Freyr

Árgangur

Freyr - 01.02.1991, Blaðsíða 13

Freyr - 01.02.1991, Blaðsíða 13
3.’91 FREYR 93 víkurhrepp er hér á staðnum. Það er gagnkvæmur styrkur að öllum þessum stofnunum. Prestsetrið hér er jafnframt vígslubiskupssetur Hólastiftis og fjölþætt starf tengt því og dómkirkjunni. Leikskóli, orlofshús, sumarnámskeið. Hér er rekinn leikskóli fyrir börn starfsfólks á staðnum og hérna í hreppunum. Hann heitir Brúsabær. Þá eru hér orlofshús stéttarfélaga sem eru nýtt fyrir or- lofsgesti á sumrin en skólinn notar sem heimavistir fyrir nemendur á veturna. Við rekum hér vor- og sumar- námskeið fyrrir börn og unglinga í júní og fram í júlí. Þar eru þeim kynnt landbúnaðarstörf og reið- mennska, náttúran og umgengni við hana, skógræktin, kirkjan og kirkjulegt starf, íþróttir og leikir. Petta er allt saman fléttað hér sam- an í skemmtilega blöndu. Hingað koma um hundrað börn og ung- lingar á hverju sumri í vikudvöl. Þetta er orðinn fastur liður og afar ánægjulegur þáttur í starfinu.“ Ferðamenn sœkja heim aðHólum. „Hér á Hólum er geysilegur ferðamannastraumur einkum að sumrinu og því er hér talsverð ferðamannaþjónusta. Við erum hér með sundlaug og falleg tjald- stæði í skóginum. Skógrækt á Hólum á sér langa sögu. Hér var byrjað á skipulagðri skógrækt skömmu eftir aldamótin. Sigurður Sigurðsson skólastjóri (síðar bún- aðarmálastjóri) rak hér gróðrar- stöð og hóf að gróðursetja trjá- plöntur. Sú starfsemi hefur haldið áfram alla tíð síðan þó svo að mest- ur hluti þess trjágróðurs sem hér er nú hafi verið gróðursettur eftir miðja öldina. Fyrst voru teknir hér um 75 ha til skógræktar en þeir eru nú fullplantaðir og er þar að finna marga myndarlega og fallega trjá- lundi. Árið 1989 var skógræktar- land aukið um aðra 60-70 ha svo nú eru um 140 ha afgirtir til skógrækt- Dómkirkjan á Hólum var fullbyggð 1763. Hún er sjöunda kirkjan sem reist hefur verið á staðnum. Um leið og gert var við kirkjuna nýlega var kalkhúð af forkirkju fjarlœgð og rauður sandsteinn látinn njóta sín. Veggmyndir úr sögu Hólastaðar, eftir Jens Kristleifsson listmálara, prýða veggi í Hólaskóla. Orlofshús bœndasamtakanna á Hólum.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.