Freyr

Árgangur

Freyr - 01.02.1991, Síða 16

Freyr - 01.02.1991, Síða 16
96 FREYR 3.'91 Erf itt en skemmtilegt starf aðvera ráðsmaðurá Hólum - Grétar Geirsson í viðtali við Frey „Það er rekinn hér búskapur í flestum hefðbundnum greinum utan það að nautgripa- rœkt og mjólkurframleiðsla lagðist af fyrir tveimur árum. Sauðfé hefur fœkkað en er rétt um 300 núna. Loðdýrarœkt er stunduð aðallega sem kennslubúskapur hér við skólann. Hrossin eru vaxandi þáttur bœði í búskapnum og skólastarfinu, og aðstaða hefur mjög verið aukin og bœtt bœði til kennslu í hestamennsku og tamningar hrossa. Það hefur verið byggt hús til að kenna tamningar inni og við það gjörbreyttist aðstaða til þess. Nú er kleift að kenna og stunda hesta- mennsku að einhverju marki alla daga þó að veður hamli slíku utan húss. Kennsla í hrossarækt hefur líka verið mikið aukin.“ Hvaðvinna margir hérvið búið? „Á sumrin vinna hérna, auk mín, fimm til sex manns við hey- skap og önnur bústörf og svo er skógræktarstarfsfólk þar fyrir ut- an. Allur heyfengur hér er svona 3000-3500 hesta á ári“. Grétar Geirsson bústjóri á Hólum er Skagfirðingur að ætt og uppeldi og búfræðingur frá Hólum 1970. Foreldrar hans eru Geir Ax- elsson og Ingunn Björnsdóttir sem lengst af bjuggu í Litla-Dal en síð- ast í Brekkukoti í Blönduhlíð. Eig- inkona Grétars er Jónína Hjalta- dóttir frá Ytra-Garðshorni í Svarf- aðarsal, dóttir Hjalta Haraldsson- ar bónda þar og konu hans Önnu Sölvadóttur. „Hún hefur staðið dyggilega með mér hér á Hólum og alla tíð“ sagði Grétar um konu sína. Grétar hefur verið rúm 11 ár ráðsmaður á Hólum. í hans tíð hafa gömul tún utan og neðan við staðinn og neðan við Klukkusléttu verið endurræktuð og nokkurt nýtt land hefur verið brotið til nýrækt-

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.