Freyr - 15.12.1989, Síða 12
Beruneskirkja. Búlandstindur í baksýn. (Ljósm. M.E.).
Varðveisla hússins er þannig nú
að það er einungis hitað upp yfir
nýtingartímann á sumrin. Við höf-
um tekið af því vatnið yfir veturinn
en reynt að lofta vel út þegar veður
leyfir þannig að ekki myndist slagi
og það má segja að húsið varðveit-
ist allvel.
Engar verulegar breytingar hafa
verið gerðar á því, aðeins rétt til
hagræðisauka, annars minnir það á
gamla sögu sína.
í þessu húsi var símstöð frá
1914-1965. Sigríður Sigurðardótt-
ir, og fyrstu árin Sigurður farðir
hennar, voru stöðvarstjórar.
Sömuleiðis var þarna skóli mjög
lengi fyrir sveitina og sannkallað
stórheimili að þeirra tíma hætti,
með margar kynslóðir, skyldra og
vandalausra saman.
Svo að við snúum okkur að öðru,
þú hef ur haft afskipti hér af
heykögglaverksmiðju hér
austanalands?
Það er fyrst frá því að segja að þessi
heykögglagerð er fólgin í því að
þurrt hey er malað og blandað í
það öðrum efnum, fiskimjöli og
sykri og e.t.v. steinefnum. Þetta
gerist undir miklum þrýstingi
þannig að kögglarnir þola vel
geymslu á eftir. Þessi aðferð stend-
ur að því leyti framar grasköggla-
gerð í verksmiðjum að þarna er
verið að nýta vinnu og vélakost
bóndans og orku sólarinnar við
þurrkun á heyinu. Með þessu móti
er bóndinn að skapa sér vinnu.
Hann þarf bara að bæta við svolít-
illi aðkeyptri vinnu og tækni til að
breyta eigin heyi í kjarnfóður.
Eg trúi því að þessi rekstur geti
gengið. En það er eins og víða
annars staðar í þjóðfélaginu að
fjárhagshliðin er ekki auðleyst,
fjármagn er dýrt og torfengið.
Hvað heitir það fyrirtæki sem þú
átt aðild að?
Það heitir núna Heykögglar hf. og
hefur aðsetur á Egilsstöðum og er
hlutafélag, að hálfu í eigu Guð-
mundar Hjálmarssonar sem býr á
Egilsstöðum, en hann var frum-
kvöðull ásamt öðrum manni að því
að koma þessari vélasamstæðu
upp. Síðan gengu inn í fyrirtækið
nokkrir aðilar, aðallega bændur,
en líka fyrirtæki. Nú á þessu ári
stendur yfir endurskipulagning og
endurfjármögnun á rekstrinum.
Við erum nokkuð bjartsýnir á að
koma megi þessu fyrirtæki „fyrir
vind“ eins og Guðmundur segir,
þannig að það hafi rekstrargrund-
völl.
Á hvaða svæði starfar fyrirtækið?
Það er svæðið frá Jökuldal og suð-
ur að Hornafjarðarfljótum sem
samstæðan hefur farið yfir og þjón-
að.
Afkastageta samstæðunnar hef-
ur ekki verið nýtt að fullu og verið
er að leita að auknum verkefnum
og við höfum þar fengið augastað á
útflutningi heyköggla til Færeyja.
Þangað hafa verið sendir nokkrir
pokar sem Færeyingum líkuðu
ágætlega. Þeir kaupa nú þegar
verulegt magn heys á hverju ári
héðan frá Austufjörðum.
Hafið þið gert verðútreikninga á
heykögglumannars vegarog
graskögglum hins vegar?
994 FREYR
24. DESEMBER 1989