts á markaðnum. Fyrir einstaka framleiðendur skiptir það líka miklu máli að fylla ekki fullvirðisrétt sinn með verðskertri vöru, sem lítill markaður er fyrir. Stjórnendur sláturhúsa og bændur eru því hvattir til að gera nauðsynlegar ráðstafanir til að fé komi til slátrunar á þeim tíma, sem tryggir sem best gæði fram- leiðslunnar. Lögð er áhersla á að slátrun hefjist ekki síðar en um mánaðamótin ágúst/september. Ástæða er til að beina óskum til sveitarstjórna og upprekstrarfé- laga um að gera ráðstafanir til að flýta göngum og réttum, svo að auðveldara verði að ná framan- greindum markmiðum.“ (Fréttatilkynning frá landbúnaðarrúdu- neylinu.) Freyr 673

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.