Freyr

Árgangur

Freyr - 15.12.1989, Blaðsíða 2

Freyr - 15.12.1989, Blaðsíða 2
Hentugt í geymsluna Svona skúffusett er hentugt að hafa til að geyma í smálega hluti eins og nagla, skrúfnagla, bolta, rœr og annað sem oft þarf að grípa til í dagsins önn. — Myndin er úr vélageymslu Ólafs bónda Helgasonar í Stóru-Hildisey í Austur-Landeyj- um. Ólafur í Stóru-Hildisey bjó sér til hillur í vélageymsluna úr galvaníseruðum pípum. Hann lœtur beygjuna á rörunum standa út af hilluendunum og notar þœr fyrir stiga upp á ge\msluloft. Freys-myndir J.J.D. Mvndband um æðardún Nýlega kynnti Æðarræktarfélag íslands myndband sem félagið hef- ur látið gera til að kynna æðardún á mörkuðum erlendis. Á bandinu er myndefni víða að af landinu og það er gefið út með lesnum texta á íslensku, ensku og þýsku. Útflytjendur hafa fengið eintök af myndinni, auk þess sem henni hefur verið dreift til erlendra við- skiptavina og annarra sem áhuga hafa á málefninu. Þó að horfur í markaðsmálum hafi verið með allra besta móti undanfarið og allur dúnn selst eftir hendinni hefur reynslan sýnt, að verðsveiflur geta orðið með litlum fyrirvara, en tilgangurinn með myndbandinu er að kynna æðardún víðar en áður hefur verið gert til þess að draga úr markaðssveiflum. Myndbandið var frumsýnt 9. október sl. að viðstöddum fjöl- mörgum velunnurum æðarræktar. Myndin er 12 mínútna löng og fjallar um æðarfuglinn og varp- stöðvar hans, umhirðu mannsins um fuglinn og nýtingu dúnsins, þ. á m. hvernig hann er hreinsað- ur og notaður í sængur og skjólföt. Æðarræktarfélag íslands kost- aði gerð myndbandsins og naut til þess fjárstuðnings frá Framleiðni- sjóði, ríkissjóði og frá útflytjend- um. Auk þess lögðu ýmsir aðrir vinnu og efni af mörkum. Þumall, kvikmyndagerð, gerði myndband-

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.