Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1992, Blaðsíða 30

Freyr - 01.01.1992, Blaðsíða 30
l.tbl. 92 HYRNA fréttahom ] □ K. Starfsleyfi til MJÓLKUR- FRAMLEIÐSLU Eins og áður skulu héraðs- dýralæknar annast eftirlit með heilbrigði og hirðingu mjólkurkúa og hreinlæti og umgengni í fjósum og mjólkurhúsum. Þetta eftirlit skal framkvæmt árlega hjá hverjum framleiðanda og skal héraðs- dýralæknir afhenda fjósskoðunar- vottorð, sem er ígildi starfsleyfis, ef fullnægt er kröfum um heilbrigði nautgripa, húskost, mjaltaaðstöðu, mjólkurbúnað, umgengni og aðra aðstöðu til framleiðslu sölumjólkur samkvæmt reglugerðinni. Nýmæli er að aldrei mega líða meira en 18 mánuðir á milli skoðana. Enginn má framleiða mjólk til sölu nema hafa gildandi starfsley fi og er það ákvæði óbreytt. Nú er að auki tekið fram að mjólkurstöð sé óheimilt að taka við mjólk frá fram- leiðanda nema starfsleyfi sé fyrir hendi. Þettaleggurþá skyldu á herðar mjólkurstöðva og bænda að fylgjast með gildistíma starfsleyfa. Ætla verður að sú regla skapist að mjólkurstöð geri bændum og dýra- læknum viðvart, t.d. í 15. mánuði, eða þremur mánuðum áður en starfsleyfi rennur út. Efna- og lyfja- LEIFAR í MJÓLK Öll mjólk sem berst til samlags skal rannsökuð m.t.t. efna- og lyfjaleifa og mjólk hvers framleiðanda a.m.k. einu sinni í mánuði. Mjólk telst óhæf til manneldis ef í henni finnast meira en sem svarar til 0.008 alþjóðlegra eininga af penicillini í ml. Þessi mörk voru áður 0.03 einingar þannig að þau hafa verið hert umtalsvert. Þrátt fyrir hertar reglur kemur þessi breyting ekki við bændur sé á annað borð fylgt reglum um útskolunartíma lyfja og meðferð afurða eftir notkun þeirra, þar sem þær leiðbeiningar miðast við mun strangari mörk en reglugerðin gerði áður ráð fyrir. Sem betur fer heyrir til undantekninga að sýklalyf greinist í mjólkfrábændum. Ástæða er til að vekja athygli á þeirri þjónustu margra mjólkurbúa að taka sýni úr tank og greina áður en mjólkin er tekin, ef minnsti grunur er um að sýklalyf hafi borist í mjólkina. Undanþága fyrir ELDRI BÆNDUR í reglugerð var á sínum tíma ákvæði um frest um gildistöku kröfunnar um haughús við hvert fjós til 1. janúar 1990 og hvemig það skyldi staðsett og frágengið. Gildistöku þessa ákvæðis var síðan frestað í tvígang um ár og tók greinin því gildi um síðustu áramót. í reglugerðarbreytingunni nú er bráðabirgðaákvæði sem gerir ráð fyrir að þeir mjólkurframleiðendur sem við gildistöku reglugerðarinnar eru 60 ára og eldri og hafa í hyggju að hætta mjókurframleiðslu á næstu árum geti sótt um undanþágu frá ákvæðum greinarinnar til viðkomandi heilbrigðisnefndar. Skilyrði fyrirþví að undanþága verði veitt era að héraðsdýralæknir votti að aðstaða og hreinlæti til mjókurframleiðslu sé í góðu lagi, m.a. að haugstæði sé snyrtilega umgengið og ekki nærri mjólkurhúsi eða inngöngudyrum fólks í fjósið, og viðkomandi mjólkurbú votti að flokkun hafi verið eðlileg síðustu 5 árin. Þá verður undanþágan bundin við nafn viðkomandi framleiðanda og getur lengst staðið í 10 ár. Kyntiing þcssi á breytingum a mjóikurreglugerð, sent er m. 625/91, er birt í samráði við Fagráð í nautgriparaekt og HoIIustuvernd ríkisins. LK»LANDSAMBAND KÚABÆNDA » UÞL « UPPLÝSINGAÞJÓNUSTA LANDBÚNAÐARINS

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.