Freyr

Volume

Freyr - 15.12.1989, Page 24

Freyr - 15.12.1989, Page 24
Páskalambakjötið var hœfilega feitt og bragðaðist vel. (Ljósm. Ólafur R. Dýrmundsson). tímabilið þegar óhjákvæmilegt er að nota PMSG með svömpunum. Til fróðleiks má geta þess að fram- angreind efni hafa verið innflutt en lyfjafyrirtækið G. Ólafsson hf í Reykjavík getur framleitt PMSG frjósemisvaka úr blóði fylfullra hryssa sem ætti að koma að sama gagni og gæti dregið úr kostnaði. Hugsanlega mætti nota efnið melatonin (sjá Frey 21. tbl. 1989, bls 892) til að flýta fengitíma á haustin en ekki hafa verið gerðar tilraunir með það hérlendis. Á ráðstefnunni í Dublin kom fram að frjósemi áa er nokkuð minni þegar þær eru látnar fá fang utan eðlislægs fengitíma og eru niðurstöðurnar héðan samhljóða. í tilraunum hér hefur gengið vel að fá bæði geldar og mylkar ær til að ganga eftir samtengda svampa og PMSG meðferð, og í sumum hóp- unum hefur verið hleypt til þeirra allra. Aftur á móti hefur fanghlut- fallið verið all breytilegt eða frá tæplega helmingi upp í rúmlega 80% eftir hópum, öllu Iægra við vorfang en sumarfang, og greini- lega lægra en við vetrarfang. Þenn- an mismun má skýra að hluta með því að þessar ær ganga ekki aftur þótt þær festi ekki fang, þ.e. hvorki losa aftur egg né verða blæsma, eins og á venjulegum fengitíma. Einnig er umhugsunar- efni hvort sæðisgæði hafi áhrif á fanghlutfallið, einkum á vorin þeg- ar eistnastærð hrúta er í lágmarki, og er þetta einn þeirra þátta sem þarf að rannsaka. Þess ber að geta að frjósemi þeirra áa sem hafa fest fang á vorin og sumrin hefur verið með ágætum, jafnvel nokkrar marglembdar vegna áhrifa frá PMSG. Framangreindar breytingar á fang- og burðartíma gætu aukið tnjög á sveigjanleika í dilkakjöts- franileiðslu. Þó er ljóst að innan hefðbundna kerfisins er töluvert svigrúm til að dreifa slátrun á lengri tíma. Reynslan sýnir að holdafé, t.d. á tilraunabúinu á Hesti, hentar vel í sumarslátrun (vorfædd léttlömb). Ekki eru þau of feit. Þá geturskipt miklu máli að hafa næringarríka beit allt sumar- ið, t.d. rýgresi í stað mýrarbeitar upp úr miðju sumri. Verði farið víðar út í eldi sláturlamba á húsi að haust- og vetrarlagi þarf að huga betur að fóðurþörf og fóðrun þeirra, og athugandi væri að kanna áhrif aukinnar birtu í skammdeg- inu (rafljós) á vöxt sláturlamba, líkt og gert hefur verið t.d. í Bandaríkjunum og Bretlandi. Ferskt dilkakjöt allt árið Þegar komið er út í harða sam- keppni við aðrar kjöttegundir skiptir verðið mestu máli. Það er ljóst að kindakjöt er í mun lakari stöðu á markaðnum en flestar aðr- ar kjöttegundir vegna þess að ekki er til kjöt af nýslátruðu nema hluta árs. Á kindakjötið leggst einnig meiri frystingar- og geymslukostn- aður vegna þess hve framleiðslan er háð árstíðum. Að gera fram- leiðsluna sveigjanlegri hlýtur að vera ein álitlegasta leiðin til að bæta stöðu kindakjötsins á mark- aðnum, bæði bændum og neytend- um til hagsbóta. Fljótt á litið mætti álíta að kjötið verði dýrara ef vikið er frá hefðbundnum framleiðslu- háttum. Þetta hefur ekki verið rannsakað, enda margir þættir sem þarf að kanna á öllum stigum, frá bóndanum til neytandans. Sú erf- iða staða sem enn er í markaðsmál- um dregur mjög úr nýbreytni á þessu sviði en við verðum samt að hugleiða breytingar á bæði hefð- bundnum burðar- og slátrunar- tíma. Slík þróun yrði að sjálfsögðu háð viðbrögðum neytenda. Til að byrja með mætti hugsa sér að hinn hefðbundni burðartími á vorin yrði lengdur nokkuð, en að auki yrðu ær látnar bera á tveim öðrum árstímum, í september og janúar. Sláturtíð yrði lengd, aðallega með því að slátra hluta dilkanna í júlí og ágúst og auk þess yrði slátrað tvisvar að vetrinum, í desember og mars. Þá gætu kostir lítilla slátur- húsa notið sín og einnig við sumar- slátrun í smáum stíl. Slík nýbreytni ætti að stuðla að nægilegum sveigj- anleika til þess að unnt yrði að hafa kindakjöt af nýslátruðu eða ófros- ið í lofttæmdum umbúðum á boð- stólum í verslunum allt árið eða því sem næst. Hvað bændur varðar er gert ráð 1006 Freyr 24. DESEMBER 1989

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.