Freyr

Årgang

Freyr - 01.02.1991, Side 28

Freyr - 01.02.1991, Side 28
108 FREYR 3.’91 Tafla 4. Kynbótaeinkunnir nauta 1990. Einkunn Fjöldi Nafn og númer nauts dætra Mjólk Fita Prótein Bátur 71004 . . 377 112 107 111 Brúskur72007 . . 638 100 99 99 Frami 72012 442 108 106 108 Borgþór 72015 581 104 101 104 Skúti 73010 694 107 109 106 Rex73016 450 95 100 97 Bergur 74003 514 100 103 99 Ylur74010 . . 551 96 98 101 Bróðir 75001 503 104 108 107 Bratti 75007 541 103 100 100 Birtingur 75011 450 95 85 89 Þróttur 75015 185 103 104 102 Álmur 76003 579 107 107 105 Víðir 76004 . . 570 106 112 103 Lambi 76005 . . 438 100 102 98 Þari 76009 343 92 98 94 Forkur76010 611 101 101 95 Hæringur 76019 110 99 104 101 Ölvi 77005 250 95 94 98 Gellir 77011 107 97 104 96 Lýtingur 77012 552 101 102 100 Frændi 77015 106 104 107 104 Mjölnir 77028 344 103 99 96 Þorri 78001 519 104 102 104 Styrmir 78003 213 104 101 102 Arnar 78009 306 102 104 103 Drangur78012 637 104 101 103 Krókur78018 420 96 90 95 Reitur 79004 106 107 105 105 Garri 79007 92 103 104 106 Bauti 79009 . . 255 98 97 97 Svipur 79012 166 103 99 101 Gegnir 79018 511 100 102 99 Nikki 80001 99 107 105 106 Dálkur 80014 124 112 107 110 Bæsi 80019 127 101 104 102 82025. Þessi nautkálfur hefur nú verið valinn til notkunar á Nauta- stöðinni og kemur þar vonandi í notkun síðar á þessu ári. Nokkrar af þeim kúm sem síðar fylgja í töflu 3 þekkja margir lesendur úr eldri yfirlitum um afurðahæstu kýr, en þar er einnig að finna nýjar stjörn- ur. Burðurkúnna Á seinni árum hefur mikil áhersla verið lögð á jöfnun mjólkurfram- leiðslu eftir árstímum. Einn veiga- mesti stjórnþáttur í því samhengi er burðartími kúnna. Mynd 1 sýnir á hvern hátt burðartími skýrslu- færðra kúa, sem hafa skráðan burð árið 1990, dreifist. Rétt er að benda á það að í þessu yfirliti er burður kúa í janúar ætíð örlítið vanmetinn vegna þess að nokkrar þeirra kúa sem þá bera bera öðru sinni í lok ársins og er þá aðeins sá burðarmánuður skráður í þessu yf- irliti. Myndin sýnir að breytingar eru sáralitlar frá árinu 1989. Þær eru samt þær helstar að aðeins er fækkun á kúm sem bera á fyrstu mánuðum ársins en tilsvarandi fjölgun hjá kúm sem bera í apríl og maí. Aftur á móti helst uppi og fremur eykst hlutfall þeirra kúa sem bera á haustmánuðum. í raun tel ég að aldrei hafi komið inn á skýrslur jafn mikið af fyrsta kálfs kvígum á skömmum tíma eins og nú á þessu hausti. Niðurstöður um sæðingar á árinu 1990 liggja ekki fyrir enn. Ljóst er samt að kúm sem sæddar eru hefur fjölgað nokkuð frá árinu 1989 hvort sem það er vegna fjölgunar kúa eða meiri þátttöku í starfinu. Hins veg- ar er ljóst að árangur sæðinga á fyrri hluta ársins var öllu lakari sunnan- og vestanlands en nokkur undangengin ár. Þess vegna má vænta þess að á sumum búum á þessu svæði sé nú einhver tilfærsla á burði hjá kúm. Athygli skal vakin á nokkrum niðurstöðum um þá kálfa sem fæð- ast. Eins og ætíð áður er kynhlut- fall kálfa verulega skekkt. Árið 1990 er 54,9 % fæddra kálfa skráð- ir nautkálfar. Hins vegar er hlutfall tvíkelfinga heldur lægra en oft áð- ur eða aðeins 1,1%. Þar sem skráð eru afdrif naut- kálfa þá eru 37 % fæddra kálfa sem eru skráðir aldir til kjötfram- leiðslu, en nokkuð mikið er um að skortur sé á skráningu upplýsinga um afdrif kálfa en þó er skráð um rúmlega þriðjung fæddra nautkálfa að þeim sé slátrað nýfæddum, sem sýnir að enn eru verulegir mögu- leikar til aukinnar kjötframleiðslu vannýttir hjá íslenska kúastofnin- um. Af fæddum kvígukálfum eru hins vegar um 70 % sem eru skráð- ar sem ásetningskvígur og er það heldur hærra hlutfall en nokkru sinni fyrr. Eitthvað kann að vísu að vera um kvígur undan holdanaut- um í þessum hópi sem í raun eru aldar til kjötframleiðslu. Nefnt skal að á árinu 1990 var skýrsluhöldurum gefinn kostur á nýrri viðbót við skýrsluhaldið sem er bókhald um gripi í uppeldi. í heild eru viðbrög við þessari þjón- ustu ekki veruleg enn. Engu að síður má ætla að á þennan hátt megi fljótt fá nokkrar upplýsingar varðandi kjötframleiðslu naut- gripa sem brýnt er að fara að byggja upp. Þess vegna er ástæða til að vekja athygli bænda á þessum þætti skýrsluhaldsins vegna þess að

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.