Freyr - 15.12.1989, Side 32
sem yfirtaki stjórnunarsvið Bún-
aðarfélags íslands, Stéttarsam-
band bænda og Framleiðsluráðs
landbúnaðarins."
Pá var einnig samþykkt viða-
mikil tillaga um lækkun búvöru-
verðs. í búgreinanefnd voru kosnir
Hörður Harðarson, formaður,
Guðmundur Lárusson og Halldór
Gunnarsson. Þessari nefnd er falið
að kalla saman í það minnsta einn
ársfund búgreinafélaga og reyna
að fylgja eftir samþykktum frá bú-
greinafundi.
IX. Félagsstarfið og fréttabréf
F.hrb.
9. a. Stjórnarfundir voru eins og
áður 4, haldnir 15. febrúar, 5. maí
29. ágúst og 16. nóvember.
Stjórnin var skipuð eftirtöldum:
Einar E. Gíslason, form., Birna
Hauksdóttir, gjaldkeri, Grímur
Gíslason, ritari og meðstjórnend-
ur: Kjartan Georgsson og Þórir
ísólfsson.
Formaður Markaðsnefndar,
Halldór Gunnarsson, starfar sem
framkvæmdastjóri, situr stjórnar-
fundi og leggur fram skriflega
dagskrá með fundargögnum. Rit-
ari sendir öllum formönnum deilda
félagsins, stjórnarmönnum og
varamönnum þeirra og markaðs-
nefndarmönnum, ásamt starfs-
mönnum og öðrum trúnaðar-
mönnum fundargerðir stjórnar-
funda.
9. b. Einn markaðsnefndarfund-
ur var haldinn eins og áður 16.
febrúar, en í markaðsnefndinni
eru: Halldór Gunnarsson, Sigurð-
ur Gunnarsson, Ingimar Ingimars-
son, Skúli Kristjónsson og Sigurð-
urSæmundsson. Varamaður: Leif-
ur Þórarinsson. Markaðsnefndinni
er ætlað að vera framkvæmdar-
nefnd félagsins og stjórn félagsins
til ráðgjafar og stuðnings, eftir því
sem stjórnin ákveður.
9. c. Stutt félagsbréf voru send
út í byrjun árs með útsendri aðal-
fundargerð og 5. október.
X. Lokaorð.
Þessi skýrsla F.hrb. fjallar um aðal
viðfangsefni félagsins á liðnu
starfsári. Þar ber hæst í jákvæða átt
stofnun Flugfax hf., ráðning starfs-
manns í hálft starf, mjög hagkvæm-
ur útflutningur á „pistólum" til
japans og enn aukinn útflutningur
reiðhrossa. Það sem erfiðlega
horfir er framvinda um málefni
Reiðhallarinnar, ótrygg fjárhags-
staða F.hrb., skattlagning ríkisins
á hrossakjötsverzluninni og
óréttlát gjaldtaka í hina ýmsu
sjóði, sem reiðhrossaverzlunin
verður að sæta ásamt kjötverzlun-
inni.
Stjórn F.hrb. og Markaðsnefnd
félagsins vill þakka öllum sam-
starfsaðilum og starfsmönnum.
Einkum er þökkuð starfsaðstaða
fyrir formann markaðsnefndar hjá
Stéttarsambandi bænda og fundar-
aðstaða þar fyrir fundi félagsins.
F.hrb. væntir stuðnings Stéttar-
sambands bænda og B.í. varðandi
þá lagabreytingu sem unnið er að,
til þess að heimila búgreinafélög-
unum gjaldtöku um allt að 2% af
framleiðendaverði. Þær fjárhags-
skuldbindingar sem F.hrb. stendur
frammi fyrir eru slíkar, að ef þetta
nær ekki fram, verður að draga
saman allt starf F.hrb. Það kostar
peninga að sinna hagsmunamál-
um, útflutningsverzlun og vera
hluthafar í hlutafélögum, sem
verður að greiða hlutafé til og vera
í fjárhagsábyrgð fyrir.
Fyrir hönd Félags hrossabænda,
Einar E. Gíslason.
Halldór Gunnarsson.
BÆNDASKOLINN HOLUM
í HJALTADAL
HÓLASKÓU
HÓLUM í HJALTADAL
AUGLÝSIR
Nám í: Fiskeldi - fiskrœkt
Hrossarœkt - Almennri búfrœði
Stúdentar teknir inn beint á 2. námsönn
í janúar og júní.
Umsóknarfrestur um tveggja ára nám er til 6. júní.
Upplýsingar veittar í síma 95 - 35962
Skólastjóri.
1014 Freyr
24. DESEMBER 1989