Freyr - 01.06.1994, Síða 19
2. tafla. Mat á ástandi hrossahaga á jörðunum „Kaplagerði, Hestabrekku og Skeifu11, (um tilbúið dœmi er að rœða).
Jörð Hólf Einkunn Astand Er úrbóta þörf?
Kaplagerði A 3 Slæmt Já
“ B 2 Viðunandi Nei
C 3 Slæmt Já
Hestabrekka A 1 Gott Nei
“ B 2 Viðunandi Aðgát
II C 4 Mjög slæmt Já
II D 5 Óhæft til beitar Já
Skeifa A 2 Viðunandi Aðgát
“ B 1 Gott Nei
“ C 0 Mjög gott Nei
II D 2 Viðunandi Nei
II E 0 Mjög gott Nei
um punt og hann getur horfið með
öllu þegar ástand er orðið mjög
slæmt.
• F) Uppskera og sina eru mjög
gagnleg einkenni sem segja svipaða
sögu um gróðumýtingu og gefa vís-
bendingu um ástand. Með uppskeru
er hér átt við magn lifandi gróðurs
sem er til staðar á hverjum tíma.
Þar sem beit er engin eða lítil
verður yfirleitt mikil uppskera á
landi er líður fram á sumar. Er
haustar sölna grös og sina verður
eftir á landinu sem hlífir þvi yfir
veturinn og fram á vor er gróður
tekur að lifna á ný. Landið er nteð
öðrum orðum loðið af grasi eða
sinulubbi á því árið um kring. Með
vaxandi beit rýmar gróðurhlífin, þar
sem minni uppskera eða sina er á
landinu á hverjum tíma. Það er
vanalega merki um óhóflega nýt-
ingu og slæmt ástand hrossahaga
þegar uppskera er lítil sem engin og
land sinulaust með öllu.
Framsetning niðurstaðna
Það ætti að vera keppikefli manna
að halda beitilandi sínu í mjög góðu
til viðunandi ástandi, en bregðast
þegar við nteð úrbótum sé land metið
í slæmu, mjög slæmu ástandi eða talið
óhæft til hrossabeitar. í 1. töflu er
bent á nokkrar leiðir ef aðgerða er
þörf, svo sent að dregið er úr beit,
áburði dreift á land eða það friðað.
Ef skali þessi á að konta að góðu
gagni er nauðsynlegt að sem flestir
reyni að færa sér hann nyt við mat á
ástandi sinna haga. Þannig má fá ein-
falt yfirlit um einstaka hluta jarða eða
hólf sem ætti að stuðla að bættu
beitarskipulagi og hóflegri nýtingu. í
2. tötlu er gefið dæmi um einfalda
framsetningu á niðurstöðum eftir að
ntat hefur farið fram, en það skal
tekið fram að um tilbúið dæmi er að
ræða. Við sjáunt að hjá „Karli í
Kaplagerði'* og „Hauki á Hesta-
brekku" er ástandið ekki gott og þurfa
þeir báðir að finna leiðir til úrbóta. en
hjá „Skúla í Skeifu" er útkoman
miklu betri og mest allt land hans í
óaðfinnanlegu ástandi.
Að endingu skal það tekið fram að
sá kvarði og flokkun á ástandi hrossa-
haga sem hér er kynnt er fremur í
tillöguformi en að um fullmótaða
framsetningu sé að ræða. Allar
ábendingar og athugasemdir við
tlokkunina eru vel þegnar. Telji menn
kvarðann gagnlegan við mat á ástandi
haga væri æskilegt að koma honum f
betri búning, t.d. handhægan bækling
með litprentuðum skýringamyndum
og eyðublöðum til útfyllingar.
Efni þessarar greinar var upphaflega
flutt sem erindi á htálþingi um „Land-
nýtingu og ímynd hestamennskunnar"
sem haldið var í Reykjavík 8. apríl
síðastliðinn. á vegum Landgrceðslu
ríkisins, Landssamhands hestamanna.
Búnaðaifélags Islands. Félags
hrossahœnda og Landbúnaðarráðu-
neytisins
Höfundur er gróðurvistfrœðingur og
staifar á Rannsóknastofnun landbún-
aðarins. Keldnaholti. 112 Reykjavík.
Vissir þú
að leiðni jarðkapals í rafgirð-
ingar fer bæði eftir sverleika
og efni.
Jarðkapall, 1,6 mm,járn,
leiðnitala 6,3
Jarðkapall, 2,5 mm, járn,
leiðnitala 17,9
Jarðkapall, 2,7 mm, járn/ál,
leiðnitala 52,6
byggingavörur
Sauðárkróki.
Sími: 95-35200
Vel merkt byggð
/ Laxárdal i Dalasýslu stendur
þetta skilti á þeim stað þar sem farið
er af þjóðveginum inn í dalinn. Þarna
getur vegfarandinn séð hvaða bœir
eru í dalnum og hvað er langt til
þeirra frá vegamótunum. Þetta er
þœgilegt fyrir ókunnuga og mœttu
fleiri sveitir taka þennan hátt upp.
Freysmynd -J.J.D.
Sauöhús 1,4»
Höskuldsstaðir 3,6
Hornstaðir 5,4
Leióólfsstaóir 7,4
Þrándargil 8,7
Engihlió tl,i
Gröf 13,9
Gillastaöir.u 20,2
Sárnsstaðirimi8,2 I
Lambeyrar 17,0 |
Sólheimar 24,8
11 '94 • FREYR «11