Freyr

Árgangur

Freyr - 01.02.1991, Síða 30

Freyr - 01.02.1991, Síða 30
110 FREYR 3.'91 1497 jan feb mars Heimild: Búnaöarfélag Islands apr maí jún júl ágúst sept okt nóv des 33-2/M1/UÞL/feb. 91 bætast við dóm hjá þessum kúm, nema í því undantekningartilfelli að þessi naut eigi ættfærðar dætur á búum sem eru að hefja skýrslu- hald. Astæða er samt til að nefna tvö naut sem enn er boðið upp á notkun á, en nýjar upplýsingar um þau naut fá bændur á nautaspjaldi Nautastöðvarinnar. Þessi naut eru Hólmur 81018 sem hefur mjög já- kvæðan dóm fyrir próteinmagn í mjólk hjá dætrum sínum, en hitt nautið er Jóki 82008 sem enn styrk- ir dóm sinn og mjög hátt hlutfall dætra hans var árið 1990 með mikl- ar afurðir. Þannig voru 36 % dætra hans með afurðir yfir 5000 kg sem verður að teljast mjög glæsilegt hjá ekki eldri kúm. Verulegar viðbótarupplýsingar eru nú komnar um nautin sem fædd eru árið 1983 og hlutu sinn fyrsta dóm á síðasta ári. í heild gerist það sem eðlilegt er að vænta að einkunnir jafnast á milli nauta og í heildina koma ekki fram mikl- ar breytingar. Nautsfeðurnir Kaupi 83016, Bjartur 83024 og Hrókur 83033 standa áfram á toppi, að vísu lækka þeir tveir fyrsttöldu fremur í einkunn en Hrókur aðeins styrkir sinn dóm. Kaupi og Bjartur hafa báðir þann galla, eins og verulega áhersla var lögð á á síðasta ári, að gefa dætur sem gefa full efnasnauða mjólk. Þær breytingar sem mest ástæða er til að vekja athygli á er að Ái 83023 styrkir dóm sinn verulega og er nú kominn með mjög glæsilegan dóm. Full ástæða er til að beina athygli að þessu nauti. Vitað er að vísu að nokuð ber á því að undan honum hafi komið kýr sem eru gallaðar í mjöltun þó að eins og yfirleitt ætíð með slík naut sé meirihluti dætranna kýr sem eru góðar í nrjöltun. Dætur Áa eru hins vegar margar með allra glæsilegustu kúm sem gefur að líta í stofninum og hafa sérlega góða júgur- og spena- gerð. Smyrill 83021 heldur einnig áfram það góðum dómi að hann verður áfram boðinn til notkunar sem reynt naut með jákvæðan dóm. Aftur á móti hafa bæði Blær 83035 og Máni 83039 fallið það í dómi að þeir verða ekki lengur hafðirínotkun. Úrþessum árgangi skal að síðustu nefndur Þiður 83038, sem eins og á síðasta ári verður mögulegt að fá úr sæði til notkunar ef það er sérstaklega pantað frá Nautastöðinni. Nú koma úr afkvæmadómi þau naut Nautastöðvarinnar sem fædd- ur voru árið 1984. Þessi hópur var þvi miður alltof lítill og telur aðeins 14 naut. Mikil afföll urðu í þessum árgangi vegna þess hve illa gekk með naut þar þá í sæðistöku eins og margoft hefur verið nefnt. í þess- um hópi er hins vegar kjarninn synir þeirra Álms 76003 og Víðis 76004 sem löngu hafa sýnt sig að vera einir farsælustu ættfeður í kúastofninum. Þess vegna þarf ekki að koma að óvart að þessi árgangur nauta reynist mjög vel. Það naut sem úr þessum hópi dæm- ist efst er samt ekki úr þessum bræðrahópum, heldur Þistill 84013 frá Gunnarsstöðum í Þistilfirði. Þistill er sonur Báts 71004, sem því miður var aldrei notaður sem skyldi sem nautsfaðir. Móðir Þistils hét Bredda 45 og var fengin á sínum tíma sem ungkálfur frá Ljótsstöðum í Vopnafirði, en það bú var á sínum tíma þekkt fyrir ákaflega góðan kúastofn en þar hefur því miður ekki verið skýrslu- hald síðustu árin. Bredda var dóttir Kappa 68008 og var ákaflega glæsileg kýr sem entist með af- brigðum vel. Þistill virðist gefa mjög miklar og jafnar afurðakýr. Dætur hans eru auk þess frábær- lega sterkbyggðar kýr með ágæta

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.