Freyr - 01.06.1994, Blaðsíða 17
slík gildi hljóta að vera háð gerð
gróðurlendis og aðstæðum á hverjum
stað. Þá teljum við að einkennin sent
talin eru í töflunni þurfi ekki nauðsyn-
lega öll að fara saman þegar gefin er
einkunn, heldur að meiri hluti þeirra
eigi við hverju sinni. Við þessa
flokkun var höfð hliðsjón af kvörðum
sem Ólafur Arnalds jarðvegsfræðing-
ur hefur verið að þróa og notað til
mats á jarðvegsrofi.
En hugum aðeins nánar að þeint
einkennum sem notuð eru til að meta
ástand Iandsins. Mikilvægt er að þau
séu auðgreinanleg og að sjónmat nægi
til að dæma um þau. Megineinkennin
eru eftirfarandi:
• A) Rofdílar eru smárof í gróður-
þekju þar sem skín í beran jarðveg.
Þar sent beitarálag er hóllegt í
láglendishögum ber yfirleitt mjög
lítið á rofdílum, en við ntikið
beitarálag getur gróðurþekjan látið
undan og dílamir tekið að ntyndast.
Rofdílar gefa yfirleitt mjög mikil-
væga vísbendingu um ástand lands,
en þeir geta verið undanfari enn
alvarlegra rofs og gróðureyðingar.
• B) Þúfur verða oft mjög áberandi í
landi þar sem beit hrossa er óhóf-
leg. Stafar það bæði af því að þær
verða sýnilegri þegar land er
nauðbitið og eins er liklegt að mikil
beit ýti undir þúfnamyndun. þær
verði hærri og brattari. Við lang-
varandi ofbeit hrossa taka þúfur
gjaman að rofna, sem er ótvfrætt
nterki um tnjög slæmt ástand.
• C) Tað má nota sent einfalda vís-
bendingu unt álag á landi. I hrossa-
högum verður það yfirleitt ekki
áberandi fyrr en beitarálag fer að
nálgast óhófleg mörk.
• D) Beitarummerki á gróðri, hér er
átt við hve sýnileg beitin er þegar
litið er yfir landið og gróðurinn
skoðaður. Ef beit er lítil eða hólleg
sjást þess vart merki að gróður hafi
verið bitinn eða hann er í mesta lagi
bitinn á blettum og toppóttur. Með
vaxandi beitarálagi fer að sjá meir á
gróðrinum, hann verður jafnbitinn
um allt landið og snöggur, en
lokastigið er að gróður er allur rót-
nagaður sem gefur til kynna mjög
slæmt ástand.
• E) Puntur getur verið gagnlegt
einkenni. Gróður hrossahaga ein-
kennist oftast af grösum og störum.
Ef beit er lítil verður blómgun
plantnanna yfirleitt mikil og puntur
og fræöx mjög áberandi svo sterkan
svip setur á land er líður á sumarið.
Þar sem beit er óhófleg verður lítið
D: Einkutm 3, slœmt ástand. Gróður allur snöggbitinn, land nœr sinulaust, þúfur
áberandi, nokkuð uni rofdíla. Hér er beitarálag orðið óhóflegt.
E: Einkunn 4, nijög slœmt ástand. Land er allt rólnagað og sinulaust, þúfur eru
mjög áberandi og rofnar, rofdílar áberandi. Hér hefur beitarálag gengið langt úr
Itófifrani.
F: Einkunn 5, land óhafl til beitar. Land þar sem gróðurþekjan er veik œtti ekki að
nýta til hrossabeitar. Hér höfum við dæmi uni slíkt land með áberandi rofuni og
fagskelluni.
11'94 - FREYR 409