Freyr - 01.01.1992, Blaðsíða 39
1.’92
FREYR 31
Sverrir H. Júlíusson, Skógum á
Pelamörk, Eyjafirði, f. 1.5.1967.
Aðalverkefni: Fóðrun loðkanína.
Kennari við Bændaskólann á
Hvanneyri.
Þórarinn Leifsson, Keldudal í
Hegranesi, Skagafirði, f.
23.8.1966.
Aðalverkefni: Umhverfi hrossa og
sjúkdómatíðni.
Kennari við Bændskólann á
Hólum.
Sævar Bjarnhéðinsson. Núpurn í
Ölfusi, f. 24.2. 1965.
Aðalverkefni: Ahrif mismunandi
fóðurferla á framleiðslugetu slát-
urgrísa.
Rannsóknamaður við Tilrauna-
stöðina að Stóra-Ármóti.
Þorsteinn Bergsson, Refsstað I í
Vopnafirði, f. 27.6.1964
Aðalverkefni: Kornræktartilraun-
ir á Austurlandi sumarið 1990.
Ráðunautur hjá Búnaðarsam-
bandi Austurlands.
IFAP með við
samningaborðið
Með milljónir bænda á bak við sig
getur IFÁP. Alþjóðasamband bú-
vöruframleiðenda, verið tengill
við stóru alþjóðastofnanirnar.
Pað eru bændurnir sem standa í
ströngu og þeim ber að eiga sinn
sess þar á þingi sem ráðum er ráðið
um matarbirgðir, landbúnaðar-
stefnu og önnur meginmál.
Þetta, meðal annars kom fram í
ræðu sem H. O. A. Kjeldsen, for-
seti IFAP hélt á fundi FAO. Land-
búnaðar- og matvælastofunar
Sameinuðu þjóðanna í Róm fyrir
jólin.
Bœndur mótmœla
áformum stjórnvalda
Stéttarsamband bænda mótmælti
þeirri fyrirætlun ríkisstjórnarinnar
að flytja sjötta hluta af svonefnd-
um beinum greiðslum til sauðfjár-
bænda fyrir árið 1992 yfir á árið
1993.
Stéttarsambandið telur þetta
vera um 17% af þeim tekjum sem
tryggja átti sauðfjárbændum á
næsta ári, og bendir á að þessi
áform ríkisstjórnarinnar samrým-
ist ekki búvörusamningnum sem
var undirritaður í mars sl. og átti að
tryggja sauðfjárbændum greiðslur
fyrir framleiðslu sína á sjálfu fram-
leiðsluárinu.
Stéttarsambandið bendir á að í
sumar er leið hafi orðið 12% sam-
dráttur í sauðfjárrækt sem hafi í för
með sér samsvarandi tekjurýrnun
innan þeirrar greinar.
Mannsœfin
Á fjörur Freys hefur borist göm-
ul vísa sem ber heitið mannsæfin:
Fæðast, gráta, reifast, rugga,
ræktast, berast, stauta, gá,
tala, leika, hirtast, hugga,
herðast, vaxa, þanka fá,
elska, biðlast, giftast greitt,
girnast annað, hata eitt,
mæðast, eldast, andast, jarðast
æfin mannleg svo ákvarðast.