Freyr - 01.09.1987, Page 39
Að þessu er veríð að vinna.
Á Möðruvöllum eru nú gerðar
tilraunir í fjósi með mjólkurkýr
þar sem reynt er hve mikið er
hægt að láta kýr mjólka á sem
minnstum fóðurbæti með
heyfóðri, (s.l. vetur 1 kg á dag
eftir burð). Skipulagningu þessara
tilrauna og umsjón hefur Bragi
Líndal Ólafsson.
I jarðrækt er unnið að rann-
sóknum á frostþoli og svellþoli
plantna bæði í frystikistum inni í
húsi en einnig í túntilraunum þar
sem einnig er kannað hvort sýru-
stig eða kölkun iarðvegs hafi áhrif
í þá veru að auka eða minnka kal.
Veg og vanda af kaltilraunum hef-
ur Bjarni E. Guðleifsson. Þá hef-
ur Bjarni gert nokkrar tilraunir á
berjarunnum, einkum afbrigðum
af sólberjum.
Tilraunir með áburðar- og
sláttutíma hafa verið gerðar og
bíða niðurstöður þeirra endanlegs
uppgjörs en hafa verið kynntar á
fræðslufundum á Norðurlandi. Þá
eru í gangi tilraunir með hag-
kvæmni í áburðarnotkun. Nefndar
áburðartilraunir eru á vegum Jó-
hannesar Sigvaldasonar.
Á því túni sem Tilraunastöðin
átti þegar hún var á Akureyri eru
enn í gangi tvær tilraunir með
áburð. Eru það reitir sem hafa
fengið sömu meðhöndlun í hart-
nær hálfa öld. Fosfórlausir reitir
frá því 1938. Spretta þeir enn
furðu vel en löngu er dautt í þeim
sáðgresi. Þá eru þarna reitir sem
annars vegar hafa fengið kjarna
og hins vegar kalsaltpétur frá því
1945. Enginn munur er á þessum
áburðartegundum í uppskeru eða
gróðurfari túnsins en nokkur
munur er í efnasamsetningu heys
og jarðvegs. Ábyrgðarmaður að
þessum gömlu tilraunum er Bjarni
Helgason.
Á þeim dögum þegar þessar
línur eru ritaðar er verið að hefja
byggingu á minkahúsi sem hýsa á
innfluttar minkalæður í sóttkví. Á
síðan að fjölga þessum innflutta
mink og selja til kynbóta til
minkabænda vítt og breitt um
landi. Einnig er fyrirhugað að
gera athuganir og tilraunir í þessu
minkahúsi eftir því sem tilefni
gefst.
í framtíðinni er ætlunin að nýta
vel tilraunafjósið og fjölga tilraun-
um með mjólkurkýr og annan
nautpening. Kalrannsóknir verða
einnig efldar og kannað þol fleiri
plöntutegunda sem þol verður
reynt á. Er m. a. fyrirhugað að
kanna á næsta vetri frostþol á
Alaskaösp í samvinnu við Rann-
sóknastöð Skógræktar ríkisins á
Mógilsá. Áburðartilraunir, eink-
um hvað varðar hagkvæmni í
áburðarnotkun, verða áfram gerð-
ar en í því sambandi er nokkurt
verk fyrir höndum að gera upp og
birta niðurstöður tilrauna sem
þegar hafa verið gerðar.
Er þá að sinni lokið að segja frá
Tilraunastöðinni á Möðruvöllum.
Jóhannes Sigvaldason.
ÞARSEMÞIÐ
ERUÐ AÐ STORFUM
-ERUM VID LÍKA
BLNAÐARBANKI
ÍSLANDS
TRAUSTUR BANKI
cc
CD
<
2