Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1992, Blaðsíða 31

Freyr - 01.01.1992, Blaðsíða 31
1.’92 FREYR 23 RANNSÓKNASTOFNUN LANDBÚNAÐARINS Bútœknideild, Hvanneyri BÚVÉ LAPRÓFAN IR il| 1111 Ár1991 Nr. 614 Ár 1991 Nr. 615 KVERNELAND - rúllubaggatætari ELHO - áburðardreifari Gerð: Kverneland UN7860. Framleiðandi: Kverne- land-Underhaug, Noregi. Innflytjandi: Jötunn hf., Reykjavík. YFIRLIT Kverneland UN7860 rúllubaggatætarinn var prófaður af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðar- ins fyrri hluta árs 1991 og notaður alls við söxun og mötun á um 66 rúllum eða sem svarar 100 m3 af heyi. Tætarinn er ætlaður til að tæta niður og mata allar gerðir af rúlluböggum með þvermál allt að 150 cm. Hann er tengdur á þrítengi dráttarvéla og vegur um 714 kg. Hnífabúnaðurinn er knúinn frá aflúrtaki dráttarvélar, en baggahólfið frá vökvakerfi hennar. Utan um hnífaöxul er blásturshús og myndar búnað- urinn blástur sem blæs heyinu frá tækinu til hægri hliðar í allt að 2 m fjarlægð. Afköst eru mjög breytileg eftir stillingu tækisins og heygerð, oft á bilinu 30-70 kg þe./mín, en mældust mest um 120 kg. Aflþörf er á sama hátt breytileg, 30-40 kW (41-55 hö), en mældist mest um 50 kW (68 hö). Þungamiðja tækisins er nokkuð langt frá dráttarvél og því verður að ætla minnst 50-60 kW (68-82 hö) dráttarvél með góðri framþyngingu til að fullnýta getu tækisins. Athugun á söxunarhæfni tætarans leiddi í ljós mikla söxun heys- Frh. á bls. 26. Gerð: Elho EL 700. Framleiðandi: Elho, Finnlandi. Innflytjandi: Glóbus hf. Reykjavík. YFIRLIT Áburðardreifarinn Elho EL 700 var reyndur af Bú- tæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumari 1991 og gerðar mælingar á dreifieiginleikum hans. Áburðardreifarinn er þyrildreifari með eina dreifiskífu sem knúin er frá aflúttaki. Dreifarinn er tengdur á þrítengi dráttarvélar. Hann rúmar um 650 kg af áburði og vegur sjálfur 137 kg. Þetta rýrir framþunga lítilla og meðalstórra dráttarvéla talsvert og getur verið nauðsynlegt að þyngja þær að framan. Dreifarinn er lágbyggður og með nokkuð víðum ábyrðargeymi. Hleðsla hans er því tiltölulega auð- veld. Dreifarinn getur dreift nokkuð jafnt ef 10 m bil er milli ferða. Hann dreifir þó lengra til hægri en vinstri. Grind í áburðargeymi hindrar að kekkir í áburðinum loki útrennslisopi. Dagleg hirðing dreifar- ans er auðveld, m.a. vegna þess hve létt er að velta ábyrðargeymi frá þegar dreifarinn er tengdur og þegar komast þarf að dreifibúnaði til þrifa. Dreifibúnaður er úr ryðfríu efni. Stillkvarði fyrir dreifimagn er fremur ónákvæmur og leiðbeiningar um stillingar á útrennsl- Frh. á bls. 26.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.