Freyr - 01.02.1991, Page 34
114 FREYR
3.'91
vým 5 3 s'l í* i 3*{V! K {j
Skallavísur
Haraldur á Jaðri kvað við góð-
kunningja sinn, Halldór Jóhannes-
son á Dalvík:
Tíminn spinnur tálþráð sinn,
tólum sallafínum.
Hcldur þynnast, Halldór minn,
hár á skalla þínum.
Halldór svaraði:
Þú hefur gleymt og því er ver,
en það munu dæmin sanna:
Að skallinn merki aðals er,
allra gáfumanna.
Niðurstöður úr skýrslum
nautgriparœktarfélaganna.
Frh. afbls. 111.
að ástæða þess er fyrst og fremst
mikið framboð kálfa.
Hér verður látið staðar numið
að gera grein fyrir niðurstöðum úr
skýrsluhaldinu fyrir árið 1990.
Frekari niðurstöður verður að
finna í næsta árgangi Nautgripa-
ræktarinnar, sem vonandi birtist
samkvæmt áætlun á vordögum.
i Frá Bœndaskólanum
á Hvanneyri
Héraðsráðunautar
Námskeið á Hvanneyri
í verkefnastjórn
Búvísindadeildin á Hvanneyri býður til námskeiðs í verk-
efnastjórn dagana 11. og 12. mars nk Leiðbeinandi
verður Karl Friðriksson hagfrœðingur hjá Iðntœknistofnun
íslands.
Á námskeiðinu verður verkefnastjórn skilgreind og fjall-
að um líftíma verkefna og brepaskiptingu þeirra. Rœtt
verður um hlutverk verkefnisstjórnar og verkefnisstjórans
og fjallað um uppbyggingu verkefnahópa og skipu-
lagningu þeirra. Fjallað um reynslu af stjórn verkefna, frá
ýmsum sjónarhornum. Kynnt verða nokkur verkefni sem
hafa verið framkvœmd á árangursríkan hátt og einnig
verkefni sem hafa mistekist og farið yfir þau mistök sem
þar voru gerð. Einnig verður fjallað um skipulagningu og
stjórn funda svo og áœtlunargerð.
Námskeiðið er hluti af námsefni Búvísindadeildar III í
námsgreininni Stjórn búrekstrar. Þátttökugjald er kr. 3.800.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku fyrir 8. mars á skrifstofu
Bœndaskólans á Hvanneyri í síma 93-70000. Nánari upp-
lýsingar veitir Erna Bjarnasóttir í síma 93-70000.
GRÆNA HJÓLIÐ
Búvélamiðlun B.S.V.H.
Pósthólf 74, 530 Hvammstanga.
BÆNDUR!
Skráum til sölu hvers konar búvélar, nothæfar og til niðurrifs.
Skráum þær vélar, eða vélarhluta sem ykkur vantar.
Kynningarverð gildir til f.júlí 1991.
Hringið í síma 95-12774.