Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1992, Blaðsíða 19

Freyr - 01.01.1992, Blaðsíða 19
1.’92 FREYR 11 Nafn Silfustjörnunnar hf. er efst á vatnsblöndunarhúsi stöðvarinnar. aratriði ef menn ætla að vera í föstum viðskiptum við kaupendur. Matfiskeldið hér er í um 15 þúsund rúmmetrum af vatni. Það hefur verið talað um að hér hafi verið lítili hönnunarkostnaður? f>að reyna sjálfsagt allir að byggja ódýrt. Okkur var ljóst að hér var aftur og aftur verið að hanna sömu hlutina, dælur, lagnir og ker, og okkur fannst að í því mætti spara. Við leituðum því eftir föstum samningi um hönnunarkostnað við verkfræðistofu. Samningurinn var þannig að við legðum til hugmynd- irnar, verkfræðistofan útfærði þær eða afskrifaði eftir atvikum og kæmi þá með gagntillögur, ef henni líkað ekki hugmyndir okkar, og þannig varð stöðin til. Við höfunm séð upphæðir frá öðrum stöðvum þar sem hönnun- arkostnaður er geigvænlegur, en okkur tókst að halda þessu skap- lega niðri. Hvað er búið að fjárfesta hér fyrir mikið í mannvirkjum? Það er búið að byggja hér fyrir um 320 millj. kr. og hönnunarkostnað- ur er þar af um 3 milljónir. Það má segja að hér hafi verið byggt með því hugarfari að ekkert væri svo smátt til sparnaðar að ekki munaði um það. Eg þekki þetta sjónarmið úr mínum eigin búskap og mér finnst það ekkert síður eiga við í fiskeldi. Það er líka talað um að þið hafið sparað ykkur útgjöld við tryggingar á rekstrinum? Já, þetta hefur verið þannig að fiskeldismönnum hafa boðist tryggingar frá Reykvískri endur- tryggingu sem við töldum ákaflega dýrar. Það eru líka ýmsir skilmálar tengdir þessum tryggingum sem við töldum óaðgengilega, t.d. eigin áhætta, sem er alltof mikil, og svo mikil að okkur reiknaðist til að ef við yrðum fyrir alvörutjóni, þá værum við komnir á haustinn hvort eð væri. Forsendan fyrir rekstrar- lánum var hins vegar að tryggja. Við vorum þannig í ákveðinni klemmu. Þegar á reyndi þá notuðum við nokkuð af því fé sem við fengum til fjárfestingar í reksturinn í fyrst- unni. Eg get nefnt sem dæmi að það eru nú í stöðinni rúm 300 tonn af lifandi fiski. Við þurfum að auka það um 100 tonn og teljum að stöðin beri um 400 tonn. Það þýða um kr. 30-35 millj. í útlagt fé að auka lífsmassann um 100 tonn. Þetta fé þurfti að fá einhvers staðar frá til að koma upp lífmassanum í upphafi. Það var mjög erfitt. Bún- aðarbankinn hefur lánað okkur kr. 20 milljónir í reksturinn án trygg- ingar og það metum við afar mik- ils. Byggðastofnun hefur lánað okkur álíka upphæð sem rekstrar- lán en önnur rekstrarlán höfum við ekki fengið nema það sem við höf- um fengið nýlega til að viðhalda þekkingu í fiskeldi, eins og það er kallað. M.ö.o., við tryggjum ekki. Okkar trygging felst í því að við stöndum vaktir hér allan sólar- hringinn, jólanótt sem aðrar næt- ur. Með þeirri vakt höfum við nokkrum sinnum komið í veg fyrir að tjón yrði. Þetta kostar ótrúlega lítið brot af venjulegum trygging- um, ef hægt er að kalla þetta trygg- ingu. Hvernig gengur svo reksturinn? Við erum enn í framkvæmdum og því er það ekki komið í ljós, en það verður á næsta ári. A þessu ári erum við búnir að selja um 300 tonn af fiski sem hafa gefið yfir kr. 100 millj. í tekjur. Það er komin í þetta velta og mér virðist að fyrstu sex mánuði árins hafi reksturinn staðið undir breytilegum kostnaði og rúmlega það. Það sem við vitum hins vegar ekki er hvernig stöðin bregst við því þegar bætt verður 100 tonnum við lífsmassann. Ef stöðin skilar 33% meira út, þá er ég ekki svartsýnn, ef við lendum ekki í óhöppum. Skili hún minna út verð- ur útkoman að sama skapi lakari. Við vitum þetta ekki enn, en við sjáum hér mikinn vaxtarhraða, jafnvel allt að 40% vöxt á tveggja kg fiski á mánuði. Hverf er núna hlutfall á laxi og bleikju í stöðinni? Það er nokkurn veginn jafnt af hvoru. Við erum komin með bleikjuna í þá stærðarskiptingu sem við þurfum til þess að geta afhent hana jafnt og þétt. Laxinn er að komast í það en það var lægð í slátruninni um mitt árið en við höfum síðan afhent lax reglulega.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.